Feykir - 04.04.2013, Blaðsíða 2
2 Feykir 13/2013
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842
Blaðamenn:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglindth@feykir.is & 694 9199
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
Skjálftahrina úti fyrir
Norðurlandi
Lýst yfir
óvissustigi
Ríkislögreglustjóri hefur lýst
yfir óvissustigi
almannavarna vegna
jarðskjálftahrinu úti fyrir
Norðurlandi. Var þetta gert
í samráði við vísindamenn,
lögreglustjórana á
Sauðárkróki, Akureyri og
Húsavík samkvæmt
fréttatilkynningu sem
ríkislögreglustjóri sendi frá
sér fyrir skömmu.
Í fréttatilkynningu segir að
óvissustig almannavarna
þýðir að aukið eftirlit er haft
með atburðarrás sem á síðari
stigum gæti leitt til þess að
heilsu og öryggi fólks,
umhverfis eða byggðar verði
ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi
er hluti af verkferlum í
skipulagi almannavarna til að
tryggja formleg samskipti og
upplýsingagjöf á milli
viðbragðsaðila. /BÞ
Framhald af forsíðu
undangengina ára, verður ekki
haldið áfram óbreyttum rekstri.
Til að tryggja rekstur
stofnunarinnar þarf aukið
fjármagn. Að sögn Hafsteins
hefur velferðarráðherra
tilkynnt það að hann vilji skoða
leiðir til að tryggja rekstur
stofnunarinnar í því formi sem
hún er rekin núna. -Við
fögnum því og treystum á að
ráðherra finni lausn sem gerir
okkur kleift að halda áfram
starfi okkar í núverandi mynd.
Ég tel að við séum komin
verulega yfir þau mörk sem
gerlegt er að hagræða með
skynsamlegum hætti og þær
aðgerðir sem við grípum til
leiði allar til aukins kostnaðar
fyrir heilbrigðiskerfið, samfélag
okkar og íbúa Skagafjarðar,
segir Hafsteinn. /PF
LEIÐARI
Þjóðarskömm
Landlæknir telur það þjóðarskömm hvernig komið er fyrir
heilbrigðisþjónustunni í landinu og þá sérstaklega á
Landspítalanum sem er yfirfullur. „Leguplássum á
lyflækningadeildum hefur fækkað um 16% frá 2008 og
bráðainnlögnum fjölgað um 24% frá 2009. Afleiðingin er
meðal annars sú að fólk liggur reglulega á göngum. Það er
einfaldlega þjóðarskömm,“ segir hann í ritstjórnargrein í
Læknablaðinu. Þetta eru skýr skilaboð til stjórnmálamanna
sem nú hlusta á fólkið í landinu í aðdraganda kosninga að nýtt
sjúkrahús væri kærkomið undir starfsemina. Athyglisverð
þótti mér hugmynd Þorvalds Gylfasonar í sjónvarpsþætti á
RÚV fyrr í vikunni þar sem þetta var rætt, en hann vildi fresta
byggingu nýs sjúkrahúss. Sagðist hann frekar vilja færa
heilbrigðisþjónustuna út til fólksins en ekki að hrúga
sjúklingum á einn lítinn blett í miðbæ Reykjavíkur. Þarna
gæti Þorvaldur hafa hitt naglann á höfuðið. Sjúkrahús eru
staðsett víða á landinu og gætu sinnt einhverjum verkefnum
sem yfirfylla Landspítalann. Þetta er allt spurning um skipulag
og fjármagn. Á forsíðunni í dag er einmitt álíka tónn í forstjóra
HS eins og landlækni, heilbrigðisþjónustan er í fjársvelti. Það
sjá það allir að ekki gengur að reka stofnunina með tuga
milljóna tapi ár eftir ár og ef ekki kemur til aukið fjármagn frá
ríkinu þarf að skera niður í rekstri. Hvað fer þá? Skurðstofan
er lokuð, fæðingarþjónustan er farin og má þá núna búast við
að endurhæfingin fari? Viljum við það? Nei, það viljum við
ekki enda hefur verið reiknað út að sparnaðurinn fyrir ríkið
þegar á heildina er litið verður enginn, einungis um tilfærsla á
peningum að ræða. Þetta verður að laga.
Páll Friðriksson,
ritstjóri
Sönglög í Sæluviku
Eyþór Ingi sérstakur gestur
Nú fer að styttast í Sæluviku,
lista- og menningarhátíð
Skagfirðinga, og spennan
magnast bæði hjá
þátttakendum viðburðanna
og hjá þeim sem þá sækja.
Sönglög í Sæluviku er einn af
þeim viðburðum sem er
orðinn fastur liður í
Sæluvikunni og ætlar enginn
annar en júróvisjónfarinn
Eyþór Ingi að stíga á svið í
Menningarhúsinu Miðgarði
áður en hann fer á stóra
sviðið í Malmö þann 18. maí.
Tónleikarnir verða haldnir í
aðdraganda Sæluviku, föstu-
daginn 26. apríl og auk Eyþórs
Inga mun að venju fjöldi
skagfirskra tónlistarmanna
koma fram á tónleikunum. Má
þar nefna Óskar Pétursson
tenór, barnakór Varmahlíðar-
skóla og fullt af ungu og
hæfileikaríku fólki, eins og Einar
Þorvaldsson, einn skipuleggj-
andi tónleikanna, orðaði það.
