Feykir


Feykir - 19.02.2015, Qupperneq 4

Feykir - 19.02.2015, Qupperneq 4
4 7/2015 Markaðssetning á hollustu fiski- bollum með græna skráargatinu Þakkir til AVS rannsóknar- sjóðs í sjávarútvegi vegna styrks til Freddy ehf. til markaðssetningar á sérstökum hollustu fiskibollum. Í kjölfar efnahagshruns á Íslandi árið 2008 tóku lands- menn kipp og beindu sjónum sín- um inn á við í leit að þjóðlegum gildum og menningartengdum sérkennum lands og þjóðar. Upp úr því andrúmslofti verður fyrirtækið Freddy ehf. til en fyrirtækið hefur sérhæft sig í framleiðslu hefð- bundinnar framleiðsluvöru úr fiski með hollustumarkmið að leiðarljósi. Freddy ehf. var og er lítið fyrirtæki sem formlega hóf starfsemi sína á Sauðárkróki í apríl 2010. Fyrirtækið hefur frá upphafi framleitt fiskibollur og markmið þess hefur alltaf verið að markaðssetja gæðavöru úr fiski á góðu verði, að gera hversdagsmat að veislumat, að efla viðhorf fólks til hollustugæða og vekja upp jákvæð viðhorf barna og unglinga til fiskmetis. Áhersla hefur verið frá upphafi á nýnæmi, hreina (græna) vöru með það í huga að efla jákvætt viðhorf fólks til unninna fisk- afurða og þá sérstaklega barna og unglinga. Fyrirtækið stóð enn á brauð- fótum þegar upplýsingar um AVS rannsóknarsjóð í sjávar- útvegi bárust þeim sem að því stóðu í byrjun árs 2012. Sótt var um styrk til markaðssetningar á fiskibollum og þá sérstökum hollustubollum. Fékk umsóknin brautargengi í maí 2012, styrk- upphæð 400.000. Styrkurinn gaf innspýtingu fyrir markaðssetn- ingu fyrirtækisins og er AVS rannsóknarsjóði í sjávarútvegi þakkað hér. Markaðssetningin sem styrknum var ætlað að styðja var hugsuð með skóla og mötu- neyti í huga og var þá sérstaklega horft til nærliggjandi byggðar- laga. Orðið heilsuefling og hollusta er orðið vinsælt í átaki um heilsuvernd og oftar en ekki er talað um heilsueflandi skóla og starfa nokkrir undir því merki. Slíkt er mjög af hinu góða og þá er mikilvægt að verkin tali. Það má segja að niðurstaða verkefnis sé sú að með þessum styrk frá AVS rannsóknarsjóðnum hafi fyrirtækinu gefist tækifæri til að koma sér á framfæri í nær- liggjandi byggðarlögum og víðar og því tekist að marka sér sess á matvælamarkaði. Á þeim fimm árum sem fyrirtækið hefur nú starfað er notkun á græna Skráargatinu frá miðju ári 2013 einn stærsti áfanginn í framleiðslu þess og rekstri. Markmiðasetningu fyrir- tækisins frá upphafi um að geta notað grænt hollustumerki var með því náð. Freddy ehf. var á þessum tíma brautryðjandi meðal íslenskra fyrirtækja í notkun merkisins en ríkisstjórn Íslands skrifaði ekki undir samninga um notkun þess fyrr en í árslok sama ár. Fyrirtækið hefur frá upphafi sérhæft sig í að framleiða vörur sínar með hollustumarkmið í fyrirrúmi, það hefur ætíð lagt sérstaka AÐSENT ÞORGERÐUR ÁSDÍS JÓHANNSDÓTTIR SKRIFAR Gunnar Valgarðsson á Sauðárkróki skrifar Ertu ekki að koma drengur? ÁSKORENDAPENNINN UMSJÓN kristin@feykir.is Ég vil þakka Jóni Ormari vini mínum fyrir áskorunina þótt mér hafi svo sem ekkert litist þannig á að það gæti farið nema illa. Jón hefur aldrei neitað mér um neitt, því varð ég að taka þessari áskorun. Hefur þetta