Póstblaðið - 01.09.1929, Qupperneq 1
9
Gefið út af póststjórninni.
Nr. 9
September
1929
Innihald: 1. Talning 1—28 október. 2. Viðbót við skrá yfir blöð og tímarit. 3. Áhaldaskrár. 4.
Endursendíng póstpoka og gæsla póstáhalda. 5. Skipun póstmanna. 6. Póstávísana-
gengi. 7. Breytingar á Pósttöxtum.
1. Hinn 1. október til 28. október næstkomandi að báðum dögum meðtöldum
skal fara fram talning á póstsendingum samkvæmt Leiðarvísi fyrir póstafgreiðend-
ur 14. gr. —
Talningarskýrslurnar skal senda með næstu póstferð eftir talninguna, en skýrsl-
ur um bókfærðar sendingar árið 1929 eiga að vera komnar til póststjórnarinnar
fyrir miðjan febrúar 1930. Póstmenn panti nauðsynleg eyðublöð í tækan tíma.
2. Á skrá yfir blöð og tímarit, sem flutt eru samkvæmt 11. gr. g. póstlaganna
skal bæta við þessu riti:
Stefnir. Ábyrgðarmaður: Magnús Jónsson. Viðtökustaður: Reykjavík.
3. Póstafgreiðendum hafa verið send eyðublöð undir áhaldaskrár, sem þeim
ber að útfylla og senda til póststjórnarinnar.
Það athugist að tilfæra við tölustimpla brjefhirðinga, númerið á stimplinum.
Það hefur komið fyrir að póstafgreiðslumenn hafa afhent brjefhirðingum stimpil
með skökku númeri og það er nauðsynlegt að komast fyrir, hvort svo er víðar,
en póststjórnin hefur fengið vitneskju um.
í Bæjatali á íslandi 1915, bls. VII, var sett númer á tölustimplum brjefhirð-
inga eins og þau áttu þá að vera hjá hverri brjefhirðingu, en síðan hafa orðið
nokkrar breytingar á því eins og á póststöðunum sjálfum og þarf að fá vissu fyrir,
hvort bækur póststjórnarinnar eru í samræmi við áorðnar breytingar.
4. Póststjórnin verður ennþá einu sinni að áminna póstmenn um að endur-
senda póstpoka, sem hjá þeim liggja og þeir þurfa eigi að nota til póstþarfa.
Póststofan í Reykjavík kvartar mjög undan vanrækslu í þessu efni og skal að
öðru leyti vísað til þess, er segir í Póstblaðinu 1921 nr. 4, 4. lið, um gæslu póst-
poka og póstáhalda.
5. Hinn 3. júlí var Þorlákur Stefánsson ráðinn brjefhirðingarmaður á Svalbarði.
Hinn 23. sama mánaðar var Gunnar Emilsson ráðinn brjefhirðingarmaður á
Stöðvarfirði.
Hinn 27. sama mánaðar var Elís Jónsson ráðinn brjefhirðingarmaður í Skild-
inganesi.
6. Póstávísanagengi hefur verið símað þannig: Spánn frá 27. júlí-----73 aurar
7. Breytingar á pósttöxtum 1926.
í staðinn fyrir það, sem stendur á bls. 43 II. a—d, skal koma það sem stend-
ur á meðfylgjandi miða, og er ætlast til að hann verði límdur inn i taxtana.
S. Briem.