Land & synir - 01.10.1996, Side 3
HOFUNDA
Opið bréf tilAra Kristinssonar frá Hrafni Gunn-
laugssyni í tilefni viðtals viðAra í blaði kvik-
myndagerðarmanna Landi & sonum
betra vegna „ þróunar'* - heldur þú virki-
Dúfan flögrar víða
Benjamín dúfa, í
leikstjórn Gísla
Snæs Erlingssonar,
heldur áfram að gera
það gott á kvikmynda-
hátíðum víða um
heim. í apríl s.l. hlaut
Gísli Snær sérstök
verðlaun á kvik-
myndahátíðinni í
Poznan, Póllandi fyrir
leikstjórn, í júní hlaut
myndin tvenn verðlaun í Varna, Búlgaríu og í
byrjun ágúst tvennar viðurkenningar í Giffoni,
ftahu. Myndin var auk þess tilnefnd í hóp tíu
bestu mynda Norðurlanda ‘95-’96 á
“Amandá’hátíðinni í Haugasundi í seinnihluta
ágúst, ásamt m.a. Hamsun eftir Jan Troell,
Cold Fever eftir Friðrik Þór Friðriksson,
Kristin lavransdatter eftir liv Ullman og
Breaking the Waves eftir Lars Von Trier sem
hlaut Amanda verðlaunin að þessu sinni.
11. október næstkomandi hefur myndin
síðan göngu sína í kvikmyndahúsum þriggja
sænskra borga, Stokkhólmi, Gautaborg og
Mahnö. Á næstunni verður hún einnig sýnd í
kvikmyndahúsum í Danmörku, Noregi,
Þýskalandi og Ítalíu.
Þrjú barnamyndahandrit
fá framhaldsstyrk
Tvö þeirra sjö handritsdraga sem fengu
styrkveitingu frá Norræna kvikmynda- og
sjónvarpssjóðnum í vor, hafa nú fengið fram-
haldsstyrki til frekari vinnslu. Þau eru Ikingút
eftir Jón Steinar Ragnarsson og Stikkfrí eftir
Ara Kristinsson. Auk þess fengu Hákon Odds-
son og Sjón styrk vegna handrits sem þeir
kalla Bingó. Hvert verkefni fékk úthlutað
tæpum sjö hundruð þúsund krónum. Við
hlerum jafhframt að íslenska kvikmyndasam-
steypan sé á höttunum eftir handriti Jóns
Steinars og að Gísh Snær Erlingsson sé bendl-
aður við það sem leikstjóri.
Háseta vantar á bát
Nýtt fyrirkomulag verður tekið upp við val á
fulltrúa í úthlutunamefnd nú í haust. Sig-
ríður Dúna Kristmundsdóttir óskaði ekki eftir
áframhaldandi setu í nefhdinni og því þurfti að
velja nýja manneskju. Abnenna reglan hefur
verið sú að félögin hafa sntngið upp á fólki til
að sitja í nefndinni og síðan hafa fulltrúarnir í
stjóm Kvikmyndasjóðs möndlað með sér hver
yrði vaUnn. Þetta hefur oftar en ekki kostað
mikinn titring og plott, þar sem allir vilja
koma sínu fólki að. Nú hefur hins vegar verið
ákveðið að auglýsa eftir fólki til setu í nefnd-
inni og verður spennandi að sjá hver við-
brögðin verða. Félag kvikmyndagerðarmanna
fagnar þessum nýju vinnubrögðum og hvetur
aUa sem telja sig hafa hæfileika og smekk til
að velja frambærilegustu kvikmyndaverkefnin
úr þeim hundruðum umsókna sem berast
Kvikmyndasjóði, til að sækja um starfið.
œ r i Ar i -
Marga koll-
steypuna fara
menn á lífsleið-
inni, og stundum
ærið stórbrotnar
án þess að átta sig
á því sjálflr. Þegar
ég las í morgun
viðtal við þig í
blaði FK Landi &
sonum, rifjaðist
upp fyrir mér sú
U'ð er Ari Kristins-
son átti ekki orð til
að lýsa andúð sinni
á konsúlöntum
„sem væru til þess
eins að láta þá sem
geta ekki búið til kvikmyndir, gera það -
þótt ljóst væri frá upphafi að út úr því kæmi
ekki neitt nema rugl" svo ég vitni nú eftir
minni í þann Ara Kristinsson sem ég sat eitt
sinn með í stjóm SÍK í de gode gamle.
