Morgunblaðið - 15.09.2017, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2017
Á
rið 1924 hittust þau Eric Kent og
Dorothy Curwen en bæði störfuðu
þau á Savile Row, hinni nafntoguðu
götu í London hvar færustu klæð-
skerar borgarinnar halda til. Þau
felldu hugi saman og ákváðu að hefja saman
búskap og rekstur. Með skynsemina að vopni
byrjuðu þau smátt og fyrirtæki þeirra, Kent
& Curwen, stofnað 1926, einbeitti sér að
hönnun og framleiðslu hágæða hálsbinda til
að byrja með. Gæðin spurðust þó fljótt út og
þremur árum síðar sá fyrirtækið tveimur af
frægustu háskólum Bretlandseyja, Cam-
bridge og Oxford, fyrir hálsbindum.
Háskólar, herinn og ... krikket
Vegur litla fyrirtækisins hélt áfram að vaxa
og árið 1930 notuðu allar herdeildir breska
hersins hálsbindin frá Kent & Curwen.
Skötuhjúin gátu loks leyft sér þann munað að
ganga í það heilaga árið 1932, og það sem
meira er, þau höfðu ráð á
því að festa kaup á prjóna-
verksmiðju sem
staðsett var í
London. Þar
með gátu þau
fært út kví-
arnar út fyr-
ir háls-
bindin, og ekki
leið á löngu
áður en frá
þeim kom nýj-
ung sem ekki
hafði sést áður
– krikket-
peysur. Peys-
urnar vöktu
strax athygli
enda gull-
fallegar. Það sem
þá var nýjung er í
dag sígild hönnun –
hvít peysa með kað-
laprjóni á framhlið-
inni og dimmbláu
V-hálsmáli – og er
notuð sem sígild
tískuvara langt út
fyrir iðkun krikkets.
Alla leið í Ósk-
arsverðlaunin
Næstu áratugina
hélt Kent & Cur-
wen áfram að vaxa
og varð vinsælt
meðal Hollywood-leikara og þotuliðsins í Evr-
ópu. Michael Caine, meðlimir Rolling Stones
og fleiri klæddust merkinu og árið 1981 má
segja að það hafi slegið í gegn á hvíta tjaldinu
þegar merkið lagði til íþróttafatnað með
klassísku yfirbragði til kvikmyndarinnar
Chariots of Fire; myndin hreppti fern Ósk-
arsverðlaun, þar á meðal sem Besta mynd ár-
ins og Bestu búningar, vel að merkja. Ári síð-
ar varð Kent & Curwen opinber
samstarfsaðili Wimbledon-mótsins í tennis.
Nýjar verslanir voru opnaðar, meðal annars á
Rodeo Drive í Beverly Hills.
Endurreisn með Beckham
Síðan tóku við kyrrlátari ár, þar sem merk-
ið átti undir högg að sækja. Hvorki grunge-
tíska 10. áratugar síðustu aldar né heldur
neo-tech stíll fyrstu ára 21. aldarinnar virt-
ust sérstaklega áhugasöm um klassískan
fatnað innblásinn af íþróttum. En hagurinn
vænkaðist loks á ný árið 2015 þegar ekki
minni maður en
David Beckham
gekk til liðs við
Kent & Curwen
sem „Brand Am-
bassador“, hug-
myndasmiður og
síðast en ekki síst,
hluthafi.
Síðastliðið vor,
tæpri öld eftir að fyr-
irtækið var stofnað, er
Kent & Curwen komið
á sinn stað aftur, á
heimavöll hins enska
hágæðafatnaðar við
Savile Row í London.
Enn í dag sjást áhrifin frá
því í árdaga merkisins því
krikket, rugby og herinn
endurspeglast greinilega í
einstaka flíkum í nýjustu
línu merkisins. Framtíðin
virðist björt fyrir Kent &
Curwen enda hefur fátt
klikkað sem David Beck-
ham hefur lagt lag sitt
við til þessa.
jonagnar@mbl.is
Beckham, Kent & Curwen
Það er kunnara en frá þurfi að segja að fyrrverandi knattspyrnukappinn David Beckham er með helstu áhrifavöldum
síðustu ára þegar kemur að tísku og stíl herramanna. Þegar út spurðist að hann væri orðinn meðeigandi í fornfrægu
ensku fatamerki vakti það því verðskuldaða athygli. Fatamerkið sem um ræðir er nefnilega ekki síður áhugavert.
Herrar Beckham og Daniel Kearns, aðalhönnuður og listrænn stjórnandi Kent & Curwen.