Land & synir - 01.10.1996, Qupperneq 6

Land & synir - 01.10.1996, Qupperneq 6
mun einkenna Kvikmyndahátíð Reykjavíkur sem haldin verður ífyrsta sinn dagana 23. október - 3■ nóvember nk. Guðrún Edda Þórhannesdóttir, starfs- maður hátíðarinnar, gafHildi Loftsdóttur upp helstu útlínurnar. „Kvikmyndahátíð Reykjavíkur er orðin sjálfseignarstofnun, og er haldin í fyrsta skipti sem slík. Þetta er þó í tólfta skipti sem kvik- myndahátíð er haldin í Reykjavík, en hefur þá alltaf verið haldin annað hvert ár sem hluti af listahátíð. Hún hefur á stefnuskrá sinni að gerast árlegur viðburður, og bjóða þá upp á framúrskarandi myndir, og reyna um leið að fá mjög þekkta og áhugaverða gesti tengda myndunum til landsins. Markmiðin eru að efla almenna þekkingu og áhuga á kvikmyndum og kvikmyndagerð. Reynt verður að leggja á- herslu á unga fólkið, að það kynnist fjöl- breytni kvikmyndalistarinnar, og að þeir til- einki sér víðari skilning á kvikmyndalistinni og myndlestri sem í henni felst. Kvikmyndahá- tíðin mun verða vettvangur fyrir samskipti inn- lendra og erlendra aðila kvikmyndaiðnaðar- ins. Óskandi væri að með þessum árlega við- burði muni skilningur á mikilvægi íslenskrar kvikmyndagerðar aukast, sem og virðing á- horfenda fyrir menningarsamfélum sem þau munu kynnast í gegnum myndimar. Reykjavíkurborg og Menntamálaráðuneytið styrkja kvikmyndahátíð Reykjavíkur, en að henni standa Félag kvikmyndagerðarmanna, Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda, Samtök kvikmyndaleikstjóra og Félag ís- lenskra leikara, sem öil leggja til sitt peninga- lega framlag. Nú er einnig verið að vinna í því að finna styrktaraðila, sem munu kaupa það auglýsingapláss sem er á undan kvikmynda- sýningunum. Öll kvikmyndahús borgarinnar taka þátt í hátíðinni, þótt Regnboginn verði miðstöð hátíðarinnar í ár. Það fyrirkomuiag verður ömgglega mjög gott, í stað þess að ein- staka kvikmyndahús séu að halda sjálfstæðar hátíðir og skapa þar með samkeppni milli að- ila sem eiga sömu hagsmuna að gæta. Myndirnar sem við höfum í huga að bjóða upp á þetta árið, eru góð fyrirmynd að því sem koma vill. Þetta eru allt myndir sem hafa ann- að hvort unnið til verðlauna á öðrum kvik- myndahátíðum eða vakið athygh víða. Þar má nefna fremstar í flokki tvær myndir eftir Way- ne Wang sem Paul Auster skrifaði handritin að; Blue in the Face og Smoke. Það er ef- laust margur kvikmyndaunnandinn að bíða eftir þeim. Harvey Keitel leikur í þeim báðum, og er verið að reyna að fá hann til að verða einn af gestum hátíðarinnar, en það hefur reyndar ekki fengist staðfesting á því ennþá. Það yrði mjög gaman þar sem hann er mjög virtur og vinsæll leikari sem flestir þekkja, og einnig þar sem hann leikur einnig í annari mynd á hátíðinni Ulysse’s Gaze eftir virtasta kvikmyndaleikstjóra Grikklands Theo Ang- elopoulus. Þeir gestir sem hafa geflð ákveðið svar við komu sinni hingað eru Hal Hardey og eigin- kona hans, ásamt Mika Kaurismáki og konu hans Piu Tikka. Tvær myndir verða sýndar eft- ir Hal Hartley Flirt og Amateur, og er sú fyrr- nefnda í raun þrjár stuttmyndir eftir hann. Mika Kaurismáki er með mynd sína Condition Red og kona hans Pia, sem einnig er leikstjóri, kynnir sig með myndinni The D- aughters of Yemanja. Við erum einnig að reyna að útvega nýjustu mynd Aki Kaurismáki Drifting Clouds, en það reynist hálf erfitt. Sú hugmynd hefur komið upp að halda Memori- um um finnska leikarann Matti Pellonáá, og myndum við þá reyna að fá myndirnar The Worthless '82 eftir Mika og La Vie de Bohéme ‘92 eftir Aki, en Matti lék í þeim báðum. Þetta árið ædum við að beina augum okkar að Noregi, og þeirri grósku sem orðið hefur í kvikmyndagerð þarlendis undanfarin ár. Það- an koma sex leikstjórar og kynna myndirnar sínar. Þar á meðal má nefna Ti Kniver i Hjer- tet eftir hinn unga og efttilega leikstjóra Mari- us Holst, en þessi fyrsta kvikmynd hans í fúllri lengd var talin , af þarlendum gagnrýnendum, mesta kvikmyndaafrek vetrarins’94-’95. Norski kvikmyndasjóðurinn hefur líka verið mjög duglegur við að veita fé í stuttmynda- gerð, og er ædunin að við fáum úrval noskra stuftmynda með. Af myndunum í fúllri lengd hefur víst myndin Zero Kelvin eftir Hans Petter Moland vakið mesta athygli. Það er gaman að segja frá því að allir þrír aðalleikarar myndar- innar hlutu verðlaunin Best Actors á San Sebastian hátíðinni. Einn þeirra, Stellan Skaarsgard, leikur einnig í kvikmyndinni Breaking the Waves eftir lars von Trier. Hún hlaut Grand Prá á hinni virtu kvikmyndahátíð í Cannes í maí fyrr á þessu ári, og er ein af þeim myndum sem við erum einna