Kosningablaðið - 26.10.1911, Blaðsíða 2

Kosningablaðið - 26.10.1911, Blaðsíða 2
2 Ræða Einars Hjörleifssonar skálds á kjðsendaf. Sjálfstæðismanna 24. okt. 1911. Mig langar til að minnast á ein- stöku atriði af því, sem andstæðingar okkar sögðu á þingmálafundinum í Barnaskólagarðinum á sunnudaginn var. Eg minnist ekki á öll atriðin, sem ástæða væri til að gera hér að umtalsefni, geri ráð fyrir, að aðrir muni fylla upp í eyðurnar. Fyrst er stjórnarskrármálið. Enginn af andstæðingum okkar virtist ætla að samþykkja frumvarp síðasta þings óbreytt, að minsta kosti loíaði enginn þeirra því. Og að svo miklu leyti, sem eg heyrði ræðurnar, var það einkum rýtnkun kosningarrétt- arins, sem frumvarpinu var fundið til foráttu. Um kosningarrétt kvenna fer tvenn- um sögum með andstæðingum okkar. Norður á Akureyri hefir verið talað á móti honum af þeirra hálfu. En eft- ir því, sem þeir töluðu hér á sunnu- daginn var, var svo að skilja, sem þeir væru honum ekki mótfallnir. En eg held, að eg fari rétt með það, þó að eg heyrði ekki allar ræðurnar, að allir andstæðingar okkar hafi tjáð sig mótfallna kosningarrétti vinnuhjúa. í þeirri ræðunni, sem eg heyrði bezt, varð eg var við þrjár mótbárur gegn því, að vinnuhjúum yrði veittur kosningarréttur.1) Ein þeirra var sú, að með því yrði tekinn réttur af núverandi kjósendum. En hver hefir gefið núverandi kjós- endum þennan rétt umfram þær stétt- ir og þá flokka manna, sem er bægt frá honum. Er hér um nokkuð annað að tefla en rétt hins sterkara ? Ekki get eg séð það. Það er auðvit- að, að vald núverandi kjósenda verð- ur nokkuð takmarkað frá því, sem það nú er. Svo hlýtur ávalt að fara, þeg- ar rýmkað er um kosningarréttinn rneð þjóðunum. Eg skal bráðum sýna, hvað mikil sú takmörkun muni verða. Onnur mótbárai) ’v.ir aú, að sngi.in ætti að hafa kosningarrétt, sem ekki greiddi eitthvað til almennings þarfa, og það geri vinnuhjúin ekki. Ber- sýnilega gætti ræðumaður þess ekki, að nú er farið að leggja gjöld á alla, sem af nokkuru geti séð, og reyndar sjálfsagt á ýmsa fleiri. Og hann gætti þess ekki heldur, að allir greiða til almennings þarfa, sem kaupa nokkura tollskylda vöru. Hver karl eða kona, sem kaupir pund af kaffi eða sykri, greiðir til almennings þarfa. Hver sem kaupir fæði, greiðir til almetin- ings þarfa. Og vinnuhjúin, sem fá fæði sitt sem hluta af kaupinu, greiða til almennings þarfa alveg eins og aðrir. Þriðja mótbáran fanst mér skringi- legust. Hún var sú, að ef vinnu- hjúin fengju kosningarrétt, gætu þau gert samtök með sér, og orðið öllum öðrum kjósendum yfirsterkari; allir aðrir gætu druknað í því kjósendahafi, og vinnuhjúin stæðu ein upp úr. Nú skulum við athuga, hver ástæða er til þessarrar mótbáru. Kjós- endur á öllu landinu munu nú vera rúm.........................16,ooo Við þá eiga að bætast giftar konur, 25 ára og eldri; þær eru, eftir því sem næst verð- ur komist, hátt upp undir . 15,000 Þetta verða samtals um . 51,000 Eg bið ykkur að athuga það, að eftir því sem andstæðingum okkar fórust orð á sunnudaginn, er ekki ágreiningur um þessa kjósendur. Hvað eru þá vinnuhjúin mörg, þessi sem eiga að drekkja þessu 5/ púsundi? Eftir því sem næst verður komist af manntalsskýrslunum, eru þau á að gizka 1 (eitt) púsund. Finst ykkur ekki hjúin fara að verða nokkuð mátt- ug, ef þau eiga að sjálfsögðu að geta leikið sér við svona miklu fleira fólk? Rétt er að geta þess, þó að það kæmi ekki mér vitanlega fram í ræð- unum á sunnudaginn, að sennilega er ágreiningur um fleiri en vinnuhjúin. Eg geri lika ráð fyrir, að andstæðing- ar okkar muni vilja halda kosningar- réttinum fyrir