Feykir - 29.08.2013, Blaðsíða 3
32/2013 Feykir 3
FERSKUR Á NETINU
Feykir.is
Hafðu samband!
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á
feykir@feykir.is
Sérfræðikomur
í september
FRÁ HEILBRIGÐISSTOFNUNINNI SAUÐÁRKRÓKI
Sigurður Albertsson,
alm. skurðlæknir, 2. og 3. sept.
Haraldur Hauksson,
alm./æðaskurðlæknir, 9. og 10. sept.
Bjarki Karlsson,
bæklunarlæknir, 23. - 26.sept.
Sigurður Albertsson,
alm. skurðlæknir, 30. sept. og 1. okt.
Tímapantanir í síma 455 4022
www.hskrokur.is
Eldgosa- og jarð-
skorpukökur
Það var margt að sjá og
skoða í Nes listamiðstöð á
Skagaströnd um síðustu
helgi. Sýning sem nefnist
“Rauði klefinn.” var opin alla
helgina og lesið upp úr bók
Paul Soulellis 530 about
Skagaströnd sem er 530
blaðsíður og inniheldur sögur
af fólki á staðnum.
Á sunnudaginn var boðið í
jarðfræðitengt og gómsætt
eftirmiðdags-te. Gestum gafst
kostur á að koma við í
Höfðaskóla og baka sínar eigin
hraunkökur.
Í sameiningu bjuggu gestir
til gómsætar jarðskorpu-,
eldgosa-, og jarðmyndunar-
kökur og nutu þeirra síðar um
daginn yfir bolla af rjúkandi tei
eða heitu kakói.
Að sögn Melody Woodnutt,
forstöðukonu Nes listamið-
stöðvar, var mikið um að vera á
sunnudaginn og margar
frumlegar kökur litu dagsins
ljós./KSE
Nes listamiðstöð á Skagaströnd
SAMVINNUBÓKIN og KS-BÓKIN
Þrír góðir
kostir
til að ávaxta spariféð þitt
KS-bókin er með 2% vexti,
bundin í 3 ár og verðtryggð.
Önnur KS-bók með innistæðu
yfir 20 milljónir, 3,75% vextir.
Samvinnubókin er með lausri bindingu,
óverðtryggð og óbundin 3,50% vextir.
Hafið þið séð betri vexti?
Ártorgi 1 550 Sauðárkróki & 455 4515
KS INNLÁNSDEILD
Nýttist um tuttugu
ungmennum í sumar
V.I.T. (Vinna, Íþróttir, Tómstundir) er
átaksverkefni sem hefur verið í gangi um
fjögurra ára skeið hjá Sveitarfélaginu
Skagafirði og lýtur að því að öll ungmenni á
aldrinum 16-18 ára fái sumarstörf hjá
hinum ýmsu fyrirtækjum í bænum, sem og
nokkrum deildum sveitarfélagsins, í gegnum
V.I.T. og gefur þeim þess vegna tækifæri á
atvinnu í sumrin sem og reynslu á
vinnumarkaði.
Verkefnið er einstakt á landsvísu, að sögn
Þorvaldar Gröndal, forstöðumanns Húss
frítímans. „Það er alla vega ekki til annars staðar
mér vitandi. Þessu var komið á hér, þar sem
þennan aldurshóp vantaði smá aðhald, og hefur
verið að virka mjög vel þessi árin en svipaður
fjöldi sækir um á hverju ári.“
Í sumar hófu tuttugu og tvö ungmenni störf
á vegum V.I.T.-verkefnisins og voru sautján sem
unnu allt sumarið. „Sum þeirra fengu vinnu
annars staðar þegar aðeins var liðið á sumarið,
því að mörg þessara sumarstarfa eru tengd
sumarleyfum og tilfallandi verkefnum og því
eru menn oft ekki búnir að sjá hversu mikil
þörfin er í mars eða apríl, þegar ungmennin
byrja að sækja um. Þannig að losni störf annars
staðar er þeim yfirleitt frjálst að stökkva á þá
vinnu,“ sagði Þorvaldur í samtali við Feyki. /KSE
V.I.T. verkefnið
Þátttakendur í jarfræðitengdu eftirmiðdags-tei. Mynd: Nes listamiðstöð / Zoe Scoglio
Sabinsky og
kirkjubyggingin
Endursýnt
vegna fjölda
áskorana
Vegna fjölda áskorana var
leikritið Sabinsky og kirkju-
byggingin endursýnt í
Hóladómkirkju sl.
þriðjudagskvöld.
Leikritið, sem er eftir
Björgu Baldursdóttur grunn-
skólakennara á Hólum, var
samið og sett upp í tilefni af
250 ára afmæli Hóladómkirkju
og fjallar á dramatískan hátt
um byggingatíma kirkjunnar.
Þekkt er sagan af þýska
múraranum Sabinsky sem
kom til landsins til að sjá um
byggingu kirkjunnar, þar sem
engin verkþekking á sviði
múrsteinsbygginga var til
staðar í landinu. Sabinsky
eignaðist barn með vinnukonu
á staðnum, sem aðeins lifði
fáeina daga. Enn í dag má sjá
leiði barnsins múrað í vegg
þegar gengið er inn í kirkjuna.
Tveir sögumenn, Agnar
Gunnarsson og Magnús
Ástvaldsson, leiða áhorfendur
áfram í sögunni og fjórir
leikarar glæða söguna lífi en
það er María Gréta Ólafsdóttir
sem leikstýrir. Var þessi sýning
sú síðasta, en verkið var sýnt
þrisvar á Hólahátíð. /PF & KSE
Hólar í Hjaltadal.