En þar sem myndin með viðtalinu sann-
færði mig um að hér væri á ferðinni sá Ari
sem ég þykist þekkja, ákvað ég að senda
þér fáeinar h'nur til umhugsunar. Kveikjan
að þeim er eins og ég sagði, að nú les ég í
Landi & sonum innfjálgt viðtal við þig um að
Dag Alveberg hafi gert stjórn Kvikmynda-
sjóðs tilboð um taka þátt í því að „bæta ís-
lensk handrit". Og ef marka má orð þín í
viðtalinu, þá ert þú með stjömur í augunum
af hrifningu yflr tilboði þessa djúpsæja hst-
unnanda og étur upp, að „það séu handrit-
in sem séu lang veikasti hlekkurinn í ís-
lenskri kvikmyndagerð" - en Ari, hvað með
special effektana sem Hollywood býr til, eða
alþjóðlegar stórstjörnur, eða þá heims-
frægu leikstjórana - vantar ekki líka þessa
hlekki, eða eru það „þessir hlekkir" sem
við íslenskir kvikmyndagerðarmenn erum
að sækjast eftir? Vantar okkur ekki það eitt
að búa til handrit að markaðsstöðluðum
myndum eins og þeir í Ameríku, eða er til-
gangurinn með íslenskri kvikmyndagerð
kannski einhver annar? En komum nánar
að því síðar og snúum okkur fyrst að viðtal-
inu.
Nú á sem sagt að kenna handritunum
um. Einu sinni var það skortur á undirbún-
ingi. Svo voru veittir undirbúningsstyrkir,
þar til ekki mátti heyra undirbúningsstyrk
nefndan. Og nú eru handritin orðin synda-
selurinn. Og þeim á að bjarga með því að
„þróa" þau. Dettur þér ekki í hug, þegar þú
gleyptir þessa djúpsæju speki hráa, að
handrit tengist því að einhverju leyti að
menn hafi eitthvað að segja, hggi eitthvað á
hjarta, hafl sýn? Þú veist ósköp vel að þú
getur lært að lesa nótur og þróað þamt lest-
ur út í hið óendanlega, en þú lærir ekki að
verða músikalskur - það er vöggugjöf - og
án þeirrar vöggugjafar engin tónsköpun. Og
heldur þú Ari, að handritið að ágætri mynd
eins og Bömum náttúmnnar hefði orðið
lega að þeir sem hafa laun af þvi að kenna
mönnum að skrifa eftir stöðluðum smekk,
bæti íslenskt höfundarverk? Á íslenskt höf-
undarverk að snúast um það að gera út á
vondan smekk útlendra sölumanna sem
kaupa sjálfumglaða leikstjóra til að sýna fs-
lendinga sem skrýtna útkjálkabúa og fúrðu-
fugla og stíla allt upp á aulahúmor; þú svar-
ar í viðtalinu og segir að svoleiðis gúmmela-
de seljist eins og sannast með jafn „þró-
uðu“ verki og Cold fever. Er það kannski
tilgangurinn að þróa fleiri kalda fi'vera eða
er tilgangurinn kannski meiri og stærri en
að snobba niður á við. Kannski hefðu Böm
náttúrunnar náð að verða einhverskonar
kaldur fíver með „þróun". Ef Stjórn kvik-
myndasjóðs ætlar að eltast við gulrótina,
„þróun handrita", svo Norræni sjóðurinn
komist þannig hjá raunverulegum styrkjum
til íslands, ætlar þú þá af öll-
um mönnum að vera sá ein-
feldningur að gapa gleiðast við
henni? Sé einhver réttlæting
fyrir kvikmyndagerð á íslandi
á tslensku, - ég tek fram á ís-
lensku -, þá er það vegna þess
að kvikmyndin vill skoða líf
okkar og sögu - sýna okkur í
spegh hvað það er að vera ís-
lendingur og lifa á íslandi. Aht
tal um „þróun" sem eflaust
þarf þar sem kvikmyndir eru
einungis gerðar til að eltast við
smekk fjölþjóðlegs markaðar
eða svara ákveðinni iðnaðareft-
irspum, er vonandi eitthvað sem á ekki eftir
að sýkja íslenska kvikmyndagerð meir en
gerst hefur nú þegar. Og þú hefur sjálfur
talað um að þessir atvinnubótaþegar sem
hafa laun af því að leika handritasérfræð-
inga með því að segja öðrum hvernig þeir
eigi að skrifa (venjulega vegna þess að þeir
fá ekki sjálfir vinnu við að skrifa og enginn
vih handritin þeirra), séu til þess eins að
steypa aht í sama mótið. Iðnaður framleiðir
vörur sem eru sérstaklega hannaðar til að
þjóna stöðluðum markaðssmekk. En eðh
listaverks hlýtur að ganga í berhögg við
slíka staðla - svo fúh ástæða er til að velta
fyrir sér hvort „þróun" er ekki hrein firra,
hvernig sem á hana er htið.