ógiftu kvenfólki, sem ') Hér er átt við ræðu Jóns sagnfræðings. Útgef. ekki er í vist, svo sem lausakonum, heimasætum, búðarstúlkum o. s. frv. Lausamennirnir hafa nú kosningarrétt. Og svo hátt hefir risið enn ekki orð- ið á ófrjálslyndinu hjá stjórnmála- mönnum okkar, að taka ætti kosn- ingarrétt af þeim, sem þegar hafa íengið hann. En sjálfsagt vilja þeir stía frá því kvenfólki, sem helzt sam- svarar lausamönnunum í þjóðfélaginu. Hvað er þá þessi flokkur stór, ógift kvenfólk á kosningarréttar-aldri, sem ekki er i vist. Á að gizka 5,500. Þegar við bæt- um við það 1000 vinnuhjúum, þá verða það samtals um 6,500, sem um er deilt — um l/6 hluti allra væntan- legra kjóaenda. Finst ykkur sennilegt, að þessi sjöttungur leiki sér að því að ráða við alla hina 5 hlutana? Hugsanlegt er það með þvi móti, að þessir 5 hlutar kjósenda séu jafnt skiftir, og að sjötti parturinn haldi saman. En fari svo, þá verð eg að segja það, að þá á þetta fólk sannar- lega skilið að hafa kosningarrétt. Það hefir þá eignast áhugamál, og hefir sýnt þann þroska að kunna að sækja fram í fylkingu, þrátt fyrir þá örðug- leika, sem sjálfsagt yrðu á því. Það er ekkert annað en ofbeldi að neita sumum stéttum manna um al- menn mannréttindi eins og kostiing- arréttinn. Og mig furðar á því um suma menn, sem nú leggjast á móti því réttlætisverki, að gera öllum stétt- um þjóðarinnar jafn-hátt undir höfði. Til eru þeir menn, sem þykjast til þess kallaðir að tryggja fólkinu þau réttindi að mega drekka brennivín. En þegar um það er teflt að tryggja smælingjum þessa lands jafn-dýrmæt og sjálfsögð réttindi eins og atkvæði um mál þjóðarinnar, þá skerast þeir úr leik! Það er í mínum augum stórsæmd Sjálfstæðisflokknum, að hann hefir orðið einhuga um þetta réttlætismál. Andstæðingar okkar voru spurðir um afstöðu sina til Jánamálsins. Að eins einn þeirra svaraði spurn- ingunni, svo að mér sé kunnugt. Og eg hefði svarið fyrir svarið frá þeim manni — manninum, sem at öllum talaði og ritaði fegurst um fánann okkar fyrir rúmum 7 árum1). Nú vill hann enga löggjöf um fánann. Vegna hvers ? Af því að íslenzki fáninn sé svo lítið notaður hér á landi. Hon- um hlýtur að vera kunnugt um það, að hingað til hafa það mestmegnis verið kaupmenn, sem nokkurn fána hafa notað hér á landi. Það er satt, að fæstir þeirra nota íslenzka fánann. En eigum við þá að láta kaup- mennina hér á landi ráða því, hvort við öðlumst bersýnilegasta sjálfstæðis- táknið, hvort íslendingar sigla undir sínu merki eða merki erlendrar þjóðar? Fyr mætti nú vera uppgjöf! Fráleitt hefir ræðumanni verið kunn- ugt, hve hjartfólginn fáninn okkar er að verða alþýðu manna hér á landi. Enda er ekki ljósunum að því lýst; því er enn lítt á loft haldið. Mér var sagt í sumar eitt dæmi. Hátíð var haldin í einu héraði landsins út af nýrri brú. Yfirvaldið er ekki sjálf- stæðismaður, og samkvæmt því var brúarskrautinu hagað. Nóg var af hvítum og rauðum litum. Fálkanum gamla mun hafa verið lofað að hanga einhversstaðar. En hvíta krossinn í bláa feldinn vantaði með "öllu. En hvernig fór? Enginn fekst til að syngja söngvana, sem ætlaðir voru hátíðinni, fyr en íslenzki fáninn var lika kominn á stöng. Og uppi í af- dölum, þar sem aldrei hefir nokkur fáni blaktað, getur nú að líta fánann okkar, hvenær sem æskulýðurinn stofn- ar til einhvers mannfagnaðar. Eg get um það borið eftir ferð, sem eg er nýlega kominn úr. Andstæðingar okkar voru líka spurð- ir, hvort þeir vildu eftirleiðis greiða Dönum botnvörpusektafé það, sem þeir hafa gert tilkall til. . Því svaraði einn þeirra, og ekki fleiri, — en sennilega hefir hann svar- að fyrir þá alla. Hann kvaðst vilja láta Dani fá þetta fé fyrir að verja landhelgina — sem þeir þykjast sjálfir eiga með okkur. Hitt virtist hann ekki meta að neinu, að Danir hafa sjálfir öll þau not landhelginnar, sem þeir vilja. 