Feykir - 21.08.2014, Blaðsíða 11
31/2014 Feykir 11
Þórdís Inga Pálsdóttir sigraði í slaktaumatölti
í ungmennaflokki á Norðurlandamóti íslenska hestsins 2014
„Ótrúleg upplifun!“
Þórdís Inga Pálsdóttir er ung
og efnileg hestakona frá
Flugumýri í Skagafirði, dóttir
Eyrúnar Önnu Sigurðardóttur
og Páls Bjarka Pálssonar.
Þórdís Inga sigraði í
unglingaflokki á Landsmóti
hestamanna 2014 sem haldið
var á Hellu í byrjun júlí og
fékk í framhaldinu boð um að
taka þátt í Norðurlandamóti
íslenska hestsins sem fór fram
í Herning dagana 30. júlí til
3. ágúst sl.
Þórdís Inga kemur úr fjölskyldu
þar sem allt snýst í raun um
hesta og hestamennsku og segir
hún því áhugann á hestum hafa
verið til staðar frá því hún man
eftir sér. „Foreldrar mínir starfa
báðir heima við búið og öll mín
systkini hafa stundað hesta-
mennsku þannig að nálægðin
við hestinn varð í raun bara
partur af uppeldinu og fjöl-
skyldulífinu. Samt vil ég taka
það fram að áhuginn fyrir því að
vinna með hestana hefur alveg
þurft að koma frá okkur af
fyrrabragði og ég held að það
hafi mest verið hestunum sjálf-
um að þakka hversu áhugasöm
við systkinin öll erum.
Í byrjun hafði ég trausta
tamda hesta eins og Tappi og
Ketill, hestar sem afi gaf Ástu og
Eyrúnu systur og þær tömdu
VIÐTAL
Guðrún Sif Gísladóttir
frá Ólafsvík mikið reyndan
keppnishest og Kjarval, ungan
og efnilegan fola. Þessir tveir
gæðingar hafa kennt mér ótrú-
lega mikið hvor á sinn hátt og
með þeim fór ég að ná árangri á
keppnisvellinum.“
Þórdís Inga hefur náð glæsi-
legum árangri á keppnisvellinum
og hefur hún ásamt Kjarval
verið í A-úrslitum á síðustu
þremur Landsmótum, fyrst í
barnaflokki á Vindheimamelum
árið 2011 og lentu þá í 4. sæti. Á
LM í Reykjavík árið 2012 voru
þau í 3. sæti og nú í sumar
sigruðu þau unglingaflokkinn á
LM á Hellu og var henni í kjöl-
farið boðin þátttaka á Norður-
landamóti íslenska hestsins sem
fór fram í Herning í Danmörku
dagana 30. júlí til 3. ágúst sl.
„Eftir Landsmót var stefnan sett
á Íslandmót með Kjarval. Við
Kjarval höfum aldrei verið í
betra formi saman og því var
markmiðið skýrt. Þannig að ég
lét Norðurlandamótið fara
svolítið fram hjá mér. En svo
fékk ég óvænt símtalið þar sem
mér var boðin þátttaka og það
var bara allt of dýrmætt tækifæri
til að sleppa því. Hesturinn
Meyvant frá Feti hafði verið
varahestur fyrir danska lands-
liðið en eigandinn Sasha
Summer hafði eignast hann
fyrir ári síðan hjá Jóhanni
Rúnari Skúlasyni. Þau buðu því
hestinn til keppni fyrir hönd
íslenska landsliðsins sem
aðalhest og þannig kom það til
að ég keppti á honum. Það var í
rauninni Jóhann sem benti á
mig sem mögulegan knapa fyrir
hestinn og á ég honum og Stínu
kærustu hans mikið að þakka
fyrir þetta einstaka tækifæri og
alla aðstoðina úti.“
Þórdís Inga segir upplifunina
úti fyrst og fremst hafa verið
ótrúlega skemmtilega og mikið
hafi farið í reynslubankann.
„Það er alveg rosalegur heiður
að fá að keppa á svona góðum
hesti fyrir Íslands hönd. Það
sem gerði þetta líka svona
skemmtilegt var hvað það var
góður liðsandi í íslenska liðinu,
það voru allir tilbúnir til að
hjálpa og gera hvor fyrir annan
og mikil stemming á mótinu.
