Land & synir - 01.04.2001, Blaðsíða 14

Land & synir - 01.04.2001, Blaðsíða 14
þar sem báðir frambjóðendurnir sökuðu færi- bandið í Hollywood um að bjóða uppá mannskemmandi óþverra. Þar áður gaus þessi umræða upp fyrir um tveimur árum, í kjölfar voðaverkanna í smábænum Littleton í Colorado þar sem tveir piltar myrtu fjölda skólasystkina sinna. Beindu þá margir fjölmiðlar, stjómmála- menn og aðrir álitsgjafar ásökunarfingri að ofbeldiskvikmyndum og gáfu í skyn að þær hafi verið undirrótin að hinum hrottalega verknaði. Clinton þáverandi Bandaríkjaforseti slóst í þennan hóp vandlætara þegar hann hélt því fram að “auk þess að merkja þyrfti hveija myndbands- spólu við hæfi að utanverðu, skipti innihald myndbandsins miklu máli sem og þau áhrif sem það hefur á innviði barna okkar”. Forsetinn var vissulega að vísa til þeirrar ábyrgðar sem kvik- myndagerðarmenn bera gagnvart samfélagi sínu, en um leið virtist hann velta upp þeim möguleika að beint samhengi gæti verið milli áhorfs og hegðunar, að óþroskuð böm og ungmenni túlki ofbeldisverk á tjaldi og skjá sem hvatningu til að gera slíkt hið sama. Kvikmyndin "Basketball Diaries" með Leonardo Di Caprio frá árinu 1995 dróst inní þessa umræðu vegna atriðis sem í henni er að fmna, þar sem Di Caprio slátrar skólafélögum sínum í draumi. Aðstandendur myndarinnar eiga einnig í mála- ferlum við fjölskyldur þriggja ungmenna sem myrt voru af 14 ára pilti í Kentucky árið 1997. Fjölskyldumar halda því fram að myndin hafi orðið piltinum innblástur til morðanna. Þegar hinn tæplega þriggja ára gamli James Bulger var myrtur af tveimur strákum í Bretlandi árið 1993 var mikið gert úr því að strákarnir hefðu sótt sitt andlega fóður í hryllingsmyndir á borð við Child’s Play seríuna þar sem sála raðmorðingja flyst yfir í saklausa drengjabrúðu og tekur uppá óskunda. Fljótlega hurfu þessar myndir úr hillum myndbandaleiga og í Bretlandi verða þær um langan aldur tengdar óijúfanlega við hið hryllilega morð. Að horfast í augu við eigið upplegg Þegar harmleikir á borð við fyrrnefnda eiga sér stað spyr fólk sig fyrst af öllu; hversvegna? Og fjölmiðlar telja það auðvitað hlutverk sitt að veita einhver svör, helst skjótt og örugglega. Ofbeldis- kvikmyndir em auðveldur skotspónn. Oft virðast fréttaskýrendur og álitsgjafar leyfa sér að halda að þær verði til í tómarúmi; einhverskonar upp- finning óvandaðra manna til að innprenta æskulýðnum vonda siði og græða á öllu saman. Þó að eitthvað sannleikskorn megi í því finna á köflum og vissulega geti kvikmyndagerðarmenn ekki skorast undan sinni ábyrgð, eru hlutirnir því miður ekki svona einfaldir. Þessar myndir eru skilgetið afsprengi þeirrar menningar sem getur þær af sér. Það verður nefnilega ekki undan því vikist að horfast í augu við þá staðreynd að þær svala þörfum íjöldans sem fer að sjá þær, það er eitthvað í þeim sem á samhljóm djúpt í sálum svo margra okkar. Sé þetta tekið með í reikninginn neyðist fólk til að horfast í augu við eigið upplegg, sem er auðvitað frekar óþægilegt. Það er svo miklu þægilegra að fmna blóraböggul. Flest viljum við forðast að horfast í augu við eigið djúp því þá um leið horfist djúpið í augu við þig. En þegar betur er að gáð er þá ekki þar í rauninni ýmislegt að finna sem illa samræmist almennum boðorðum um guðsótta og góða siði? Við verðum að kannast við þessa þætti í fari okkar allra, líka bamanna okkar, líkt og Bruno Bettelheim bendir á. í kvikmyndunum, sem í öðmm frásagnarformum, finnum við farveg fyrir hinar margvíslegu og mótsagnakenndu tilfinn- ingar okkar. Eða snýst ekki tilveran um leit og val? Því hljótum við að vilja rækta með börnum okkar þann hæfileika að kunna að leita, velja og hafna - og sem mest á eigin forsendum. Stutt saga um Roy Rogers En kannski, ég segi bara kannski, hafa siðapostularnir rétt fyrir sér. Vegna hinnar afdráttarlausu náttúm miðilsins hættir okkur svo oft til að taka hann "bókstaflega". Fyrir nokkmm árum var ég einmitt viðstaddur sýningu á fyrmefndri kvikmynd Friðrik Þórs Friðrikssonar, Bíódagar, í kvikmyndahúsi hér í bæ. Um myndina miðja er atriði þar sem ungir bíógestir horfa á Roy Rogers á bíótjaldinu. Upptökur þessa atriðis fóru fram í Gamla bíói. Þetta fór fyrir brjóstið á miðaldra bíógesti sem sat fyrir aftan mig og fussaði: Iss, Roy Rogers var aldrei sýndur í Gamla bíói, hann var alltaf í Austurbæjarbíói! Hvað á maður að gera við svona fólk? umi upplýsingar, þé er.aoo Fagtækjadeild r staðurinn. Við bjóðum atvfnnutæki ■ fagmanna víð kvikmyndaframleiðslu, vörumerki sem eru heimsþekkt að gaeðum og áreiðanleika. • Avid Fagtækjadeild aco SONY Panasonic hugsaöu | skapaðu | upplifðu Skaftahlfð 24 ■ Sfml 530 1800 • Fax 530 1801 ■ www.apple.ls 14 Land & synir

x

Land & synir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.