Feykir - 20.07.2016, Blaðsíða 8
8 28/2016
Svana Berglind Karlsdóttir / rödd
Féll algjörlega fyrir Xanadu
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Svana Berglind Karlsdóttir svarar Tón-lystinni að þessu sinni.
Svana er af árgangi 72 sem hún líkir við rauðvín í eikartunnu
– eldist semsagt nokkuð vel. Aðal hljóðfærið hennar er röddin
en hún tók þó einnig 7. stig á píanó hjá Evu Snæbjarnar á
sínum tíma. „Hljóðfærin eru því miður vanrækt síðustu árin
eftir að ég fór í gullsmíðina og getan eftir því,“ segir Svana en
aðspurð um helstu afrek á tónlistarsviðinu segir hún: „Afrek
er stórt orð. En ætli ég sé ekki ánægðust með að hafa sungið
ásamt Sopranos tríóinu mínu á nokkrum styrktartónleikum og
þannig látið gott af mér leiða.“
Hvar ólstu upp/hverra manna? Dóttir Kristínar Guðjónsdóttur
frá Selá á Skaga og Karls Hólm af Víknaættinni á Skaga. Systir
Fanneyjar sjúkraþjálfara, Ingu ljósmóður og Guðjóns á Arnari-HU.
Fædd og uppalin á Króknum, fyrstu árin á Sæmundargötunni en
svo í Víðihlíðinni þar til ég fór að reyna að sigra heiminn.
Hvaða lag varstu að hlusta á? Er stödd á sundlaugarbakka á
Mallorca og í græjunum gellur Happy (Pharrell Williams) sennilega
í tíunda skiptið í dag.
Uppáhalds tón-
listartímabil? Ég
veit ég ætti að segja
eitthvað gáfulegt
og fágað eins og
síðrómantíska tíma-
bilið en ég verð bara
að segja D.I.S.C.O.
Hvaða tónlist fær
þig til að sperra
eyrun þessa dag-
ana? Frönsk kaffi-
húsatónlist. Það er
eitthvað einstaklega
sumarlegt við hana.
Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Þar var nú bara
Gufan á alla daga svo að það var hækkað þegar síðasta lag fyrir
fréttir, Haukur Morteins, harmónikkutónlist og svoleiðis klassík, var
í útsendingunni.
Hver var fyrsta platan/diskurinn/kasettan/niðurhalið sem þú
keyptir þér? Fyrsta platan sem ég eignaðist var Burt með reykinn
sem gefin var út í tilefni af reyklausa deginum 1979 og innihélt 2
lög. Þessa gersemi fékk ég á tombólu og var harla ánægð með.
Hvaða græjur varstu þá með? Ég hef nú sennilega hlustað á þetta
á græjunum hans Guðjóns bróður sem hljóta að hafa verið Pioneer
eða Marantz.
Hver var fyrsta platan sem þú óskaðir þér í jólagjöf? Ó guð!
Fyrsta platan sem ég féll algerlega fyrir var Xanadu sem var úr
samnefndri kvikmynd. Þetta var skringileg samsuða af tónlist
Electric Light Orchersta og Olivia Newton John sem hitti mig beint
í hjartastað.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? Sirka allt frystihúsa-
tímabilið hans Bubba!
Uppáhalds Júróvisjónlagið? Skeggjaða konan alla leið, Rise like
a Phoenix. Alveg magnað lag sem hefði átt að vera í Bond mynd.
Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum
til að koma öllum í stuð?
Think með Aretha Franklin.
Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað viltu helst
heyra? Þrjár síðustu pianósónötur Schuberts. Þá yrði ég ljúf sem
lamb allan daginn.
Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér
á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu
með þér? Ég færi til NY á Metropolitan óperuna þar sem Kristinn
Sigmundsson syngi hlutverk Filippo konungs í Don Carlos og ég
tæki mömmu með.
Hvað músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst kominn
með bílprófið? Það ku hafa verið þeir nafnar Michael Jackson og
George Michael en svo fengu drengirnir í Queen líka oft orðið.
Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? Það er nú
gömul saga og ný að sá tónlistarmaður sem ég hef alltaf litið mest
upp til er Kristinn Sigmundsson. Þar mætast hæfileikar, vinnusemi,
virðing fyrir viðfangsefninu, og svo náttúrulega þessi ótrúlegi sjarmi
hans Kristins. Þessi aðdáun hefur nú varað í 37 ár og vex bara í
hvert sinn sem ég hef tækifæri til að sjá og heyra hann.
Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út? Ég er svo
mikil alæta á tónlist að það væri bara rugl að velja eina plötu. Svo er
það líka misjafnt á hverjum degi hvort mig langar að hlusta á klassík,
diskó, lyftutónlist, vinsældarlistann eða jazz svo að það er bara no
comment á þessa spurningu.
toppurinn
Vinsælustu lögin
á playlistanum hjá Svönu:
Fix You
COLDPLAY
Ain´t No Sunshine
BILL WITHERS
Piano Man
BILLY JOEL
The Look of Love
DIANA KRALL
Feeling Good
MICHAEL BUBLÉ
Páll Óskar og Jón Jónsson
meðal gesta Gærunnar
Tónlistarhátíðin Gæran verður á sínum stað í ágúst
Tónlistarhátíðin Gæran
verður haldin á Sauðárkróki
11.-13. ágúst. Undirbún-
ingur er nú kominn í fullan
gang en nokkur óvissa ríkti
um afdrif hátíðarinnar
vegna greiðsluþrots
Loðskinns, en hátíðin hefur
verið haldin í húsakynnum
fyrirtækisins. Nú er hins
vegar ljóst að hátíðin verður
haldin þar, líkt og verið
hefur frá upphafi.
„Við höfum aðeins verið þetta á
„hold“ vegna þessarar óvissu en
nú höfum við fengið grænt ljós,
sögðu þau Adam Smári Her-
mannsson og Ásdís Þórhalls-
dóttir, framkvæmdastjórar
hátíðarinnar, þegar Feykir hitti
þau að máli í síðustu viku. Segja
þau það mikið gleðiefni, þar
sem erfitt er að finna annað
húsnæði á staðnum sem myndi
henta þessum viðburði. Reið-
höllin hefði helst komið til
greina en hún verður upptekin
umrædda helgi vegna Sveita-
sælunnar 2016.
Ásdís segir að nú sé undir-
búningur komin í fullan gang
og miðasala sé að hefjast á tix.is.
„Við vildum ekki setja upp stóru
seglin fyrr en við værum viss
um hvernig þetta færi, en nú er
allt komið á fullt,“ segir Adam
Smári. Hann segist vonast eftir
enn meiri aðsókn en í fyrra,
sem var þó betri en árin þar á
undan. „Það er bara grundvöllur
fyrir því að gera tónlistarhátíð
að hún stækki og því er númer
eitt, tvö og þrjú að fólk mæti,“
segir Adam Smári og Ásdís
bætir við að þau ætli að halda
sama lága miðaverðinu, en
líklega sé hvergi hægt að komast
á jafn ódýra þriggja daga
tónlistarhátíð.
Páll Óskar á meðal
gesta Gærunnar
Eins og greint var frá á vefsíðu
Feykis í síðustu viku mun Páll
Óskar, sem kom fram á
Gærunni í fyrra endurtaka leik-
inn í ár. Á föstudagskvöldinu
hitar hann upp fyrir Pallaball á
Mælifell seinna um kvöldið og
mun einnig halda barna-
skemmtun á föstudeginum,
enda mæltist hún vel fyrir í
fyrra.
Auk Páls Óskars eru Svenni
Þór, Hlynur Ben ásamt hljóm-
sveitinni Upplifun, Rythmatic –
en sú hljómsveit er frá Ísafirði
og varð í öðru sæti í Músík-
tilraunum í ár, Aron Óskars,
hljómsveitin Mosi Music,
Contalgen Funeral, Nykur, Lilly
og the Valley og Inferno meðal
þeirra sem fram koma á
Gærunni þetta árið. Komast
mun færri að en vildu því alls
koma 22 hljómsveitir fram en
rúmlega 60 sóttu um.
Adam Smári segir að einnig
standi til að stækka sólóista-
kvöldið, sem er á fimmtu-
dagskvöldinu. „Jón Jónsson
ætlar að loka því kvöldi. Hann
hefur lengi langað að koma en
var bara laus á fimmtudags-
kvöldinu svo það varð niður-
staðan.“ Aðrir sem fram koma á
sólóistakvöldinu eru að vanda
ungir og efnilegir tónlistarmenn
en eitt af meginmarkmiðum
Gærunnar er að gefa þeim
tækifæri til að koma sér á
framfæri.
Að lokum vilja þau Adam
Smári og Ásdís hvetja sjálf-
boðaliða til hafa samband. Nú
er lagerinn af gærum stærri en
áður hefur verið og því meiri
vinna að tæma húsið og ganga
svo frá því aftur. Þeir sem vilja
gerast sjálfboðaliðar geta snúið
sér til Heiðu Skaptadóttur í
síma 868 0002. Þá vilja þau
hvetja hópa sem ætla að mæta
til að hafa samband í gegnum
netfangið gaeran@gaeran.is og
fá afsláttartilboð.
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir Adam Hermannsson og Ásdís Þórhallsdóttir. MYND: KSE