Landshagir - 01.11.2011, Page 277
LANDSHAGIR 2011 STATISTICAL YEARBOOK OF ICELAND 2011 277
Hagstofan tekur saman yfirlit yfir fjármál
hins opinbera, það er ríkissjóð, sveitarfélög
og almannatryggingar. Yfirlitið byggist á
ársreikningum, en við úrvinnslu efnisins
er fylgt þjóðhagsreikningakerfi Sameinuðu
þjóðanna (SNA 1993) og evrópskri útgáfu
þess (ESA95).
Fjármál hins opinbera ná fyrst og
fremst til þeirrar starfsemi í hagkerf
inu þar sem tekna er aflað með álagn
ingu skatta. Tilgangur reikninga um
fjármál hins opinbera er því að gefa
yfirlit yfir tekjur, útgjöld, eignir og
skuldir hins opinbera og sömuleiðis
mikilvægustu jöfnuði í rekstri þess, s.s.
rekstrar og tekjujöfnuð. Reikningar hins
opinbera eru gerðir samkvæmt staðli
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um fjármál hins
opinbera (GFSM 2001, The Government
Finance Statistics Manual), þjóðhags
reikningakerfi Evrópusambandsins (ESA95)
og málaflokkasundurliðun Sameinuðu
þjóðanna (COFOG, The Classification of the
Functions of Government). Auk reikninga
fyrir hið opinbera eru gerðir reikningar
fyrir undirgeira þess, þ.e. ríkissjóð, sveitar
félög og almannatryggingar.
Tekjuhalli hins opinbera var 155 milljarðar
króna á síðasta ári
Tekjuhalli hins opinbera var 155 millj
arðar króna á síðasta ári, eða rúmlega
10% af landsframleiðslu. Þetta er svipaður
halli og árið 2009. Þessi óhagstæða niður
staða skýrist fyrst og fremst af miklum
samdrætti í tekjum hins opinbera vegna
11% samdráttar í landsframleiðslu árin
2009–2010 á sama tíma og útgjöld jukust
verulega sökum mikillar skuldsetningar og
aukins atvinnuleysis.
Heildartekjur hins opinbera námu 637
milljörðum króna árið 2010 og jukust um
23 milljarða króna milli ára (3,7%). Sem
hlutfall af landsframleiðslu mældust þær
41,5% árið 2010, 41,0% árið 2009, 44,1%
árið 2008 og 47,9% árið 2007. Útgjöld hins
opinbera reyndust um 792 milljarðar króna
2010 og jukust einnig um 3,7% eða um 28,6
milljarða króna milli ára. Sem hlutfall af
landsframleiðslu hækkuðu þau úr 51,0%
árið 2009 í 51,5% 2010.
15Opinber fjármálPublic finance