Forsala miða verður auglýst
þegar nær dregur.
/BÞ
Takið dagana frá!
Jákvæður viðsnúningur
í rekstri sveitarfélagsins
Hátíðir í Húnaþingi: Húnavaka og Eldur í Húnaþingi
Skagafjörður
Dagsetningar fyrir
unglistahátíðina Eldur í
Húnaþingi og
fjölskylduhátíð Austur-
Húnvetninga Húnavaka
hafa verið niðurnegldar og
voru tilkynntar nú á
dögunum.
Húnavaka verður haldin 19.
– 22. júlí og er undirbún-ingur
og framkvæmd hátíðar-innar í
höndum Markvert ehf., líkt og
í fyrra. Á heimasíðu Markvert
kemur fram að dagskráin
verður fjölbreytt og að þær
nýjungar sem boðið var upp á
í fyrra eins og grillið í gamla
bænum og fyrirtækja-
dagurinn, verða á sínum stað
og bætt verulega í. Sem fyrr
verður leitað til íbúa á svæðinu
eftir hugmyndum og framlagi
til dagskrár og má þá hafa
samband við Markvert á net-
fangið hunavaka@markvert.is.
Eldur í Húnaþingi hefst á
miðvikudeginum 24. júlí nk.
og ljúka með dansleik laugar-
dagskvöldið 27. júlí. Fljótlega
verður safnað styrkjum fyrir
hátíðina og má búast við að þá
verði haft samband við
fyrirtæki og félög.„Það eru því
rétt rúmir fjórir mánuðir í
gleðina og vissara að taka
dagana frá,“ segir í frétt á
Norðanátt.is.
/BÞ
Ársreikningur
Sveitarfélagsins
Skagafjarðar fyrir árið 2012
var lagður fram til fyrri
umræðu á fundi
sveitarstjórnar í gær en
hann samanstendur af
upplýsingum um A hluta
sveitarsjóðs og samantekin
A og B hluta.
Rekstrarhagnaður A og B
hluta fyrir afskriftir og
fjármagnsliði er 428 millj.
króna, þar af er
rekstrarniðurstaða A hluta
jákvæð fyrir afskriftir og
fjármagnsliði um 176 millj.
króna.
Rekstrartekjur Sveitarfélags-
ins Skagafjarðar námu á árinu
3.548 millj. króna af samstæð-
unni í heild, A og B hluta. Þar
af voru rekstrartekjur A hluta
3.098 millj. króna.
Rekstrargjöld samstæðunnar
að frátöldum afskriftum og
fjármagnsliðum voru 3.120
millj. króna, þ.a. A hluti 2.922
millj. króna.
Afskriftir eru samtals 136
millj. króna, þar af 69 millj.
króna hjá A-hluta. Fjármagns-
gjöld umfram fjármunatekjur
voru hjá samstæðunni í heild
samtals um 262 millj. króna,
þ.a. eru 180 millj. króna fjár-
magnsgjöld umfram fjármuna-
tekjur í A-hluta sveitarsjóðs.
Rekstrarhagnaður A og B
hluta á árinu 2012 er 16,7
millj. króna en rekstrarniður-
staða A hluta er neikvæð um
79 millj.króna.
-Þetta eru jákvæð tíðindi og
mikið gleðiefni fyrir sveitar-
félagið að vera búin að ná að
snúa við rekstri sveitarsjóðs og
skila honum í plús, segir
Stefán Vagn Stefánsson for-
maður byggðarráðs. Hann
bendir á að það hafi ekki gerst
síðan 2007 og í raun annað
skiptið frá stofnun sveitar-
félagsins frá 2002 þegar ný
reikningsskil tóku gildi.
-Þannig að það er alveg ljóst
að þessar hagræðingarað-
gerðir sem sveitarstjórn stóð
að á árinu 2012 og snéru að
heildarendurskoðun á rekstri
og uppstokkun á allri starfsemi
sveitarfélagsins hafa skilað
Eyþór Ingi. Mynd fengin af FB síðu Eyþórs.
Ljóðasamkeppni meðal
nemenda FNV
Í minningu
Geirlaugs
Ljóðasamkeppni stendur nú
yfir á meðal nemenda
Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra í tilefni
af Geirlaugsminni sem
haldið verður í minningu
Geirlaugs Magnússonar
skálds og kennara við FNV
1982-2004. Ljóðaformið er
frjálst og skilafrestur er til
mánudagsins 8. apríl.
Á heimasíðu FNV kemur
fram að hver nemandi getur
sent inn eitt ljóð en við mat á
gæðum ljóðanna hefur
dómnefndin sérstaklega í
huga frumleika í ljóðagerð og
vald á íslenskri tungu.
Verðlaun verða fyrir þrjú
bestu ljóðin og verða þau
afhent á Geirlaugsminni sem
haldið verður fimmtudaginn
11. apríl kl. 20:00 á sal FNV.
Dómnefndina skipa Benedikt
S. Lafleur, bókaútgefandi og
Guðbjörg Bjarnadóttir deild-
arstjóri í íslensku við FNV. / BÞ
þessum árangri og það ber að
þakka starfsmönnum sveitar-
félagsins sem stóðu með
sveitarstjórn í þessum aðgerð-
um. Þessi árangur hefði aldrei
náðst án þeirra og með
samstilltu átaki. /PF