Húnavaka - 01.05.2017, Blaðsíða 125
H Ú N A V A K A 123
ýmsa hluti. 7. Magnús Jónsson, bóndi á Sveinsstöðum, roskinn maður,
glaðlyndur og hlær hátt og einkennilega, ekki fríður í sjón en býður góðan
þokka, hvatur í spori en heilsutæpur. 8. Halldór Pálsson á Guðlaugsstöðum,
fjárræktarráðunautur, hár maður og grannur, lotinn í herðum, dáfríður í
andliti og svipurinn skarplegur, orðhvatur og orðhákur mikill. 9. Magnús
Björnsson, bóndi á Syðra-Hóli. Treysti mér ekki til að gefa ábyggilega lýsingu
á honum. 10. Sigurbjörg Jónsdóttir, húsfreyja á Hafsteinsstöðum, snotur kona
og prúð og kurteis en heldur döpur
því maður hennar liggur mikið
veikur heima og leiðist henni
biðin. 11. Gestheiður Jónsdóttir
frá Hofi í Skagafjarðar dölum, ung
stúlka og feitlagin. Hún er stillt og
talar fátt, líklega feimin. 12.
Hallgrímur Jónsson, kaupmaður á
Sauð árkróki, meðal maður á vöxt
og hnellinn, dável farinn í andliti,
sköllóttur. Virðist sæmilegasti
maður. 13. Jóhann Lárusson frá
Skarði í Göngu skörðum, „straum
og skjálftalækn ir“ og af því alkunn-
ur um land allt. Ungur maður og snotur, er mjög títt að tala um sjálfan sig,
ný afstaðin málaferli gegn honum og sýknu sína. Finnst sennilega tals vert til um
sig og togast sú tilfinning á við trúaralvöru og bænrækni. Aldrei borðar hann
nema eina máltíð á dag og hana létta en er þó vel í holdum, hress og snar í
bragði.
Bóndinn hér í Fornahvammi heitir Jóhann Jónsson, maður minnst sextugur,
samanrekinn um herðar og allur hinn kraftalegasti. Hefur efalaust verið
afrenndur að afli. Glaðlegur í viðmóti og alúðlegur við gesti sína. Húsfreyjan
heitir Stefanía Sigurjónsdóttir, myndarleg kona, miðaldra. Tveir eru synir
þeirra hjóna og báðir börn að aldri. Svo eru hér vinnuhjú, Bjarni og Olga og
Jónína Líndal Lækjamóti. Jakob H. Líndal
Lækjamóti.
Magnús Jónsson
Sveinsstöðum.
Stefanía Sigurjónsdóttir og Jóhann Jónsson í
Fornahvammi.