Feykir - 05.03.2015, Side 2
2 9/2015
Í byrjun vikunnar loguðu netheimar vegna kjóls nokkurs sem
við fyrstu sýn minnti mig á blómavasann sem allir urðu að
eignast á dögunum og ku vera af gerðinni Omaggio og tengjast
einhverju afmæli hjá Kahler nokkrum. Ekki hefur mér verið
boðið í afmæli hjá Kahler þessum og vasinn umræddi ekki
ratað inn á mitt heimili, enda hef ég grun um að eftir nokkur ár
muni hann hljóta sömu örlög og
fótanuddtæki og sódastrímtæki
sem fylltu hillur landsmanna um
skeið. Má ég þá frekar biðja um
klassíska kristalsvasann sem
heiðurshjón úr Fljótunum gáfu
okkur hjónum í brúðargjöf
þarna um árið og er algjörlega
tímalaus.
Það er hins vegar þetta með
„fyrstu sýn“ sem ég vildi gera
að umræðuefni. Það var ekki
nokkur vinnufriður fyrr en
maður var búin að taka afstöðu
til þess hvort kjóllinn alræmdi væri hvítur og gylltur eða blár og
svartur. Þrjóskan í mér – sem í fjölskyldunni er kölluð Lundar-
þrjóskan og kennd við samnefndan bæ í Lundarreykjadal í
Borgarfirði – olli því að ég ætlaði alls ekki að taka þátt í þessu.
En ég gaf eftir vegna áreitis sem var af mun hærri gráðu en
þegar verið er að fá mann til að kjósa til Alþingis eða sveitar-
stjórnar. Og ég sá sem sé hvítt og gyllt. Niðurstaða kosningar á
vinnustaðnum var sú að við vorum tvö um það. Aðrir reyndust
ýmist litblindir eða tækifærissinnar, þar sem fjórir sáu blátt og
svart en sjöundi starfsmaðurinn breytti um skoðun.
Mikið óskaplega sem mér líður vel að háskólar í Banda-
ríkjunum séu búnir að rannsaka málið þó að ekki nokkur
maður viti hver hannaði hann eða hverjum var ætlaður. Enda
er enginn maður með mönnum nema fylgjast með svona
löguðu. Fréttir af því sem máli skiptir eiga ekki roð við fréttum
af kjólunum á Óskarnum og Eddunni eða rassinum á Kim
Karadassían (eða var það Kara-rassían?). Mest lesnu fréttirnar
á flestum miðlum eru gjarnan af slíkum málum. Ég hef því
hugleitt að hætta að skrifa um það sem máli skiptir og snúa mér
að því sem er smellið – það er fær flestu smellina á vefnum.
En áður en ég vendi mínu kvæði í kross ætla ég að fjalla um
málefni sem hefur lengi legið mér á hjarta og gæti verið
lífsspursmál. Ég hef nefnilega velt því lengi fyrir mér hvort við
hér á Krók séum sjálflýsandi. Ég geri mér grein fyrir því að við
erum „pínu rosalega flott“ en það er kannski ekki nóg til að
sjást í myrkri. Hér skokka menn og ganga um götur eftir að
skyggja tekur – og þeir allra hörðustu löngu fyrir birtingu – í
svörtum Cintamani-sjétteringum sem ekki er nokkur leið að
sjá í myrkri. Eflaust er búið að banna að endurskinsmerkjum sé
dreift í skólum, enda álíka „hættuleg“ og kristinfræði eða reið-
hjólahjálmar og annar boðskapur sem reynt hefur verið að
troða inn í skólana um árabil. En endurskinsmerkin fást eflaust
í Kaupfélaginu eða apótekinu eins og flestar nauðþurftir.