orðið til þess að margt hefur rifjast upp sem legið hefur í láginni varðandi fjárrag og fylgir hér lítilræði. Þetta hófst allt saman þegar ég var ungur og rétt farinn að sitja hest og þá þurfti að koma fé fram til fjalla. Þetta var auðvitað að vori til. Ég er frá Tunguhlíð og þaðan er lagt upp seinnihluta dags. Fyrst var haldið í Gilhaga þar sem var nátthagi. Þá var gott að koma í Gilhaga og svo er enn. Snemma næsta morgun, fyrir þann tíma að sól sést á lofti, er rekið á brekk-una fyrir sunnan og ofan Gilhaga. Þetta er erfiðasti spottinn á leiðinni en þegar komið var upp fyrir brún þar sem hægt var að koma fénu í aðhald og halda því saman var smá hvíld fyrir fé og menn. Svo liggur leið fram Gilhagadalinn og upp úr honum fram á Írafellsflóa. Ekki eru miklar torfærur á þessari leið en nokkuð um ársprænur og læki sem yfirleitt láta ekki mikið yfir sér. En þó hef ég átt eftirminnilega stund hér við Túná. Fyrr á árum var farið með geldfé á fjall og þá venjulega ekki langt liðið á vor. Við vorum fjórir, tveir fullorðnir og tveir stráklingar. Ég hef sennilega verið 10, 11 ára. Snjó hafði ekki tekið upp og miklar leysingar. Þegar komið var að ánni var hún ekki árennileg. Þeir sem eldri voru ákváðu þó að við skyldum reyna að koma fénu yfir úr því sem komið var. Það tókst ekki sem skyldi. Sumar ærnar höfðu sig ekki yfir og flutu niður ána. Þeir sem eldri voru reyndu að bjarga því sem bjargað varð. Við þeir yngri urðum nokkuð skelkaðir og leyst ekki á blikuna. Það tókst þó að ná nokkrum kindum upp á bakkann. Þar var einn gemlingur sem ég átti sjálfur og var hann varla með lífsmarki þegar hér var komið og skilinn þar eftir en kom heill heim um haustið; skírð Túná og var hún langlíf. Rétt er að geta þess að eftir þetta voru menn holdvotir og nokkuð hraktir. Héldum við tveir áfram og komum fénu langleiðina í Buga. Var ég þar í fylgd með frænda mínum Hrófli. Og ekki meira um það. En þá aftur að Írafellsflóanum. Þegar honum sleppir er land heldur á fótinn og stefna tekin á Litlasand og rekstur farinn að þyngjast því þreyta er komin í fé og menn og hesta. Gott þegar yfir hann er komið og fé rennur niður í græna hagana í Bugum. Og nú er komið langt fram á dag og frekar að tala um nótt en kvöld. Þegar allar kindur hafa fundið sín lömb er ekki eftir neinu að bíða heldur halda heim á leið. Hestarnir heimfúsir og okkur miðar vel áfram. Þegar komið er á brúnirnar fyrir ofan Gilhaga er sólin við það að fara á fætur. Sú sjón sem við okkur blasti þarna í morgunsárið er ein fegursta sjón sem ég hef séð og þá var Skagafjörður fallegur. Og var þessi sjón næg umbun fyrir erfiði liðins sólarhrings. Næstu erindi fram á heiði eru göngur. Þær hef ég farið síðan ég var 14 ára. Og mörg eftirminnileg atvik og margar eftirminnilegar persónur sem voru samferðamenn. Fer ég ekki frekar út í það að þessu sinni. En öllum göngum fylgja réttir. Ekki síður eftirminnilegar stundir en í göngum sjálfum. Og rétt að ljúka þessu með minningarbroti frá Stafsrétt. Nóttina fyrr höfðum við átt gistingu í tjaldi við réttina og erum vaktir með miklum hávaða og hrópum snemma morguns. Þá hafði gefið sig girðing við