Morgunblaðið - 31.08.2017, Page 16
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is. Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Sigurður Nordal fréttastjóri, sn@mbl.is. Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Ófyrirséðar afleiðingar af Costco
Dýrara í H&M á Íslandi?
Auðmenn bítast um búð í Kópavogi
Skoða opnun fleiri verslana á Íslandi
Asíuflugið sóknar- og varnarleikur
Mest lesið í vikunni
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
SKOÐUN
Endurkoma vínylplötunnar hefur
leitt til þess að sala á vínylplötum hér
á landi hefur aukist jafnt og þétt und-
anfarin fimm ár og vínyllinn virðist
enn vera í stöðugri sókn.
„Það hefur verið töluverð aukning í
sölu á vínylplötum undanfarin fimm
ár en á sama tíma hefur alltaf verið
samdráttur í sölu á geisladiskum,“
segir Eiður Arnarsson, fram-
kvæmdastjóri Félags hljóm-
plötuframleiðenda. „Sú aukning hef-
ur samt sem áður ekki náð að vega
upp á móti samdrættinum í geisla-
diskunum. Þrátt fyrir að það sé ekki
mikil aukning hjá íslenskum útgef-
endum í ár þá hef ég orðið var við að
innflutningur á vínylplötum beint í
verslanir hefur aukist mikið og síðan
eru mjög margir sem kaupa plötur á
Amazon. Flestar hljómsveitir eru
farnar að gefa út geisladiska, vínyl-
plötur og stafræna útgáfu samhliða
núorðið en það eru einnig dæmi um að
tónlistarmenn velji að gefa eingöngu
út vínylplötu.“
Eiður segir umbreytinguna á sín-
um tíma hafa verið sérstaka að því
leyti að hún gerðist mjög hratt. „1989
var vínyllinn í kringum 80-90% af
seldri tónlist en árið 1991 var hann
kominn í 15%. Ég þori næstum að
fullyrða að árið 1992 hafi engin
íslensk plata komið út á Vínyl og síðan
er þarna 15-17 ára tímabil þar sem
svo gott sem engir íslenskir titlar
koma út á vínyl,“ segir Eiður.
Á morgun kemur ein vinsælasta
plata „vínyllausa tímabilsins“ út en
það er platan Fólk er fífl með Botn-
leðju. „Þetta er í raun gert til að prófa
markaðinn, því þetta er náttúrlega 21
árs gömul plata og það verður áhuga-
vert að sjá hvernig tekið verður á
móti henni. Ef fólk er tilbúið í þetta þá
munum við klárlega gera meira af
þessu og byrja á að gefa út fleiri plöt-
ur með Botnleðju,“ segir Haraldur
Leví Gunnarsson hjá RecordRecords.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Á fimmtán ára tímabili komu svo gott sem engar íslenskar plötur úr á vínyl.
Vínylplötur í
stöðugri sókn
Gísli Rúnar Gíslason
gislirunar@mbl.is
Vínylplötur hafa verið í
stöðugri sókn undanfarin
ár á kostnað geisladiska
og nú er farið að endur-
útgefa plötur sem aldrei
komu út á vínyl.
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Vandræði United Silicon, kísil-verksmiðju í Helguvík, leiða
hugann að því hve óæskilegt það er að
ríkisvaldið skuli eiga banka.
Arion banki hefur lagt United Sili-con til um níu milljarða króna og
óvíst er hve mikið muni endur-
heimtast. Blessunarlega á ríkið ein-
ungis 13% hlut í bankanum en ekki
allt hlutaféð, eins og í tilviki Íslands-
banka og Landsbanka.
Vert er að rifja upp að ríkið er meðum 500 milljarða króna bundna
sem eigið fé í bönkum. Um er að ræða
áhættusama starfsemi sem getur ver-
ið ábátasöm, en útlánatöp eru fylgi-
fiskur lánveitinga. Rýrni eigið fé
þeirra um 5% tapar ríkið 25 millj-
örðum króna.
