Feykir - 21.04.2011, Blaðsíða 9
16/2011 Feykir 9
Borce Ilievski þjálfari Tindastóls í Körfubolta
Á þá ósk
heitasta að fjölskyldan
sameinist á Sauðárkróki
Borce Ilievski, yfirþjálfari
körfuknattleiksdeildar
Tindastóls, hefur nú verið
hér á Króknum síðan í ágúst
í fyrra. Feyki lék forvitni á
að vita hver reynsla hans
væri eftir þetta fyrsta tímabil
og hvernig honum líki lífið
almennt í Skagafirði.
„Ég verð að segja það að
í upphafi var ég pínulítið
einmana þar sem ég þekkti fáa
og smá leiði í mér. Ég þekkti
aðeins Karl Jónsson og hans
fjölskyldu og Kára, en eftir því
sem tíminn leið hef ég kynnst
mörgu góðu fólki í kring um
körfuboltann, leikmönnum,
iðkendum, foreldrum, fólkinu
sem starfar fyrir félagið og
núna á ég marga góða vini og
kunningja hér, sem gera lífið
auðveldara,“ segir Borce.
En hvernig fannst honum
til takast fyrsta tímabilið?
„Niðurstaða tímabilsins var
vissulega fyrir neðan mínar
væntingar, því ég var viss um
að við kæmumst í úrslita-
keppnina. En ýmislegt varð
til þess að upphaf tímabilsins
varð okkur mjög erfitt, undir-
búningstímabilið var mjög
lélegt hjá okkur, við vorum ekki
með rétta útlendinga í upphafi
og svo spiluðu þeir Rikki og
Helgi Freyr ekki í tveimur
fyrstu leikjunum og þeir sem
fylltu þeirra skörð voru ekki
alveg tilbúnir í slaginn“, segir
Borce og bætir við: „Þetta var
mjög erfiður tími fyrir mig,
en til allrar hamingju náðum
við að manna liðið með betri
erlendum leikmönnum og
smám saman fóru strákarnir að
spila betur og betur. Desember
og janúar voru okkar mánuðir
og við vorum að spila mjög
góðan körfubolta, en í febrúar
fór liðið niður á við á nýjan leik,
m.a. vegna meiðsla og ýmissa
annarra þátta en við töpuðum
samt leikjum aðeins með 2, 3
og 5 stiga mun. Það má segja
að vendipunkturinn hafi
verið Stjörnuleikurinn hérna
heima sem við töpuðum, ef við
hefðum unnið hann, hefðum
við komist í úrslitakeppnina,
en því miður þá töpuðum við
þeim leik.
Borce segir að liðið hafi
þegar upp var staðið, bætt
varnarleikinn mjög mikið og
stóðu þeim bestu snúning hvað
þann hluta leiksins varðaði.
„En þó við höfum tekið fram-
förum í varnarleiknum á
síðasta tímabili, þurfum við að
bæta okkur mun meira engu
að síður.
Nú hefur stór breyting
orðið á starfinu í kring
um meistaraflokkinn, en
venjulega hafa þjálfarar
hans aðeins verið ráðnir
fram á síðasta dag keppnis-
tímabilsins. Nú er hins
vegar kominn þjálfari
sem er í starfi allt árið og
þá koma auknar kröfur á
leikmenn og tíminn fyrir
utan undirbúningstímabil og
keppnistímabilið sjálft, verður
allt í einu mjög dýrmætt. „Í
mínum huga er þessi dauði
tími, þegar keppnistímabilinu
lýkur, engu minna mikilvægur
en tímabilið sjálft,“ segir
Borce og hann heldur áfram:
„Á þessum tíma er mikilvægt
að fara í hluti sem aflaga
fóru á keppnistímabilinu hjá
einstaklingunum. Við Kári
erum að hjálpa strákunum
með skotin sín, erum að vinna
í stökkkrafti og þar fram eftir
götunum og ef strákarnir
sinna þessum æfingum vel,
geta þeir komið eins og nýir
leikmenn inn á næsta tímabili.
Við erum hins vegar að berjast
gegn þeirri hefð sem skapast
hefur hér að æfingarnar hætti
bara þegar tímabilinu lýkur.
Ég vona að leikmennirnir
skilji mikilvægi þessa dauða
tímabils sem við erum í.“
Um þessar mundir eru
strákarnir að lyfta tvisvar
í viku og vinna með bolta
þrisvar, en í næsta mánuði
breytist þetta yfir í lyftingar
þrisvar í viku og bolta tvisvar.