1) Það er Guðm. Finnbogason. Utgef. Eftir því sem stabk- ct - .* • ' - itium á 'sunnudaginn - æfi eg ekki að þv{ gæ.rt— . . . við Dönum þau árin, sem i "ðu þetta fé, um 80 þúsundir. Þar af eitt árið 42 þúsundir, rúma */« ‘af tillaginu frá Dönum. Auðvifaö má segja, að þess- ar 42 þúsur.dir á cinu ári sé ekki mikið fé. Það er'þó æfinlega um n þúsundum meira en Jóni Ólafssyni hafa verið veittar úr laadssjóði nokk- ur síðari árin fyrir öii þau aireks- og sæmdarverk, sem hann hefir unnið fyrir þjóðina. En það er nú líka svo litið, sem Jón hefir jfengið, að hann hefir gleymt því, og er nú allra manna harðorðastur um allar btlingaveitingar. Ef Danir hefðu fengð botnvörpu- sektirnar þetta fjárhagstínabil, 1910 — 1911, mundi sú fjárheÖ hafa numið nálægt 40 þúsundum Og það fé getur numið miklu^meta — við vit- um ekkert um það —ef Danir gera skyldu sina. Og það tr skylda þeirra að verja landhelgina, otkur að kostn- aðarlausu samkv. 1. gi stjórnarskrár- innar — eða afhenda (kkur landhelg- ina sem óskoraða eign okkar að öðr- um kosti. Allar fjárgriiðslur af okk- ar hálfu til landhelgisvahar Dana væru gjöf, eins og málinu ej nú háttað. Áður en eg hætti ð minnast á þennan sunnudagsfund ælla eg að vikja fáeinum orðum á nokkurs kon- ar eftirhreytum frá hoium. Eins og ykkur er öllum kunnu;t, hefir gæzlu- stjóri efri deildar við Landsbankann, Jón Ólafsson, farið un íandið í sum- ar með þau ummæli uu bankann, sem gætu spilt lánstrausti hns hættulega, ef þau bærust til annan landa. Banka- stjórarnir hafa afdrátarlaust neitað staðhæfingum gæzlustjcrans. Og allri framkomu hans í máliiu er þann veg háttað, að slíks eru frieitt dæmi um nokkurn mann í sams konar stöðu nokkursstaðar í veröldimi. Út af þessu gerði einn af starfsminnum Lands- bankans, Jakob Möller þá íyrirspurn til þingmannaefnanna i sunnudaginn, hvort þeir vildu stuðla að því, að efri deild setti annan gæzUstjóra í stað Jóns Ólafssonar, ef stjónin fyndi ekki ástæðu til að víkja honun frá áður. Fyrir þetta hefir jón Oafsson kært Möller; krefst þess tð hann verði rek- inn frá stöðu sinn:. Annar banka- stjóranna er ekki hé" x bænum þessa dagana, svo að málii er ekki útkljáð að fullu. En nú er það í því horfi, að Möller má ekki ioma í bankann; honum er, að mér slilst, vikið frá um stundarsakir. Jakob Möller hefir ekkert annað gert en það, sem hverkjósandi þessa bæjar á rétt á að gera Hér er um ekkert annað en ofbeldis-tilraun að tefla, árás á sjálfsögð réttindi manns- ins. Eg vona, að ekld verði meira úr þessu ofbeldi. Eg venti hins bezta af bankastjórunum. % á von á, að Reykvíkingar þyldu elki þá kúgun, sem til er stofnað. E? á von á, að íslendingar þyldu hana ekki. En ver- ið á verði. Hafið gát á mannréttind- unum í þessu landi. Að lokum langar mig til að segja örfá orð um þingmenn Sjálfstæðis- flokksins hér í bæ, s;m leita nú end- urkosningar. Alveg sérstök ástæða er um þá báða að bregðtst þeim ekki. Annar þeirra, M.