nátthólfin við réttina og safnið rann út með miklum þunga. Allir sem vettlingi gátu valdið snöruðust út og á bak hestum sínum og flestir berbakt. Ekki vildi betur til en svo að þegar farið var að reyna að stöðva fjárstrauminn að féð tók stefnuna vestur yfir á. Það tókst þó að lokum að fara fyrir safnið en hér varð slys. Einhverra hluta vegna fór það svo að fé tók að troðast undir í ánni sem varð til þess að áin stíflaðist. Hluti af fénu komst þó yfir Svartána lítið skaddað. Svo var um smalamenn flesta. En hér segir af einum sem féll af hesti sínum ofan við eina stífluna og svamlaði þar um innanum drukknandi fé er reyndi sem það gat að ná bakkanum. Var lítið um handfestu og föt þyngdu og ekki útséð um úrslit þrátt fyrir margar tilraunir. Þá ber svo við að einn samferðamanna- sem komist hafði í hnakk – ólíkt þeim sem hér segir sögu – kallar af bakkanum þessa setningu um leið og hann sló í og reið burtu: Ertu ekki að koma drengur! Þar sem þessi setning fór í skapsmuni svamlarans reif hann sig upp úr ánni og varð honum til lífs. - - - - - - Ég skora á Önnu Dögg í Tunguhlíð að taka við pennanum. Henni er sjaldnast orða vant. áherslu á gæði hráefnis og ekki síst hefur það fært gamalt handverk, heimagerðar fiski- bollur, í nýjan búning til þess að mæta kröfum og þörfum neyt- enda í nútímasamfélagi, samfél- agi sem gerir auknar kröfur um uppruna matvæla, meðferð þeirra og innihald. Í þessum lokaorðum vil ég því, sem stoltur eigandi fyrirtækisins, setja fram þakkir til allra aðila sem hafa sýnt verkefni þessu áhuga og stuðning með einum eða öðrum hætti. Allur stuðningur og hvatning í orði og á borði er þakkarverður og aðeins með góðum stuðningi geta góðir hlutir gerst. Styrkur- inn frá AVS rannsóknarsjóði í sjávarútvegi til markaðsetning- arinnar 2012 er ómetanlegur og var hann fyrirtækinu mikil hvatning og opnaði því leið til að sækja fram. Mikilvægasti hlekk- urinn í rekstri fyrirtækisins er þó neytandinn og allir aðilar sem stutt hafa við framtakið með einum eða öðrum hætti og er þar nær umhverfið mikilvægast. Af persónulegum ástæðum hefur reksturinn legið niðri um nokk- urt skeið en nú munu hjól taka að snúast á ný. Er neytendum þökkuð biðlundin. Þorgerður Ásdís Jóhannsdóttir f.h. Freddy ehf. Lokahóf á föstudaginn Ræsing í Skagafirði Í fyrra efndi Nýsköpunar- miðstöð Íslands, í sam- starfi við Kaupfélag Skagfirðinga og Sveitarfélagið Skagafjörð, til samkeppni um góðar viðskiptahugmyndir í Skagafirði undir yfirskrift- inni „Ræsing í Skagafirði“. Einstaklingum, hópum og fyrirtækjum var boðið að senda hugmyndir í keppnina. Alls bárust 24 umsóknir á sínum tíma og voru þrjár þeirra valdar til áframhald- andi þróunar. Er um að ræða verkefni Harðar Sveinssonar, Hildar Þóru Magnúsdóttur og loks verkefni Regins Gríms- sonar. Á föstudaginn er boðað til lokahófs í Verinu, Vísinda- görðum að Háeyri 1 á Sauðár- króki, þar sem sigurvegari keppninnar verður kynntur auk þeirra verkefna sem tóku þátt í Ræsingu í Skagafirði. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti auk ljúfra tóna frá Tónlistarskóla Skagafjarðar. /KSE

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.