Feykir - 18.07.2013, Side 8
8 Feykir 28/2013
Fjölsóttir viðburðir
Það var kátt á hjalla á Syðstu-
Grund og víðar í Blöndu-
hlíðinni þegar hátíðin Listaflóð
á vígaslóð var haldin um síðustu
helgi.
Frændurnir Sveinn Arnar
Sæmundsson og Árni Geir
Sigurðsson hófu hátíðina með
hádegistónleikum í Miklabæjar-
kirkju á föstudaginn.
Um kvöldið var svo fjölmenn
kvöldvaka í Kakalaskála þar sem
draugasögur voru meginþemað í
dagskránni en einnig voru fjöl-
mörg tónlistaratriði og sérvitr-
ingurinn Sölmundur mætti á
svæðið. Á laugardaginn gafst svo
kostur á að ganga frá Syðstu-
Grund að Haugsnesi undir
leiðsögn Sigurðar Hansen og
voru margir sem nýttu sér það.
Loks var fjölskylduskemmtun
„Sunnan við garðinn hennar
mömmu,“ en þar ríkti mikil
stemming. Sölutjöld voru á
staðnum, farið í leiki og hlustað á
tónlistaratriði. Það er Grundar-
hópurinn sem stendur að
hátíðinni og nýtur m.a. styrks frá
Menningarráði Norðurlands
vestra.
Myndasafn frá viðburðunum
er að finna á Feykir.is. /KSE
Listaflóð á vígaslóð
ELMAR
Baldursson
HEIMIR HRAFN
Garðarsson
ÍSAK
Sigurjónsson
ÓLI
Aadnegard
EYSTEINN PÉTUR
Lárusson
HLYNUR RAFN
Rafnsson
HJÖRTUR ÞÓR
Magnússon
JAMES BÓAS
Faulkner
ÓMAR
Eyjólfsson
GUNNAR HELGI
Guðjónsson
INGIBERGUR KORT
Sigurðsson
INGIBJÖRN P.
Gunnarsson
FRIÐRIK MÁR
Sigurðsson
HÖRÐUR
Gylfason
JÓHANNES KÁRI
Bragason
REIMAR
Marteinsson
SIGURVIN DÚI
Bjarkason
BERGUR LÍNDAL
Guðmundsson
BJÖRGVIN KARL
Gunnarsson
BENJAMÍN FREYR
Oddsson
KRISTJÁN INGI
Björnsson
ARNÓR SMÁRI
Birgisson
DANÍEL INGI
Sigþórsson
HÁMUNDUR ÖRN
Helgason
INGVI RAFN
Ingvarsson
MAGNÚS
Eðvaldsson
ALBERT
Jónsson
ALBERT
Jóhannsson
SKÚLI HÚNN
Hilmarsson
-Aðdragandi að þátttöku liðsins var að reyna að búa
til verkefni fyrir stráka sem hafa verið að koma upp
úr yngri flokkum Kormáks. Þar sem fyrirséð var að
ekki væri nægur mannskapur á Hvammstanga til
að halda úti liði var hóað í nágrannana á Blönduósi
til að styrkja og stækka hópinn, segir Reimar
Marteinsson á Hvammstanga en Kormákur og Hvöt
tefla fram sameiginlegu liði í 4. deild Íslandsmóts-
ins í knattspyrnu þessa leiktíðina.
Í hópinn bættust svo tveir fjallmyndarlegir piltar
frá Sauðárkróki. Kormákur/Hvöt æfir að megninu til á
Hvammstanga, en nokkrar æfingar hafa farið fram á
Blönduósvelli. Heimavöllur liðsins er á Hvammstanga
en leikinn verður einn leikur á Blönduósvelli, mun hann
fara fram á Húnavöku, á morgun föstudaginn 19. júlí.
-Árangur sumarsins hefur aðeins látið á sér
standa, en markmiðið er að vinna rest. Markmiðið er
að liðið haldi áfram í deild um komandi ár og verði
þannig tækifæri fyrir unga leikmenn sem eru að komu
upp úr yngri flokkum félaganna, til að halda áfram
knattspyrnuiðkun, segir Marteinn sem hvetur alla til að
mæta á völlinn á morgun en leikurinn hefst kl. 20:00.
/PF
Leikmannakynning
Kormákur/Hvöt
Fyrsti fiskur
sumarsins
Þessi ungi piltur heitir Olaf
Forberg (dóttursonur Jóns
Árnasonar á Sauðárkróki).
Hann var á veiðum í
fjörunni niður við Ernuna
þegar hann krækti í þennan
sérkennilega fisk. Fiskurinn
mun vera vogmær og er fyrsti
fiskurinn sem Olaf veiðir í
sumar. /KSE
Olaf veiddi vogmær
Þessi litla stúlka tók þátt í gönguferð á slóðir Haugsnesbardaga.