Feykir - 31.08.2016, Side 1
„
BLS. 6–7
BLS. 8
Róbert Daníel Jónsson
svarar Rabb-a-babbi
„Stundum
skín sól á
hundsrass“
BLS. 9
Steinar Gunnarsson er með
mörg járn í eldinum og hann er
í opnuviðtali Feykis
Rauði
þráðurinn
í gegnum lífið
Inga Rut Ómarsdóttir frá
Hvammstanga er penninn
„Ertu týndur
vinur?“
32
TBL
31 ágúst 2016
36. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6
FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN!
35 ára
Leikskólanum Barnaborg á Hofsósi lokað tímabundið
Myglusveppur og raki
undir þaki leikskólans
Það var tómlegt um að litast við leikskólann Barnaborg í dag. MYND: AUÐUR BJÖRK BIRGISDÓTTIR
Undir lok síðustu viku kom í ljós að
myglusveppur og raki hafa myndast
undir þaki leikskólans Barnaborgar á
Hofsósi. Óværan er í þeim mæli að ekki
er talið forsvaranlegt að starfrækja
leikskólann þar á meðan málið er
skoðað nánar og vandinn leystur með
öruggum hætti, að því er segir í
fréttatilkynningu frá Sveitarfélaginu
Skagafirði.
Í fréttatilkynningunni kemur enn
fremur fram að fræðslunefnd og
Byggðarráð sveitarfélagsins hafi fundað
um málið á sunnudag og ákveðið að loka
byggingunni. Málið var kynnt á fundi
starfmanna með formönnum nefndanna
ásamt sveitarstjóra og fræðslustjóra á
sunnudag og á fundi með foreldrum
leikskólabarnanna á sunnudagskvöld.
Þeim foreldrum sem geta og vilja nýta
sér til bráðabirgða leikskólapláss á
Hólum var boðið það, en jafnframt var
þegar hafin leit að hentugu bráða-
birgðahúsnæði fyrir leikskólann á Hof-
sósi. „Ákveðnar lausnir eru í sjónmáli
sem ekki er hægt að greina frá að svo
stöddu. Reiknað er með að niðurstaða
fáist á allra næstu dögum og í kjölfarið
verður farið í nauðsynlegar aðgerðir svo
leikskólinn geti opnað aftur hið fyrsta,“
segir í fréttatilkynningunni.
Leysist vonandi sem fyrst
„Það er þó ljóst að undirbúningur og
flutningur mun taka einhvern tíma
þannig að foreldrar þurfa að sýna
biðlund og gera viðeigandi ráðstafanir
vegna sinna barna. Ómögulegt er að
segja hve langan tíma það tekur, en ljóst
að það verður ekki í þessari viku og varla
þeirri næstu heldur,“ segir loks í frétta-
tilkynningunni.
Vala Kristín Ófeigsdóttir, móðir
tveggja af þeim tíu börnum sem eru í
leikskólanum Barnaborg, sagði í samtali
við Feyki að lokun leikskólans kæmi sér
auðvitað illa þar sem flestir foreldranna
væru útivinnandi. Þeim byðist þó að fara
með börnin í leikskóla á Hólum meðan
lokað er á Hofsósi, en það hentar ekki
öllum. „Börnin eru á aldrinum 1-4 ára
og foreldrar ekki hrifnir af þeirri hug-
mynd að ferja þau í rútu.“
„Við höfum ekki orðið vör við ítrekuð
veikindi eða neitt slíkt. Hér halda allir ró
sinni og frumkvæðið að þessari rann-
sókn á hugsanlegum myglusveppi kom
frá sveitarfélaginu. Vonandi leysist þetta
bara sem fyrst,“ sagði Vala Kristín. /KSE
Leikskólinn Barnaborg