Feykir - 21.04.2011, Síða 10
10 Feykir 16/2011
Brimdís Runólfsdóttir sér um förðun. Um myndatöku sér Björn Ingi Björnsson. Aðstöðu til myndatöku fékk Hulda hjá Brunavörnum Skagafjarðar og KS Eyri. Umsjón: Hulda Jónsdóttir
Arionbanki gaf Huldu USB-lykla til að stelpurnar geti fengið myndir af sér. Tískuhúsið leggur til fatnað. LifsKúnst sér um hárgreiðslu.FeykisStúlkan
Katrín
Gunnarsdóttir
FeykisStúlkan
„Ég er á félagsfræði- sálfræðibraut, ég
er dóttir Gunnars H. Guðmundssonar og
Hrefnu Bjarnadóttur, kærastinn minn
heitir Ingvar Björn Ingimundarson, ég á
eina systur sem heitir Ásdís Gunnarsdóttir
og einn hálfbróður sem heitir Haukur
Gunnarsson. Áhugamál mín eru íþróttir,
fjölskyldan og svo hef ég rosalega gaman
að því að elda og baka :).“
Hulda Jónsdóttir mun á næstu vikum og mánuðum
bjóða lesendum Feykis Feykisstúlkuna en Hulda
hefur fengið fyrirtæki og einstaklinga til liðs við
sig. Tilgangurinn, taka flottar myndir af flottum
stelpum.
FEYKIR SPYR FRÉTTA:
Halldór Halldórsson, Biopol á Skagaströnd
Stoltur af börnunum mínum
„Það sem ber hæst til tíðinda hjá mér
persónulega er hvað ég er stoltur af
börnunum mínum. Þau standa sig öll
frábærlega í námi í grunn- og tónlistar-
skóla. Dóttirin, Guðrún Anna var t.d.
meðal þeirra sem komust áfram í
stærðfræðikeppni FNV sem mér finnst
frábært. Góður grunnur í raungreinum er
að mínu mati ákaflega mikilvægur fyrir
áframhaldandi nám.
Af vettvangi BioPol er allt gott að frétta.
Mörg skemmtileg verkefni í gangi og í raun annasamasti tími
ársins. Mannaráðningar, þátttaka í alþjóðlegu rannsóknaverk-
efni, ferðalög, sjóferðir og skemmtileg samskipti við grásleppu-
sjómenn um allt land er það sem gefur starfinu lit um þessar
mundir. Sem sagt allt gott að frétta.“
FEYKIR SPYR FRÉTTA:
Arnar Þór Sævarsson, bæjarstjóri á Blönduósi.
Tjaldurinn, lóan og Jón Sig
„Af Blönduósi er allt hið besta að frétta.
Mannlífið á Blönduósi hefur sinn vana-
gang. Vorboðarnir eru farnir að mæta
í flokkum. Gæsirnar, Tjaldurinn, Lóan,
selirnir í ósum Blöndu og Jón Sigurðsson
með myndavélina.
Verið er að gera sundlaugina klára fyrir
páskana enda margir ferðamenn búnir
að bóka sig á Blönduósi um páskana.
Mikil eftirvænting er eftir hvernig ferða-
mannasumarið á Blönduósi muni líta
út. Ferðamannabókanir gefa góð fyrirheit með það. Ljóst er að
margur Íslendingurinn ætla að leggja land undir fót í sumar.