Landshagir - 01.11.2011, Page 143
LANDSHAGIR 2011 STATISTICAL YEARBOOK OF ICELAND 2011 143
Hagstofa Íslands hóf að taka saman
hagtölur um sjávarútveg árið 1999, bæði
árstölur og mánaðartölur, en áður hafði sú
vinna verið á hendi Fiskifélags Íslands og
Fiskistofu.
Vigtarskýrslur
Vigtarskýrslur geyma upplýsingar um
aflakaup. Þar koma fram upplýsingar um
fisktegund, stærðarflokkun, gæðaflokkun,
magn og verð, svo og upplýsingar um
sjálfan kaupandann. Ein skýrsla er gerð
fyrir hvert skip sem keypt er af og nær
skýrslan í flestum tilvikum yfir mánaðar
viðskipti fiskkaupanda, tilgreind eftir
dögum. Fiskkaupandi útbýr vigtarskýrsl
una og sendir Fiskistofu sem sér um skrán
ingu hennar.
Ráðstöfunarskýrslur
Ráðstöfunarskýrslur sýna afla sem er til
ráðstöfunar hvern mánuð og hvernig
honum er ráðstafað. Afli til ráðstöfun
ar felst í birgðum í upphafi tímabils ásamt
fiskkaupum samkvæmt vigtar skýrslum.
Hann er annað hvort seldur unninn
eða óunninn. Aflamagn til ráðstöfun
ar þarf þess vegna að vera jafnt því afla
magni sem verkað er eða selt óunnið.
Ráðstöfunarskýrsla sýnir hvernig aflinn er
verkaður. Hins vegar er ekki hægt að sjá á
ráðstöfunarskýrslu hvaða afurðir verða til
hjá framleiðendum.
Í stuttu máli veita vigtarskýrslur upplýsing
ar um allan afla upp úr sjó en ráðstöfunar
skýrslur segja til um vinnsluaðferð hans.
Fiskafli dróst saman um 5,9%
Heildarafli íslenskra skipa árið 2010 nam
rúmum 1.063 þúsund tonnum og var 5,9%
eða 66 þúsund tonnum minni en árið 2009,
en þá var hann tæp 1.130 þúsund tonn. Afli
uppsjávarfisks dróst saman um 5,3% á milli
ára, þar af var samdráttur í síldarafla um 36
þúsund tonn, kolmunnaafla um 33 þúsund
tonn og einnig var samdráttur í afla gull
deplu um 28 þúsund tonn. Loðnuafli
jókst um rúm 88 þúsund tonn milli ára
og makrílafli um tæp 6 þúsund tonn. Skel
og krabbadýraafli nam tæpum 11 þúsund
tonnum árið 2010 en var rúm 8 þúsund
tonn árið áður. Heildarafli botnfiskteg
unda dróst saman um rúm 32 þúsund
tonn, eða um 7% frá fyrra ári. Þorskafli
dróst saman í magni um 5,5% og ýsuafli
um 20,6% milli ára. Flatfiskafli dróst saman
um 15,1% og munaði þar mestu um grálúðu.
Uppsjávarafli nam um 56% af heildar
aflanum, botnfiskafli 40,5%, flatfiskafli
2,3% og afli skel og krabbadýra tæpu 1%.
6SjávarútvegurFishing and fish processing