Sá dagur mun renna upp að ríkis-bankarnir afskrifi milljarða króna
vegna lána sem fást ekki endurgreidd.
Það er gangur hagsveiflunnar. Og ís-
lenska sveiflan getur verið ansi öfa-
kennd. Ef allt fer á versta veg gæti
ríkið jafnvel þurft að hlaupa undir
bagga með bönkunum og leggja þeim
til aukið eigið fé. Það hefur sagan sýnt.
Stjórnmálamönnum er ekki til set-unnar boðið. Skynsamlegt er að
selja bankana og nýta söluverðmætið
til að greiða niður ríkisskuldir. Við það
gæti Ísland orðið sú þjóð í Evrópu
sem er með hvað lægstu ríkis-
skuldirnar.
Það er afar eftirsóknarvert aðskulda lítið og bera ekki ábyrgð á
bankakerfi landsins. Því eitt er víst;
það mun koma kreppa.
Íslenska
sveiflan
Um þessar mundir eru í gangitvær deilur vegna auglýsinga-
skilta. Annars vegar hefur AFA
JCDecaux, dótturfélag alþjóðlega
fyrirtækisins JCDecaux, stefnt
Reykjavíkurborg fyrir að hafa brot-
ið gegn samningum fyrirtækisins og
borgarinnar um rekstur biðskýla frá
1989. Hins vegar hefur LS Retail
stefnt Íslandsbanka og Norðurturn-
inum hf. vegna ákvörðunar stjórnar
Norðurturnsins um að bankinn megi
einn leigutaka merkja sér turninn.
Hjólastöðvar WOW air eruástæða fyrrnefnda ágreinings-
ins. Skýringar borgarinnar eru þær
að við stöðvarnar sé aðeins um
kynningarskilti fyrir hjólaleigu að
ræða og því ekki brotið gegn ákvæð-
um samningsins um að borgin leyfi
ekki auglýsingar innan 50 metra frá
biðskýlum JCDecaux.
Auglýsingagildi kirfilegamerktra hjólastöðva með slag-
orðinu „WOW is in the air“ og hjól-
anna sem merkt eru flugfélaginu í
bak og fyrir er væntanlega afar tak-
markað, enda allt bleikt á litinn og
lítt áberandi. Með umhverfisvænni
ferðamannabeitu tókst WOW að fá
borgarstjórann til að brjóta samn-
inga, auk þess sem félagið fær aug-
lýsingar um alla borg sem, ef vel
gengur, geta borgað undir sig sjálf-
ar.
Bankinn braut enga samninga enhefur aftur á móti hafnað öllum
málamiðlunum við nágranna sína,
þrátt fyrir að hafa verið síðastir inn í
turninn. Hann féll þó náðarsamleg-
ast frá kröfunni um að turninn fengi
nafnið „Íslandsbankaturninn“.
Deilur alþjóðlegra fyrir-
tækja og íslenskra kónga
Morgunblaðið/Eggert
Plastseðlar sem Eng-
landsbanki hóf að
innleiða í fyrra munu
áfram innihalda tólg
þrátt fyrir mótmæli.
Nota áfram tólg
í plastseðlana
1
2
3
4
5
Settu starfsfólkið í fyrsta sæti
WOW Biz er fyrir þá sem vilja aukin þægindi, einfaldleika og greiða leið inn
í vélina. Innifalið er hraðferð um borð,máltíð, forfallavernd og sömuleiðis
BigSeat, eða besta sætið sem er í boði hverju sinni. WOW air flýgur einu sinni
til tvisvar á dag til allra helstu viðskiptaborga Evrópu og Ameríku. WOW Biz
kjörin leið fyrir þá sem þurfa að komast hratt og örugglega milli staða.
WOW Biz
Sumir þurfa einfaldlega
meira WOW en aðrir.
BRÍETARTÚNI 13 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
er