Feykir - 05.03.2015, Qupperneq 4
4 9/2015
Útmánaðapistill
Tíðarfarið frá áramótum hefur verið í meira
lagi umhleypingasamt og heldur þreytandi
sem slíkt. Í byrjun þorra orti ég vegna
aðstæðna:
Suðvestanáttin er sveljandaþung
og síst til að bæta okkar farnað.
Hún læðir þeim kulda um læri og pung
sem loðbrækur einar fá varnað.
Það ætti nú að vera okkur mannfólkinu
skylt að viðurkenna það sem aðrir hafa til
brunns að bera, þó skoðanir fari ekki saman
í öllu. Fyrir nokkru svaraði ég ádeilu með
eftirfarandi hætti:
Ég er kannski oft um of
eggjar fús að brýna.
En á þó til að yrkja lof
um andstæðinga mína.
Góðum skagfirskum hugsjónavini sá ég
ástæðu til að senda nýlega þessa kveðju:
Höldum fast um tryggðataug
trúar bestu kennda,
þar til lífs um lengdarbaug
leiðin tekur enda.
Enn er víða barist og drepið í þessum heimi
þrátt fyrir alla hina upplýstu menntun sem á
að kenna mönnum að breyta skynsamlega.
Margt fólk finnur enn sem fyrr veröld sína í
báli:
Þjóðir fundu þelvítið
þungt í straumi floga.
Þegar Hitler helvítið
heiminn setti í loga!
Og hin upplýsta staða virðist að miklu leyti
afar umdeilanleg með hliðsjón af ástandi
heimsins:
Fáir rökum heilum hlýða,
hugsun mörg á þröngan stað.
Grútarleg er greindin víða,
gráður breyta litlu um það!
Það fer nefnilega heldur lítið fyrir
bræðralagsandanum þegar menn kjósa að
stara stöðugt í sérgæskuáttina og vilja ekkert
sjá til annarra átta:
Margir horfa í hylinn svartan,
helst um rangan vinning dreyma.
Berjast eins og Bolli og Kjartan,
bræðralagsins skyldum gleyma!
Maður einn hélt á lofti flokksbundinni
söguskoðun sinni, en mér þótti hún fara
mjög í bága við staðreyndir veruleikans og
orti:
Dylst ei heilli sálarsjón
sannleikurinn skæði,
að hér margir unnu tjón,
eyddu þjóðargæði.
Reisti á legg hér rotinn hóp
ríkiseigna salan.
Féll svo öll í græðgis gróp
greindar vísitalan!
Taldi ég svo ástæðu til að bæta þessari vísu
við:
Forhertir með öllu enn,
auðs við stoðir rammar,
lifa margir ljótir menn
landi og þjóð til skammar!
Menn voru að ræða um ýmsar lagasetningar
og meint gljástig þeirra umfram gildi. Mér
varð að orði:
Mörgu er flott í lögum lýst,
lyft til sólarhæða.
En veruleikinn sýnir síst
sigur þeirra gæða.
Fyrir mér er málið skýrt,
má það aumlegt kalla
þegar kerfið kostarýrt
kynnir sína galla!
Lýk ég svo þessum pistli og megi vorið fara
að ylja okkur mannfólkinu senn hvað líður.
Rúnar Kristjánsson
FRÁ LESENDUM RÚNAR KRISTJÁNSSON SKRIFAR
Öll innkoma rennur
til dætra Elísabetar
Minningartónleikar Elísabetar Sóleyjar
Dagana 22.-28. febrúar var 5,6 tonnum landað á Skagaströnd, tæpum þremur tonnum á
Hofsósi og 209 tonnum á Sauðárkróki. Ekkert var róið frá Hvammstanga. Alls gera þetta um
220 tonn á Norðurlandi vestra. /KSE
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Dagrún HU 121 Þorskanet 1.967
Guðmundur á Hópi Landbeitt lína 3.226
Sæfari HU 200 Landbeitt lína 486
Alls á Skagaströnd 5.679
Hafborg SK 54 Þorskfisknet 1.892
Klakkur SK 5 Botnvarpa 85.690
Málmey SK 1 Botnvarpa 121.563
Alls á Sauðárkróki 209.145
Skáley Landbeitt lína 2.728
Alls á Hofsósi 2.728
Aflatölur í viku níu árið 2015
Rólegt í höfnunum
Minningartónleikar
Elísabetar Sóleyjar
Stefánsdóttur, sem lést eftir
hetjulega baráttu við
krabbamein þann 15.
febrúar sl., verða haldnir í
Tjarnabíói í Reykjavík þann
26. mars og hefjast kl. 20.
