Ljósið - 01.02.1908, Side 2
10
L JÓSIÐ
Föður barna Krist á kalla,
Kristur endurfræðir alla.
Enginn maður óttist hann.
lygi úr mönnum ljós mitt eyði,
lýðsins frelsi út það breiði;
synd er að fela sannleikann.
Lærður breiðir ljótt út slaður,
launaður sérhver vígður maður,
falskennarar fara’ um lönd.
Klerkar líkir Kaífasi
kæfa vit með heimsku masi,
saklaus börn í setja bönd.
Lýðnum þeir frá ljósi snúa,
lyginni má enginn trúa.
Fróðir herrar fremja rán;
björg þeir opt frá börnum taka,
bölið ala á fróni klaka,
það er versta þjóðar smán.
Margir vilja að Ijósi leita,
lyginni eg þori neita;
þung eru gömul þjóðarmein.
Prestarnir hér hneikslin hylla,
hreinu viti barna spilla;
úr víðri götu veltum stein,
Allir sér til rúms nú ryðja,
ef réttan mann þeir vilja styðja,
sem að ræðst á ránglát tröll,
hneikslara, sem hneiksli ala,
húsi í vigðu lygi tala;
víst er kirkjan, vitskert öll.
Kirkjutrú er kerling galin,
kristileg er hún þó talin.
Þetta blessuð þjóð mín veit.
Biskup er við bókstaf bundinn,