Feykir - 13.07.2016, Page 8
8 27/2016
Stelpur rokka! eru
sjálfboðaliðarekin samtök sem
starfa af feminískri hugsjón við
að efla ungar stelpur í gegnum
tónlistarsköpun. Kjarninn í
starfinu eru rokksumarbúðirnar,
þar sem stelpur læra á hljóðfæri,
spila saman í hljómsveit,
kynnast farsælum
tónlistarkonum, fræðast um
ýmsar hliðar tónlistar- og
jafnréttisstarfs og koma fram á
lokatónleikum fyrir framan
fullan sal vina og fjölskyldu.
Samtökin fagna fimm ára
afmæli og hafa nú verið stofnuð
undirsamtök, Stelpur Rokka á
Norðurlandi. Feykir ræddi við
Önnu Sæunni Ólafsdóttur
verkefnisstýru um samtökin og
rokkbúðir sem haldnar verða á
Akureyri í lok mánaðarins.
Hugmyndin að Stelpur rokka!
kviknaði sem lokaverkefni hjá
Mannfræðinemendum en
stofnandi búðanna heitir Áslaug
Einarsdóttir. Í dag eru rokk-
búðirnar starfandi undir alþjóð-
legu rokkbúðabandalagi, Girls
Rock Camp Alliance. Anna
Sæunn segir reynsluna af
rokkbúðunum hafa verið mjög
gefandi og uppbyggjandi, bæði
fyrir kennara, stýrur og
þátttakendur. „Þátttakendur eru
oft á tíðum að læra í fyrsta
skiptið á hljóðfæri og í sömu
viku eru þeir farnir að spila í
hljómsveit og svo á tónleikum
með frumsamið lag í lok
vikunnar. Í dag hafa yfir 300
stelpur og transkrakkar farið í
gegnum búðirnar og ég held það
sé óhætt að segja að yfirgnæfandi
meirihluti fái meira sjálfstraust
til að byrja að spila og koma
fram - og já bara vera þau sjálf,“
segir hún. „Við erum að fara að
halda okkar fyrstu sumarbúðir
fyrir 12 til 16 ára stúlkur og
transkrakka núna í júlí, vikuna
18.-22. frá kl. 10-17 með loka-
tónleikum kl. 17:00 á föstudegin-
um,“ segir Anna Sæunn og
hvetur einstaklinga af Norður-
landi vestra til að koma í
búðirnar.
„Það hafa tvisvar áður verið
búðir á Akureyri, sumrin 2013
og 2014, en stefna samtakanna
er að sem flestar stúlkur og
transkrakkar hafi aðgang að
starfinu. Dæmi um það eru
rokkbúðirnar sem við héldum í
Grænlandi og Færeyjum í fyrsta
skiptið nú í sumar, í tilefni af 5
ára afmæli Stelpur rokka!, og
gekk ótrúlega vel. Í ár var hins
vegar ákveðið að taka skrefið
lengra og stofna sérstök samtök
fyrir Norðurland og hafa meira
sjálfbæra starfsemi. Einnig að
nýta allar þær flottu tónlistar-
konur sem eru á svæðinu, en
hingað til hefur þekkingin á
rokkbúðahaldinu mestmegnis
verið fyrir sunnan. Sigurlaug
Vordís Eysteinsdóttir hefur verið
okkar manneskja í Skagafirði og
hjálpað okkur að ná til stúlkna
og transkrakka þar,“ útskýrir
Anna Sæunn.
Rokkbúðirnar verða haldnar
í Ungmennahúsinu Rósenborg á
Akureyri, en það er pláss fyrir
allt að 20 krakka, tónleikarnir
verða líka haldnir í salnum þar á
4. hæð á föstudeginum 22. júlí kl
17:00. „Aðstaðan í Rósenborg er
til fyrirmyndar en í sumar
höfum við einmitt haldið
rokkbúðir fyrir konur og
kynsegin einstaklinga þar sem
gekk stórkostlega þegar þrjú ný
bönd stigu á stokk með
frumsamin lög. Við erum einnig
í samstarfi við Listasumar á
Akureyri sem mun mögulega
gefa þátttakendum frekari
möguleika á að koma fram eftir
búðirnar.“
Anna Sæunn segir hljóðfæri
og allt sem til þarf fyrir
vinnusmiðjur og tónleikana vera
skaffað af samtökunum. „Ég hef
verið svo heppin að vera með
frábærar konur og fólk með mér
sem hafa lánað hljóðfæri villt og
galið, ásamt því sem Rósenborg
hefur útvegað okkur mikið og
Tónlistarskólinn á Akureyri
hefur einnig hjálpað okkur. Það
er stefna Stelpur rokka! og
Stelpur rokka Norðurland að
engum sé vísað frá vegna
fjárskorts þegar kemur að
starfinu, því eru viðmiðunar-
þátttökugjöld en það eru alltaf
niðurgreidd pláss í boði þar sem
samtökin starfa ekki í
hagnaðarskyni heldur eru rekin
á styrkjum og frjálsum
framlögum. Rokksumarbúða-
starf sumarsins á Norðurlandi er
styrkt af Uppbyggingarsjóði
Norðurlands Vestra og Eystra
ásamt Akureyrarstofu,“ segir
Anna Sæunn að lokum.