Nokkrir vinir og vandamenn
Elísabetar höfðu ráðgert að
halda styrktartónleika fyrir
hana og dæturnar. Eftir andlát
hennar var ákveðið að halda
þeirri dagsetningu óbreyttri og
halda þess í stað minningar-
tónleika. Öll innkoma mun
renna til dætra Elísabetar;
þeirra Hörpu Katrínar, Sól-
veigar Birnu og Rebekku. „Ég,
ásamt fleirum, dáðist að bar-
áttuvilja hennar og æðruleysi í
þessum miklu veikindum sem
hún gekk í gegnum og langaði
einfaldlega að leggja henni lið á
einhvern hátt. Hún tók
afskaplega vel í þá hugmynd að
halda tónleika og hlakkaði
mikið til og tók fullan þátt með
mér í undirbúningnum fyrst til
að byrja með og hafði m.a. sjálf
komið með hugmyndir af því
hvaða listamenn hana langaði
að sjá á tónleikunum og held ég
að það hafi tekist að uppfylla
allar hennar óskir... því allir
listamennirnir tóku alveg
svakalega vel í þetta,“ segir
Hulda Jónasar, skipuleggjandi
og vinkona Elísabetar, en hún
stendur að tónleikunum ásamt
Valgerði Erlingsdóttur, sem
verður kynnir og Adam Smára
Hermannssyni sem sér um öll
tæknimál.
Fram koma Vestanáttin,
Víó, Jógvan Hansen og Vignir
Snær, Regína Ósk, Sigga
Beinteins, Guðrún Gunnars,
Pétur Ben, Sólveig Fjólmunds,
Kristján Gíslason, Ellert
Jóhannsson og Ægir Ásbjörns-
son. „Þær systur Harpa Katrín,
Sólveig Birna og Rebekka ætla
einnig að taka lagið á tón-
leikunum með söngkonunni
Regínu Ósk en hún hefur
kennt þeim söng,“ bætir Hulda
við en hún segir ekki ólíklegt
að einhverjir eigi eftir að bætast
við þegar fram líða stundir.
Miðasala er hafin á www.
midi.is og kostar miðinn 3500
kr. Þess má geta að ekki verður
hægt að kaupa miða við inn-
ganginn.
Þeir sem sjá sér ekki fært að
mæta en vilja leggja dætrunum
lið geta lagt inn á eftirfarandi
reikning: 0323-13-302434 og
kt: 160373-3429. Fjárhalds-
maður þeirra er Ásdís Rósa
Ásgeirsdóttir. /BÞ
Elísabet Sóley.
MYND: BÞ
„Nauðsynlegt að
hefjast handa strax“
Greining innviða í Skagafirði
Á síðasta fundi atvinnu-,
menningar- og kynningar-
nefndar Sveitarfélagsins
Skagafjarðar, þann 23.
febrúar, voru lögð fram til
kynningar drög að skýrslu um
greiningu innviða í Skagafirði,
sem nýtast eiga við kynningu
á svæðinu og tækifærum til
að fjárfesta.
Sigurjón Þórðarson, fulltrúi
K-lista lagði fram svohljóðandi
bókun: „Drögin eru víðtæk
samantekt á hinum ýmsum
þáttum sem geta nýst þegar fram
líða stundir en mikilvægt er að
hefjast handa strax við smærri
og afmarkaðri verkefni. Eitt gæti
verið að óska eftir þátttöku
athafnamanna í útbænum í
starfshóp sem hefði það að
markmiði að efla verslunar- og
veitingarekstur í gamla bænum.
Annað gætí verið að óska eftir
þátttöku forystumanna í ný-
stofnuðu smábátafélagi Drangey
í að móta tillögur um hvernig
efla má útgerð og tengdan
rekstur á Sauðárkróki og
Hofsósi.“ /KSE