hreyknust af að kynna á þessari hátíð. Eftir þessa upptalningu mína mætti kannski draga þá ályktun að norrænar myndir séu í fyrirrúmi hjá okkur, en svo er reyndar ekki. Mér flnnst einstaklega gaman að breiddin í kvikmyndavalinu sé svona mikil, og ekki ein- ungis hvað varðar stíl og stefnur, heldur hka lands- og heimssvæði, og þar með menninga- svæði. Meðal gesta verður t.d. tyrkneskur kvikmyndaleikstjóri Canan Gerede, og mun hún sýna okkur mynd sína Love is Colder then Death. Það er gaman að hún skuh vera að koma hingað til íslands, því næsta prójekt sem hún tekur sér fyrir hendur er að gera mynd um Sophiu Hansen og baráttu hennar. Það er því líklegt að margir munu hafa áhuga á að kynnast þeirri konu betur, jafnvel þótt að mörgum flnnist efnið dáh'tið þreytt. Ég get þó alls ekki verið sammála því, þar sem það hef- ur margoft sannað sig í kvikmyndasögunni að efnið skiptir ekki megin máh í kvikmyndalist- inni, heldur sá persónulegi stíll sem hver leik- stjóri gefur sinni mynd á öllum sviðum. fran á tvo fulltrúa á hátíðinni, þá Jafar Panahi með mynd sýna The White Balloon, sem fer eins og eldur í sinu um kvikmyndahá- tí'ðar í heiminum, og Abbas Kiarostami með mynd sína Under the Olive Trees, en hann er heimsþekktur fyrir að nota alltaf áhugaleikara, og fyrir einstaklega raunsæjan stíl sinn. Svona mætti lengi telja, en ég vil benda fólki á að lesa spjaldanna á milh vandaðan bækhng sem er verið að hanna. Til að höfða til ungs fólks og þeirra sem eru óvanir að horfa á myndir úr listrænni geiranum, auk þes að kynna þeim þær mynd- ir, munum við einnig sýna úrval vandaðra mynda sem mætti kalla meira mainstream. Þar má nefna nokkrar myndir sem voru í keppni í Cannes á þessu ári; Girl 6 eftir Spike Lee, Kansas City efir Robert Altman auk frumraunar A1 Pacinos sem leikstjóra á hvíta tjaldinu Looking for Richard. Tvær myndir eftir sögum Jane Austin verða á hátíðinni; Emma með þeim fögru Gwyneth Paltrow og Gretu Sacchi og Persuasions sem sem sýnd verður í Sambíóunum ásamt Richard III sem hefur að geyma ótrúlegt úrval bæði banda- rískra og enskra leikara. Þar má nefna Maggie Smith, Nigel Hawthorne, Kristin Scott- Thomas, Ian McKellen, Annette Bening og Ro- bert Downey Jr. Sean Penn er með nýja og mjög svo umtalaða mynd sem heitir The Crossing Guard, og svo erum við tíka með nýjustu myndir risanna þriggja Jim Jarmusch, Pedro Almodóvar og Zhang Yimou. Það yrði rosalega gaman að fá einhvern þeirra til að koma, og það er bara aldrei að vita! Klúbbur Kvikmyndahátíðar verður líka starfræktur, eins og verða vill á öllum betri kvikmyndahátíðum. Hann mun tíkast til bjóða upp á umræðustundir með gestum hátíðarinn- ar og Memorium um Krzysztof Kieslowski. Derek Malcolm frá „The Guardian" er mjög þekktur kvikmyndagagnrýndandi. Hann hyggst koma, og verður vafalaust með einstaklega á- hugaverða fyrirlestra. Einar Öm Benediktsson sá um Klúbb Listahátíðar og hann sagði mér reyndar að það væri mjög erfitt að fá fólk til að koma í klúbbinn nema að það sé einhver sýning í gangi, þannig að það mál er allt sam- an í athugun ennþá. Einnig eru uppi áform um að hafa svokall- aðar bíónætur, þar sem úrval mynda verða sýndar alla nóttina. Hátíðin myndi standa fyrir kaffisölu á milli mynda, og um morguninn, að sýningum loknum, myndu allir fá sér morgun- verð saman. Þetta hefur gefist mjög vel í út- löndum þar sem mjög sérstök stemming skap- ast. Ég efast ekki um að þessi hugmynd falli vel í kramið hjá íslenskum ungdómi sem hvort eð er vakir heilu og hálfu næturnar, og verður hún því til að vekja athygli þeirra á hátíðinni. Því miður hafa undanfarnar kvikmyndahá- tíðir ekki gengið nógu vel. Við erum þó mjög bjartsýn og vonumst eftír hátt í 20 þúsund á- horfendum. Á hátíðinni í ár verða fleiri mynd- ir, og ég held örugglega meiri breidd á alla kanta jafnt varðandi myndir og gesti, heldur en áður. Hátíðin mun tíkast til vekja meiri at- hygli þar sem hún er ekki lengur hluti af ann- ari hátíð. Miðað við stuttan undirbúningstíma hefur tekist ótrúlega vei tU, og því vonandi að sem flestir láti sjá sig. Það ættu alla vegana að vera myndir við allra hæfi á dagskrá, og í rauninni eru þetta svo margar myndir að ég veit eiginlega ekki hvernig við eigum að koma þeim öllum fyrir á bara tíu daga prógrammi! En þetta er allt að koma.“ GÓÐIR GESTIR: Frá vinstri: Emily Watson og Stelian Skarsgaard í Breaking the Waves eftir Lars Von Trier; Harvey Keitel sem tóbaksbúdar- eigandínn Auggie Wren í Smoke eftir Wayne Wang og Panl Auster. 6 uana&synir

x

Land & synir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.