Stelpur rokka á
Norðurlandi
Rokksumarbúðir á Akureyri 18. - 22. júlí fyrir stúlkur og transkrakka
UMFJÖLLUN
Berglind Þorsteinsdóttir
Frá Rokkbúðunum Stelpur rokka.
„Viðtökurnar hafa
verið frábærar“
Sauðárkróksbakarí opnar útibú í Varmahlíð
Í júní opnaði
Sauðárkróksbakarí útibú í
húsnæði Arionbanka í
Varmahlíð. Að sögn Róberts
Óttarssonar, eiganda
Sauðárkróksbakarís, hafa
viðtökur verið frábærar, ekki
síst hjá íbúum í Varmahlíð og
nærsveitum. Hann segir
aðdragandann hafa verið
stuttan en helsti
þröskuldurinn í veginum fyrir
því að opna ennþá fyrr hafi
verið að finna fólk til starfa.
Þessi hugmynd hafði blundað
með okkur nokkuð lengi en
þarna gafst tækifæri segir
Róbert, aðspurður um hvernig
sú hugmynd hefði kviknað að
opna útibú í Varmahlíð. Hann
rifjar reyndar upp að á sínum
tíma hafi verið útibú á
Blönduósi og það ha gengið
ágætlega, en þó verið ákveðið
að loka því aftur. „Enda er
eðlilegra að Sauðárkróksbakarí
sé með útibú í Varmahlíð en á
Blönduósi,“ segir hann og
brosir.
Eftir að Róbert hafði hug-
leitt þessa hugmynd í dálítinn
tíma hafði hann samband við
forsvarsmenn Arionbanka.
Hann var svo hættur að reikna
með því að fá húsnæðið þegar
hann fékk að vita það í lok
apríl að hann gæti fengið leigt
fram á haust og ákvað að slá
til. „Ég dreif mig suður og
keypti kæla og annað sem ég
taldi vanta en átti líka ýmislegt
úr búðinni hér á Króknum,
enda stutt síðan hún var
endurnýjuð.“
Róbert segir að það hafi í
raun verið eina stóra
hindrunin að finna starfsfólk
til að standa vaktina í
Varmahlíð. „Ég var búin að
hringja í fólk sem að átti sér
einskis ills von og biðja það að
koma og vinna. En loksins
fundum við flöt á þessu og nú
er búið að púsla því saman,“
segir Róbert, en útibúið í
Varmahlíð var opnað síðustu
vikuna í júní. „Þetta er
lúxusvandamál, það hafa allir
nóg að gera og meira en það,“
bætir hann við.
Leigusamningurinn við
Arionbanka er til 30. sept-
ember og segir Róbert boltann
vera hjá þeim með framhaldið,
hann sé tilbúinn að láta á þetta
reyna áfram ef húsnæðið
standi til boða. Viðtökur hafa
verið afar góðar, ekki síst hjá
íbúum í Varmahlíð og nær-
sveitum. Útlendingarnir viti
kannski ekki hvort þetta sé
nýtt eða hafi alltaf verið en
íslenskir ferðamenn þekki
sumir Sauðárkróksbakarí.
„Það kemur mér á óvart hvað
þetta hefur gengið vel. Þetta
hefur gengið vonum framar,
enda frábært að vera við
þjóðveg 1. Kaupfélagið er svo
þarna við hliðina og ég held að
þetta vinni vel saman,“ segir
Róbert. Bakaríið í Varmahlíð
er opið alla virka daga frá kl. 8
til 18, kl. 9-16 á laugardögum
og 10-16 á sunnudögum.
UMFJÖLLUN
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Kristrún Ósk Sigurðardóttir í útibúi Sauðárkróksbakarís sem opnað var
í Varmahlíð í lok júní. MYND: KSE