Kristín S. Einarsdóttir, á leið til ljóssins
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Þóra Kristín Þórarinsdóttir – thora@nyprent.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Eru Króksarar sjálflýsandi? Fólk á öllum aldri fjölmennti
Fundur um málefni Litla-Skógar á Rótarýdeginum
Eins og sagt var frá í síðasta
Feyki stóðu Rótarýmenn á
Sauðárkróki fyrir dagskrá í
tilefni Rótarýdagsins síðasta
laugardag. Boðið var upp á
gönguferð um gamla bæinn
með leiðsögn Brynjars
Pálssonar, fyrrum bóksala.
Eftir gönguferðina var starf-
semi Rótarý á Íslandi kynnt og
boðað til fundar um málefni
Litla-Skógar, en Rótarýmenn
hafa tekið frumkvæði að því að
standa fyrir endurbótum og
uppbyggingu útivistarsvæðis þar.
Magnús Barðdal er í forsvari
fyrir verkefnið og sagði hann í
samtali við Feyki að dagurinn
hefði tekist vel. „Við fengum þetta
flotta veður til að ganga um
gamla bæinn,“ sagði Magnús og
bætti því við að mun fleiri hefðu
komið á fundinn á Kaffi Krók,
þar sem málefni Litla-Skógar
voru til umræðu. „Ég held það sé
óhætt að fullyrða að það komu
fleiri en búist var við og það er
fólk á öllum aldri sem hefur
áhuga á þessu verkefni.“
Magnús segir næstu skref að
hafa samband við aðra klúbba og
óska eftir aðkomu þeirra og
vinna svo framhaldið með sveit-
arfélaginu. „Nú er bara að hamra
járnið á meðan það er heitt og
halda áfram með verkefnið,“
sagði Magnús, og kvaðst bjart-
sýnn á framhaldið. /KSE
Jeppi varð
eldi að bráð
Blönduós
Eldur kviknaði í jeppa sem
stóð við blokkina að
Hnjúkabyggð 27 á
Blönduósi sl.
laugardagskvöld.
Samkvæmt frétt Mbl.is
urðu engin slys á fólki en
jeppinn er gjörónýtur.
Á Mbl.is kemur fram að
ekki hafi verið mikil hætta á
ferðum en slökkviliðinu tókst
að fjarlægja jeppann frá
blokkinni áður en eldur barst
í hana. Eldsupptök eru ókunn.
/BÞ
Skóladagvistun ódýrust
Sveitarfélagið Skagafjörður
Í frétt á vef Sveitarfélagsins
Skagafjarðar er vakin athygli
á því, að þrátt fyrir að
sveitarfélagið sé í hópi þeirra
sveitarfélaga sem hækka
leikskólagjöld hvað mest, eða
um 8%, sé það eftir sem áður
í hópi þeirra sveitarfélaga þar
sem leikskólagjöld eru hvað
lægst. Skóladagvistun er
ódýrust í Skagafirði.
„Ástæður þessarar hækkunar
eru tvíþættar. Annars vegar sú
að leikskólagjöld höfðu ekki
hækkað í tvö ár, eða frá því í
janúar 2013. Engin hækkun varð
á gjöldum á árinu 2014 eins og
hjá flestum öðrum sveitarfél-
ögum landsins. Við ákvörðun
um hækkun gjalda var einnig
litið til þeirra launahækkana
sem orðið hafa á tímabilinu, en
dæmi um launahækkanir á
þessu tímabili eru allt frá rúm-
lega 9% og upp í um 20%,“ segir
í fréttinni á vef sveitarfélagsins.
Þess er einnig getið að þegar
skoðaður er heildarkostnaður
fyrir skóladagvistun með hress-
ingu og hádegismat í skólum
landsins, er Sveitarfélagið Skaga-
fjörður með lægsta verðið, kr.
21.777 á mánuði, en hæsta verð-
ið sem greitt er fyrir slíka þjón-
ustu er kr. 33.964 á mánuði.
Þetta kemur fram á vef ASÍ. /KSE
Sprækur sem lækur
Hafðu samband við Feyki
í síma 455 7176 eða sendu póst á feykir@feykir.is ...allir með!