Liðstjórarnir Hugrún og Páll
Bragi í Austurkoti voru frábær
og héldu vel utan um liðið sem
skipaði 22 manns, þar af vorum
við átta sem kepptum í ung-
mennaflokkum. Við Ásdís Ósk
Elvarsdóttir á Skörðugili vorum
yngstar og kepptum sem ung-
menni þar en keppum sem
unglingar hér heima. Veðrið var
frábært sól og mikill hiti, 26- 30
gráður og það eitt var líka
svolítið nýtt fyrir mann að þjálfa
og keppa við þær aðstæður,“
segir Þórdís Inga.
Tryggði sigurinn
með 7,80 í einkunn
Þórdís Inga tók þá ákvörðun að
fara út um leið og hún var valin
í liðið til að kynnast hestinum
sem allra best. „Ég fór út 21. júlí
og það þýddi að ég varð að
sleppa því að keppa á Íslands-
mótinu eins og ég hafði stefnt að
því það var helgina fyrir
Norðurlandamótið. Þrátt fyrir
að þurfa að sleppa Íslandsmótinu
þá tel ég að þetta hafi verið
hárrétt ákvörðun. Þannig fékk
ég góðan tíma til að undirbúa
mig og Meyvant fyrir mótið.
Vikuna fyrir mótið var ég hjá
Jóhanni og Stínu á Slippen þar
sem þau búa, til að kynnast og
þjálfa Meyvant sem best fyrir
keppnina og þar var líka Sasha
eigandi hans en hún vildi fylgja
hestinum eftir á mótinu til að
læra af því.“
Þórdís Inga keppti í tveimur
greinum á Meyvant á mótinu, í
slaktaumatölti og fjórgangi.
Eftir forkeppni í fjórgangi var
niðurstaðan 9. sæti í B-úrslitum,
Þórdís Inga segir það ásættanlegt
miðað við að það hafi verið
aukagrein hjá Meyvant, enda
gríðarlega sterkir keppendur og
mjög jöfn keppni. „Síðan kom
forkeppnin í slaktaumatölti og
eftir hana vorum við tvö jöfn, ég
og Meyvant og Kristian og
Eldfari, en hann keppti fyrir
danska liðið, með einkunnina
7,00. A-úrslitin voru á lokadegi
mótsins, og það var ótrúleg
upplifun að keppa í þeim. Ég
leiddi eftir fyrstu tvö atriðin,
hægt tölt og frjálsu ferðina á
tölti. Slaki taumurinn gekk
frábærlega, Meyvant var mjög
öruggur og þrátt fyrir að það
hafi verið mikið kapp og margir
keppendur inni á vellinum þá
gekk sýningin vel og ég náði að
tryggja sigurinn með bestu
einkunn 7,80 sem er besta
einkunn sem hesturinn hefur
farið í til þessa sem var auðvitað
mjög gaman fyrir mig. Mótið
allt var frábær reynsla fyrir mig
og mér fannst mjög gaman að
ná að þakka eiganda Meyvants
fyrir lánið með því að ná þessum
árangri á honum.“
Þórdís Inga mun hefja nám á
félagsfræðibraut við FNV í
haust ásamt því að stunda
hestamennskuna áfram af krafti.
„Ætli við Kjarval munum ekki
láta sjá okkur á einhverjum
vetrarmótum og jafnvel kem ég
með eitthvað nýtt og spennandi
úr hesthúsinu heima,“ segir
Þórdís Inga að lokum.
sjálfar, þeir voru ekki endilega
góðir keppnishestar en þeir
kenndu mér margt og voru
öruggir sem skiptir öllu máli í
byrjun. Með meiri getu og áhuga
fór ég að ríða á meiri afkasta
hrossum eins og Dropa og Boða
frá Flugumýri sem eru miklir
gæðingar og Val frá Ólafsvík.
Hluti af hestamennskunni
hér hefur verið að taka þátt i
keppni á hinum ýmsu vetrar og
félagsmótum þar sem það skipti
bara máli að keppa og hafa
gaman. Fyrstu alvöru viður-
kenninguna fékk ég þegar ég var
sjö ára og þá fór áhuginn að
aukast á því. Seinna var ég svo
heppinn að fá með frekar stuttu
millibili tvo gráa gæðinga, Val
Þórdís Inga og Meyvant á Norðurlandamótinu.
Meyvant og Þórdís Inga við verðlaunaafhendinguna.