Land & synir - 01.04.2001, Síða 14
þar sem báðir frambjóðendurnir sökuðu færi-
bandið í Hollywood um að bjóða uppá
mannskemmandi óþverra. Þar áður gaus þessi
umræða upp fyrir um tveimur árum, í kjölfar
voðaverkanna í smábænum Littleton í Colorado
þar sem tveir piltar myrtu fjölda skólasystkina
sinna. Beindu þá margir fjölmiðlar, stjómmála-
menn og aðrir álitsgjafar ásökunarfingri að
ofbeldiskvikmyndum og gáfu í skyn að þær hafi
verið undirrótin að hinum hrottalega verknaði.
Clinton þáverandi Bandaríkjaforseti slóst í
þennan hóp vandlætara þegar hann hélt því fram
að “auk þess að merkja þyrfti hveija myndbands-
spólu við hæfi að utanverðu, skipti innihald
myndbandsins miklu máli sem og þau áhrif sem
það hefur á innviði barna okkar”. Forsetinn var
vissulega að vísa til þeirrar ábyrgðar sem kvik-
myndagerðarmenn bera gagnvart samfélagi sínu,
en um leið virtist hann velta upp þeim möguleika
að beint samhengi gæti verið milli áhorfs og
hegðunar, að óþroskuð böm og ungmenni túlki
ofbeldisverk á tjaldi og skjá sem hvatningu til að
gera slíkt hið sama.
Kvikmyndin "Basketball Diaries" með Leonardo
Di Caprio frá árinu 1995 dróst inní þessa umræðu
vegna atriðis sem í henni er að fmna, þar sem Di
Caprio slátrar skólafélögum sínum í draumi.
Aðstandendur myndarinnar eiga einnig í mála-
ferlum við fjölskyldur þriggja ungmenna sem myrt
voru af 14 ára pilti í Kentucky árið 1997.
Fjölskyldumar halda því fram að myndin hafi orðið
piltinum innblástur til morðanna.
Þegar hinn tæplega þriggja ára gamli James
Bulger var myrtur af tveimur strákum í Bretlandi
árið 1993 var mikið gert úr því að strákarnir hefðu
sótt sitt andlega fóður í hryllingsmyndir á borð við
Child’s Play seríuna þar sem sála raðmorðingja
flyst yfir í saklausa drengjabrúðu og tekur uppá
óskunda. Fljótlega hurfu þessar myndir úr hillum
myndbandaleiga og í Bretlandi verða þær um
langan aldur tengdar óijúfanlega við hið hryllilega
morð.
Að horfast í augu við
eigið upplegg
Þegar harmleikir á borð við fyrrnefnda eiga sér
stað spyr fólk sig fyrst af öllu; hversvegna? Og
fjölmiðlar telja það auðvitað hlutverk sitt að veita
einhver svör, helst skjótt og örugglega. Ofbeldis-
kvikmyndir em auðveldur skotspónn. Oft virðast
fréttaskýrendur og álitsgjafar leyfa sér að halda að
þær verði til í tómarúmi; einhverskonar upp-
finning óvandaðra manna til að innprenta
æskulýðnum vonda siði og græða á öllu saman. Þó
að eitthvað sannleikskorn megi í því finna á
köflum og vissulega geti kvikmyndagerðarmenn
ekki skorast undan sinni ábyrgð, eru hlutirnir því
miður ekki svona einfaldir. Þessar myndir eru
skilgetið afsprengi þeirrar menningar sem getur
þær af sér. Það verður nefnilega ekki undan því
vikist að horfast í augu við þá staðreynd að þær
svala þörfum íjöldans sem fer að sjá þær, það er
eitthvað í þeim sem á samhljóm djúpt í sálum svo
margra okkar.
Sé þetta tekið með í reikninginn neyðist fólk til
að horfast í augu við eigið upplegg, sem er
auðvitað frekar óþægilegt. Það er svo miklu
þægilegra að fmna blóraböggul. Flest viljum við
forðast að horfast í augu við eigið djúp því þá um
leið horfist djúpið í augu við þig. En þegar betur er
að gáð er þá ekki þar í rauninni ýmislegt að finna
sem illa samræmist almennum boðorðum um
guðsótta og góða siði?
Við verðum að kannast við þessa þætti í fari
okkar allra, líka bamanna okkar, líkt og Bruno
Bettelheim bendir á. í kvikmyndunum, sem í
öðmm frásagnarformum, finnum við farveg fyrir
hinar margvíslegu og mótsagnakenndu tilfinn-
ingar okkar. Eða snýst ekki tilveran um leit og val?
Því hljótum við að vilja rækta með börnum okkar
þann hæfileika að kunna að leita, velja og hafna -
og sem mest á eigin forsendum.
Stutt saga um Roy Rogers
En kannski, ég segi bara kannski, hafa
siðapostularnir rétt fyrir sér. Vegna hinnar
afdráttarlausu náttúm miðilsins hættir okkur svo
oft til að taka hann "bókstaflega". Fyrir nokkmm
árum var ég einmitt viðstaddur sýningu á
fyrmefndri kvikmynd Friðrik Þórs Friðrikssonar,
Bíódagar, í kvikmyndahúsi hér í bæ. Um myndina
miðja er atriði þar sem ungir bíógestir horfa á Roy
Rogers á bíótjaldinu. Upptökur þessa atriðis fóru
fram í Gamla bíói. Þetta fór fyrir brjóstið á
miðaldra bíógesti sem sat fyrir aftan mig og
fussaði: Iss, Roy Rogers var aldrei sýndur í Gamla
bíói, hann var alltaf í Austurbæjarbíói!
Hvað á maður að gera við svona fólk?
umi
upplýsingar, þé er.aoo Fagtækjadeild r
staðurinn. Við bjóðum atvfnnutæki ■
fagmanna víð kvikmyndaframleiðslu,
vörumerki sem eru heimsþekkt að
gaeðum og áreiðanleika. •
Avid
Fagtækjadeild aco
SONY Panasonic
hugsaöu | skapaðu | upplifðu
Skaftahlfð 24 ■ Sfml 530 1800 • Fax 530 1801 ■ www.apple.ls
14 Land & synir