Feykir - 22.10.2015, Side 6
6 40/2015
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sigþrúður Sigurðardóttir
sjúkraliði,
Kvistahlíð 7 Sauðárkróki,
lést á heimili sínu mánudaginn 12. október.
Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju
laugardaginn 24. október, klukkan 14:00.
Ingvar Gýgjar Jónsson
Þuríður D. Ingvarsdóttir Alexander G. Eðvardsson
Jón O. Ingvarsson Gígja Rafnsdóttir
Sigurður H. Ingvarsson Berglind Ragnarsdóttir
Magnús Ingvarsson Aðalheiður Reynisdóttir
Ingvar P. Ingvarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
DÁ NA RT I L K Y N N I N G
Vikuna 11.–17. október var tæpum 400 tonnum landað á Skagaströnd. Þá var landað rúmum
50 tonnum á Hofsósi, tæpum 200 tonnum á Sauðárkróki og rúmum 20 tonnum á Hvammstanga.
Alls gera þetta um 670 tonn á Norðurlandi vestra. /KSE
Aflatölur 11.–17. október á Norðurlandi vestra
Hátt í 400 tonn á Skagaströnd
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
HOFSÓS
Bíldsey SH 65 Lína 37.374
Þorleifur EA 88 Dragnót 13.244
Alls á Hofsósi 50.618
SAUÐÁRKRÓKUR
Hafborg SK 54 Þorskfisknet 2.863
Helga Guðm. SK 23 Handfæri 789
Klakkur SK 5 Botnvarpa 7.143
Málmey SK 1 Botnvarpa 166.373
Már SK 90 Handfæri 1.717
Óskar SK 13 Handfæri 294
Röst SK 17 Rækjuvarpa 6.330
Tumi EA 84 Handfæri 205
Vinur SK 22 Handæri 607
Þorleifur EA 88 Dragnót 11.419
Alls á Sauðárkróki 197.740
HVAMMSTANGI
Bergur Vigfús GK 43 Lína 6.927
Harpa HU 4 Dragnót 13.245
Alls á Hvammstanga 20.172
SKAGASTRÖND
Addi afi GK 97 Landb.lína 3.078
Alda HU 112 Landb.lína 20.801
Bergur sterki HU 17 Landb.lína 5.884
Blær HU 77 Landb.lína 2.216
Guðmundur á Hópi Landb.lína 12.818
Húni HU 62 Handfæri 1.083
Kristinn SH 812 Landb.lína 43.340
Muggur HU 57 Landb.lína 13.474
Ólafur Magnússon Net 1.359
Páll Jónsson GK 7 Lína 94.120
Sighvatur GK 57 Lína 167.603
Stella GK 23 Landb.lína 5.375
Sveinbjörg HU 49 Handfæri 485
Særif SH 28 Landb.lína 20.740
Alls á Skagaströnd 392.376
húsið var fjós, í horninu var
hænsnakofi, 30 til 40 rollur
tilheyrðu búinu, tveir til fjórir
hestar, síðan var kýr og alltaf
kálfur – þetta var eins og pínu-
lítið sveitabú. Það var heyskapur
og svo áttum við trillu,“ rifjar
Gísli upp. Hann segist muna
eftir því hve lengi lifnaðarhættir
hafi verið gamaldags á Króknum
og einkennst af sjálfsþurftar-
búskap. Hann segir frá því þegar
hann var sendur í hinar ýmsu
búðir sem strákur áður en
kjörbúð kaupfélagsins kom til.
„Allt var þá selt yfir borð. Maður
sótti fisk í fiskbúðina á
Freyjugötu. Þá var stungið stórri
nál og snæri í gegnum augun á
fiskinum og hnýtt saman. Svo
hélt maður í snærið en þá var
maður svo lítill og dró fiskinn á
eftir sér,“ segir hann. Sigrún
hlær og bætir við að það hafi
komið fyrir að þegar ungir
menn hafi komið heim hafi
sporðurinn verið horfinn.
„Sporðurinn fór í mölina á
leiðinni. Fiskurinn var jafngóður
fyrir því,“ segir Gísli brosandi.
„Ég man þegar það voru
hundrað kýr hér í gamla bænum
og það var beitarhólf hér rétt hjá
Samlaginu. Guðmundur Jóns-
son frá Stapa í Lýtó,
var hættur að búa og
var kúasmali fyrir
bæinn. Hann fór
með beljurnar á
morgnana og ég
labbaði með honum
þarna suður eftir, svo
sótti hann þær á
kvöldin. Þá var komið
með þær þangað sem
tjaldsvæðið er núna.