Dagskrá í tilefni Mottu-Mars
Fræðslu- og skemmtidagskrá í Miðgarði
Kiwanisklúbburinn Drangey
og Krabbameinsfélag
Skagafjarðar standa fyrir
fjáröflunarsamkomu í
Menningarhúsinu Miðgarði
nk. laugardag. Á dagskrá eru
fræðsluerindi og söngatriði.
Þá munu félagar úr
Kiwanisklúbbnum afhenda
Jóni Helga Björnssyni,
forstjóra HSN, einn fullkomn-
asta speglunarbúnað lands-
ins og skrifað verður undir
samning um búnaðinn og
fimm ára verkefni um skimun
fyrir ristilkrabba.
„Gunnar Sigurðsson, forseti
Kiwanisklúbbsins Drangeyjar
setur samkomuna en kynnir
verður Gunnar Rögnvaldsson á
Löngumýri. Söngatriði flytja
Kvennakórinn Sóldísir, undir
stjórn Sólveigar Sigríðar Einars-
dóttur, Helga Rós Indriðadóttir
sópran, Rökkurkórinn undir
stjórn Thomasar R. Higgerson,
Skagfirski Kammerkórinn undir
stjórn Helgu Rósar og Karla-
kórinn Heimir undir stjórn
Thomasar. Vegna óviðráðalegra
orsaka geta Álftagerðisbræður
ekki verið með að þessu sinni.
Fræðsluerindi flytja Friðbjörn
Sigurðsson krabbameinslæknir
og Inga Margrét Skúladóttir
hjúkrunarfræðingur. Þá munu
Ólafur Jónsson og Ásgeir
Böðvarsson meltingarsérfræð-
ingur kynna samstarfsverkefni
HSN Sauðárkróki og Kiwanis-
klúbbsins Drangeyjar um skimun
fyrir ristilkrabba sem mun ná yfir
næstu 5 ár, að minnsta kosti.
„Það ber að þakka öllum
þeim er lögðu þessari Mottu-
marshátíð lið á einn eða anna
hátt. Það er sómi að búa í
samfélagi sem þessu sem hefur
þennan mátt til að gera þá hluti
er hér hafa verið gerðir,“ sagði
Ólafur Jónsson, félagi í Kiwanis-
klúbbnum Drangey. /KSE
Ísólfur efstur
Meistaradeildinn
í hestaíþróttum
Ísólfur Líndal Þórisson á
Lækjarmóti í Víðidal hefur
tekið þátt í Meistara-
deildinni í hestaíþróttum í
vetur en keppnin fer fram í
Ölfusi. Ísólfur hefur verið
sigursæll í deildinni og
sigraði í fimmgangi síðast
liðinn fimmtudag á
hestinum Sólbjarti frá
Flekkudal.
Eftir þrjú mót af átta er
Ísólfur efstur að stigum en
næstur á hæla honum er
knapinn Árni Páll Björnsson
en hann stóð uppi sem
sigurvegari í Meistara-
deildinni í fyrra. /KSE
Söngperlur
Vilhjálms
og Ellýjar
Karlakór
Bólstaðarhlíðarhrepps
Í marsmánuði mun
Karlakór Bólstaðarhlíðar-
hrepps halda tónleika þar
sem kórinn flytur
söngperlur Vilhjálms og
Ellýjar Vilhjálms, ásamt
hljómsveit Skarphéðins H.
Einarssonar.
Fyrstu tónleikarnir verða í
Blönduóskirkju í kvöld, 5.
mars kl. 20:00. Þann 9. mars
verða tónleikar í Félags-
heimilinu á Hvammstanga kl.
20:00, miðvikudaginn 11.
mars í Frímúrarasalnum á
Sauðárkróki kl. 20:00 og
sunnudaginn 22. mars í
Menningarhúsinu Miðgarði
kl. 15:00. /KSE