Allir sem vita vilja, vita að handrit sem
eitthvað erindi við okkur, verður aðeins til
vegna sögumanns sem þekkir íslenskt líf og
hggur eitthvað á hjarta og hefúr frásagnar-
gleði til að segja sína sögu. AUt hitt er plat -
þ.e.: iðnaður sem kemur kvikmyndalist
ekkert við. Og þá emm við kannski komnir
að kjarna málsins. Erum við að biðja um
Ust eða iðnað. Og ef iðnað, þá iðnað sem á
að lapa sig að smekk erlendra markaða og
lýsa Islandi á þann hátt sem markaðurinn
vUl og feUur honjim í geð? Þessari spurn-
ingu er ekki varpáð fram af einhverjum ís-
KAIDIR FÍVERAR EFTÍR PÖNTVN?: Hrafn
Gunnlaugsson gerir m.a. ColdFever að
umtalsefní í opnu bréfi sínu.
lenskum þjóð-
ernishroka,
enda ekkert
fjær mér, held-
ur verður ekki
hjá því komist
að þjóð sem á
sér sérstaka
men ningu,
spurji sjálfa sig
að því hvort
hún kæri sig yf-
irleitt um að hfa
sínu eigin
menningarlífi
og telji sig hafa
efni á því. Ef
dæma ætti eftir
afstöðu ís-
lenskra stjómvalda er svarið nei og ekki á
ég von á að sú stefna breytist, þegar menn
tala eins og þú gerir í viðtalinu. Hugljómun
þín er nánast ömgg leið til að ganga endan-
lega af íslenskri kvikmyndagerð dauðri.
Forsendan fyrir því að fé almennings sé lagt
í kvikmyndagerð hlýtur að vera sú, að sú
kvikmyndagerð komi almenningi við.
Satt best að segja held ég þú hafir farið
út í kvikmyndagerð með annað fyrirheit í
huga en búa tU slíkan iðnað. En kannski ert
þú orðinn svo mæddur eftir aUar svaðUfar-
irnar og fjárhagserfiðleikana við að kvik-
mynda sumar þær stórgóðu myndir sem þú
hefur gert öðmm mönnum betur, að þú vUt
bara reyna að hfa þetta af þótt framleiðslan
sé eins fjani því fyrirheiti og hugsast getur -
ef svo er, þá er það sorglegt. Og þér verður
aUra síst einum kennt um að ástandið er
orðið þannig.
Og svona að lokum. Ég
hélt þú vissir sjálfur að engir
gera ömurlegri myndir en
Norðmenn, og engir eyða
meira fé í þróun handrita.
Það skyldi þó ekki vera sam-
band þarna á milli. Það
skyldi þó ekki vera að hver
einasta frumleg hugmynd
sem fæðist í Noregi sé hökk-
uð svo rækUega í spað vegna
skyldukröfu um þróunar-
ferh, að hún er orðin að út-
þynntu stöðluðu þróunar-
sulli, sem tryggir lægsta sam-
nefnara í hverju atriði, loksins þegar ráðist
er í að framkvæma hana. Að vísu man ég
eftir einni norskri mynd sem hafði þokka-
legt handrit, Leiðsögumanninum í leik-
stjórn norsks Sama, en sú mynd var eftir-
prentun af íslenskri mynd, svo það er
kannski ekki alveg að rnarka. En bvernig
skyldi íslenska frummyndin hafa htið út ef
handrit hennar hefði verið þróað af norsk-
um spekingum. Hefðu víkingamir ekki orð-
ið fuh hvítir?
Ég gæti skrifað miklu lengra mál um
þetta, en ég læt hér staðar numið og vona
að jafn góður listamaður og þú ert, og ég
þekki úr ánægjulegu samstarfi, muni átta
þig á því plati sem er á ferðinni. Við gætum
alveg eins trúað því í einfeldni okkar að það
sem sé að íslenskri kvikmyndagerð sé að
verja þurfi fé í að þróa leikara til að verða
heimsfrægar Hollywoodstjömur og þróa ís-
lenska specialeffekta til fulls og helst jafn-
fætis Hohywood til að geta látið Heklu gjósa
eftir pönútn. En jafnvel þó að það tækist og
hér yrðu framleiddir hundrað kaldra fívera,
þá er spumingin samt, er það tilgangurinn
með íslenskri kvikmyndagerð?
Gangi þér svo vel í allri framú'ð.
ATHUGASEMD RITSTJÓRA:
Ara Kristinssyni vargefinn kostur á að
svara bréfi Hrafns í þessu tölublaði, en
vegna mikilia anna hans mun svar hans
bíða nœsta blaðs.
Gísli Snœr Erlingsson
LaiKld&?>TOr 3