Dagsbrún - 01.02.1896, Qupperneq 15

Dagsbrún - 01.02.1896, Qupperneq 15
31 — myrkrið var nú horfið að háliu, því enn kom nótt eftir dag. Af þessu má sjá að engin vera heíir átt við aðra eins erviðleika að stríða sem guð, að vera í svo svörtu myrkri, sem engin hugsun getur gripið, því síður orð útmálað, og finna enga staðfestu fyrir sig í svo voðalega engu, sem engin frumögn var til í. En guðfræð- in á eftir að sýna, hvað kom til að guð fór eklci að skapa fyr en hún segir. Ég hýst við að hún viti það eins og alla guðs eiginleg- leika, sem hún svo djai’fiega lýsir, eins og hún hafi búið hann til. Ég veit að hinir fyrnefndu prestar telja sig eitt með Kristi í guði, því vona ég að þeir hjálpi mér. upp úr fáfræði minni með ijósum upplýsingum. Mountain, N. D., 26. Marz 1890. Jónas Iíortson. Ýmislegt. Djöfullinn fór í svínin forðum, en nú fór Gabriel erki engill í jómfrú Conesdon. í Parísarborg er nú alt í uppnámi útaf stúlku einni, Conesdon að nafni. Hún er ung stúlka lagleg af fátækum ættum, en segist liafa fengið vitrun frá englinum Gabriel. Segist hún einusinni heima hjá foreldrum sínum bafa verið f'remur döpur í bragði og gruflandi, en alt í einu hafi sér brugið undariega. Hafi liún fundið titring mikinn og þó inndæian og ofan af himni niðursté einhver undarlegur kraftur og fór inn í fíkama hennar. Kvaðst hann vera erki engillinn Gabriel, og á sömu stundinni tók hún að tala citt og annað, er hún gleymdi að vörmu spori. Upp frá þessu hefir hún verið að spá af mikilli andagift, og spáir um einlæg stríð og blóðsúthellingar. Segir Gabriel henni það alt saman. En skríllinn og kaþólsku klerkarnir þyrpast utan um hús liennar tfl þess að reyna að ná tali af eða fá að líta þessa “sælu meðal lcvenna”, meyna sem Gabriel býr I. Lögreglan ræður ekki við neitt og stöðugt er þyrpingin svo mikil utan um liús hennar, að við troðningi liggur. Blöðin eru full af umtali um hana. Segir hún að Spánn og Bandaríkin muni bráðlega lenda í blóðugu stríði, svo þar næst Bandaríkin og England og muni stríðið gjöra löndin nær öreigi, en loks verði England að leita sætta. — Iíálfundarlegt að mentunin skuli ekki vera komin lengra áleiðis en svo, að menn skuli leggja nokkurn trúnað á annað eins og þetta. En hér sér

x

Dagsbrún

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/1272

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.