Allir sóttu beljurnar þangað og
fóru með þær heim í sín í fjós til
að mjólka. Þá var mjólkað hérna
og spenvolg mjólk með kvöld-
matnum,“ segir Gísli kíminn.
Hann segist ekki hafa komið á
Sauðárkrók í um þrjú til fjögur
ár á fyrstu árum sjöunda ára-
tugarins, og segir bæinn hafa
tekið miklum breytingum á því
stutta tímabili. „Á fimm árum
varð Sauðárkrókur nútímasam-
félag, allt í einu, þá voru t.d.
beljurnar farnar.“
Alla tíð góðir vinir
Gísli segist hafa heimsótt frænda
sinn á hverju ári, með smá hléi á
meðan þau hjónin bjuggu
erlendis. Hann lýsir Birni sem
víðlesnum og ákaflega fróðum
manni. „Hann einangraðist
talsvert mikið. Hann bjó nátt-
úrulega einn og varð snemma
heyrnadaufur. Það versnaði heil-
mikið með árunum og hann var
eiginlega alveg orðinn heyrnar-
laus undir lokin. Heyrnartæki
gögnuðust honum ekki mikið.
Maður þurfti því að sitja hér í
svolitla stund þangað til maður
komst af stað með að tala við
hann. Það þurfti að tala skýrt og
vel, þá náðum við saman,“ segir
Gísli. „Þegar Björn
komst á eftirlaunaaldur segir
Sigrún hann hafa farið að spila
og sótt í ýmsa aðra samveru með
öðrum eldri borgurum. „Hann
fór í ferðalög með þeim um
landið, spilaði í Ljósheimum og
margt fleira. Það lifnaði yfir
honum af samverunni við annað
fólk. Það var honum heilmikið
til bóta,“ segir hún.
Gísli segist einstaka sinnum
hafa reynt að fá Björn til að gera
breytingar í húsinu til að gera
þægilegra í kringum hann, þægi-
legri hreinlætisaðstöðu og þess
háttar en þær tillögur hafi fallið í
grýttan jarðveg. „Þegar árin liðu
þá vildi hann það ekki, hann
vildi engu breyta. Þannig að það
var svolítið snúið og ég tók
nokkrar snerrur við hann, að
reyna fá hann í einhverjar
framkvæmdir, en það var ekki að
ræða það. Á endanum gaf ég
mig, ég gat ekki verið óvinur
Bjössa, það var ekki hægt. Við
vorum alla tíð góðir vinir,“ segir
Gísli.
Þar sem Björn var barnlaus
erfði Gísli húsið að Suðurgötu
14. „Nú fyndist okkur mjög
gaman, fyrst að ég er hans
nánasti ættingi og endaði með
að erfa hann, að gera þetta hús
þannig að það sé sómi af því
hérna í götunni – gamalt fínt
hús, fallegt og notalegt að vera í,“
segir hann. Sigrún tekur í sama
streng og segir að þau séu rétt að
byrja að kanna hvaða þýðingu
þetta hefur fyrir þau. „Við erum
alveg með það á hreinu að þetta
er heilmikið verkefni. En til þess
að það sé notalegt að vera í
húsinu þá þarf að byggja hérna
við salernisaðstöðu og svefn-
herbergi,“ segir hún.
Gísli dregur fram teikningu
af húsinu eins og þau myndu
vilja sjá það. „Það sem við mynd-
um gera væri að halda gamla
húsinu og gera eins lítið og hægt
er, en samt vistlegt. Svo myndum
við rífa viðbyggingarnar, bæði
innganginn og breyta honum og
gera hann í stíl við húsið, og
gamla fjósið, sem er ónýtt.
Byggja við í svipuðum stíl úthall-
andi svokallað bíslag, sem yrði
svefnherbergi og salerni. Fyrst
verðum við að kanna hvort þetta
sé gerlegt en það væri gaman að
gera þetta í góðu samstarfi við
Minjavernd, það á eftir að koma
í ljós,“ sögðu
þau áður en
blaðamaður
kvaddi og
steig aftur út í
21. öldina,
eftir notalega
h e i m s ó k n
aftur í tímann
í hús með sál.
Gísli og Sigrún við Ártún, Suðurgötu 14 Sauðárkróki. MYND: BÞ
Björn Ásgrímsson á sínum
yngri árum. MYND: HSK Kári Steinsson og Björn Á
sgrímsson á góðri stundu
við Sauðárkrókskirkju. MYND: FEYKIR
Gömul mynd af Ártúni frá Héraðskjalasafni Skag-firðinga, mögulega úr safni Kristjáns C. Magnús-sonar.