En barna- og unglingastarfið
mun einnig taka breytingum
í sumar, að sögn Borce. Hann
hefur nú sett saman 15 manna
úrvalshóp frá 8. flokki og upp
í drengjaflokk sem kemur til
með að vinna saman fram
að körfuboltabúðunum sem
verða 12. – 19. júní. „Frá 1.
maí verðum við með æfingar
2 sinnum í viku fyrir bæði
stráka og stelpur frá 12 ára
aldri og upp úr, auk þess sem
ein kennslustund verður í
körfuboltaskólanum. Eftir
körfuboltabúðirnar kemur
þriggja vikna frí, en æfingar
hefjast aftur 11. júlí með áherslu
á þátttöku í Unglingalands-
mótinu á Egilsstöðum. Í ágúst
förum við síðan aftur í sama
prógram og verður í maí.“
En hvað felst í því að vera
yfirþjálfari? „Sem yfirþjálfari
ber ég ábyrgð á meistara-
flokknum og starfi hans, en
annað hlutverk mitt er líka
að aðstoða aðra þjálfara við
sín störf, gefa þeim góð ráð
og miðla til þeirra af minni
reynslu og kunnáttu. Núna
er ég t.d. að vinna að gerð
þjálfaraprógramms sem allir
þjálfarar munu fá í hendurnar
fyrir næsta tímabil. Þar verður
búið að búa til A, B og C
prógrömm, ásamt því að setja
niður á blað einar 150 æfingar,
sem hægt er að nota til að ná
þeim markmiðum sem sett eru
í þessum stigs-prógrömmum,“
segir Borce og bætir við að
þjálfarar hafi eftir sem áður
ákveðið frjálsræði til að móta
sínar eigin aðferðir og æfingar,
en þetta þjálfaraprógramm sé
það sem allir eigi að styðjast
við, til að tryggja það að allir
iðkendur Tindastóls fari í gegn
um sama prógrammið. „Barna-
og unglingastarfið er hjartað í
félaginu og við höfum marga
hæfileikaríka krakka í starfinu.
Hlutverk okkar þjálfaranna
er að tryggja það að allir iðk-
endurnir fái þá þjálfun sem
þarf svo krakkarnir geti orðið
lykilmenn í meistaraflokkunum
og staðið sig þar.“
Eins og fram hefur komið
verða hér stórar körfubolta-
búðir í heila viku í sumar
frá 12. – 19. júní. Hvað getur
þú sagt okkur um þær?
„Þessar körfuboltabúðir eru
í raun hluti af okkar barna-
og unglingastarfi. Ég byrjaði
með svona búðir á Ísafirði
fyrir tveimur árum síðan og
nutu þær mikilla vinsælda.
Núna erum við í þessum
sporum hér og ég vonast til
þess að við getum boðið upp
á magnaðar körfuboltabúðir
á heimsmælikvarða. Fyrir-
myndin eru viðlíka búðir í
Serbíu sem taldar eru einar
þær allra bestu í Evrópu.
Prófessor Aleksandar Nikolic,
sem margir kalla föður nútíma
körfuboltans í Evrópu, kom
þeim búðum á koppinn. Hjá
okkur verða fjórir erlendir
körfuboltaþjálfarar frá Ítalíu,
Spáni, Bandaríkjunum og
Serbíu og ég er viss um að
krakkarnir okkar eiga eftir að
læra mjög mikið af þeim. Fyrir
búðirnar verðum við með
þjálfaranámskeið fyrir íslenska
þjálfara og ég á von á því að
þeir komi til með að fjölmenna
á það.“
Borce er giftur og tveggja
stúlkna faðir. Eiginkona hans
Biljana Ilievska, starfar á
Ísafirði og hefur gert það síðan
Borce flutti á Krókinn. En er
ekki erfitt að vera aðskilinn
frá fjölskyldunni? „Það hefur
ekki verið auðvelt að vera án
þeirra hérna í vetur, ég sakna
fjölskyldunnar mjög mikið og
þetta hefur líka verið erfitt fyrir
stelpurnar. Ég vonast til þess að
þær komi hingað í sumar, en til
þess að það gangi þarf Biljana
að fá starf við sitt hæfi. Hún er
menntaður efnafræðingur og
starfar í rannsóknarfyrirtæki
á Ísafirði. Ég á mér þá ósk
heitasta að hún fái hér vinnu og
fjölskyldan geti sameinast hér á
Sauðárkróki, í því frábæra og
rólega umhverfi sem hér er að
finna,“ segir Borce að lokum.
Biljana og Borce.
Borce og stelpurnar.