-gnús Blöndahl, hefir orðið fyrir sv) svivirðilegum rógi, alsaklaus, að til þess eins hefir verið stofnað að gerahann að glæpa- manni. Við því atfeli liggur beint það svar Sjálfstæðismanna að senda hann á þing með millum meiri hluta atkvæða. Og þeim nun ljúfara ætti mönnum að vera það sem hann hefir í engu efni brugðist rausti kjósenda sinna, i öllum efnun reynst stað- fastur Sjálfstæðismaðxr. Um hinn þingmaininn, dr. Jón Þorkelsson, er það í stuttu máli að segja, að hann hefir i þessum tveim- ur síðustu þingum verið aðalvörður la-.dsréttindanna og sý’fstæðisins. E, á ekki eingöngu við j.ann mikla Jg góða þátt. sem hann átti i því, h ern* ig tekið var- < sambandsmálið þing- inu 1909. Sjálfe$éðjtaiál vorf er of- ið inn í alla ióggjö%i, a<; íalla má. Og þingin hafa oji og éinatt ekki verið á veiði. Dr. VÞ. benti á það á fundinam á suumA3gir.u. hvernig hvert innlimunarákvæðið óðru hefði verið rekið inn í I/'ggjöf"- meðan heimastjórnarmeun/fiöfðxi 'iri hluu á þingi. Enginn hefir af annari eins árvekni og hann lagt kappjá að ver- jast slikum ófögnuði og útrýma hon- um. Fyrir það er það sérstök skylda Sjálfstæðismanna að sjá um það, að honum verði ekki bolað burt af þing- inu. Og enginn hefir sætt meira aðkasti en hann frá Danmörk fyrir ritgerðir um sjálfstæðismál vort. Með þeim mönnum þar, sem mest kapp leggja á að hnekkja sjálfstæðiskröfum þess- arar þjóðar, mundi það vekja sérstak- an fögnuð og verða talinn sérstakur sigur, ef það tækist að koma Dr. J. Þ. af þingbekkjunum. Þann sigur eiga þeir ekki að vinna. Eg vona, að Reykjavík sendi þessa menn aftur inn á þing með álitlegum meiri hluta — af því að sá meiri hluti yrði með sjálfstæði Iandsins, réttlæt- inu og mannréttindunum. Innlimunar-liðið. Þeir brúka nú þann sómasið, er svörtu yfir búa, a5 ganga sannleiks götu á snið og galli fúla spáa, þó skjálfi að fótnm foraðið, þeim finst ei þörf að brúa. en öllu réttu öfugt við með óskammfeilni snúa og hamast sem þeir hafi ei frið og berða sig að ljúga. í timans spegli ótal er af alskyns skuggamyudum, sem vaða fram og voga sér með viljakrafti blindum. Hver löngun helzt og hjartans þrá er heimtuð fram með ergi, og leiðardjúpið lagt er á þó lendingin sé. hvergi. Og sumir ýmist sökkva þar eða synda i hálfu kafi, en aðrir skolast álengdar þó öll sé stefnan vafi og bátnum oft á boðaföll er beitt með seglum þöndum, þvi verða þar oft voðaspjöll og vogrek út með ströndum. Þð stynji röng og stýrishjól og strengur slitinn lafi þar lit eg sigla leigutól með litföróttu trafi um línur, sem að liggja i hring unz ieiðinni þvert um hallar með keypta 0g selda sannfaring þeir sigla á hafnir allar. Og skriðdýr fara i flokknum þar, sem fylgja ýmsum klíkum, og i þeim heyrist álengdar sem urr i hjólatikum, og iðja þeirra er gæðagrönn þar gefur á að lita, er heill vors lands með höggormstönn þau höggva, rifa og slita. Og þar eru lika ýmsir enn, sem útsýn þykjast hafa, og þeir eru taldir miklir menn því margt þeir rita og skrafa. Þeir vita þykjast alt og eitt um alt, sem hina batar, og kalla: »Hér er kjölfar breitt frá kugg, sem veginn ratar.< Og föðurlandsást þeir hengja á hún svo hinir þekki litinn, þó uppistaðan öil sé brún og orðin snjáð og skitin því margir hafa hana við í hlöðum úti legið og falskan lit á foraðið með földum hennar *egið. Og margt er þe-- á Hogi og ferð, sem fögrum ir/náum likist; þð byrjun ,ess bezta gerð, það breyt9t fijótt og sýkist af áhriUIn frá ýmsu þvi, sem ;iar rætur hefur og pjóðarkjarnan innan i r.órg eitruð frækorn grefur. •** Bannfjaadaboðskapur Guðm. Finnbogasonar á fundinum í barnaskólagarðinum var ekki annað en hjóm, og er í raun og veru fót- um alveg kipt undan hrófatildri hans í síðasta kafla af ræðu Þorst. Erlings- sonar hér í blaðinu. Ræða eftir síra Friðrik Friðriksson, haldin á Seyðisfirði í vor — um bann- málið — ágæt hugvekja, er nýlega út komin. Hana ættu allir að kynna sér. Ræða Þorstein8 Erlingssonar á fundi sjálfstæðismanna|24. okt. 1911. Um hvað er barist, er nafnið á bæklingi Sjálfstæðismanna, sem þeir senda út fyrir þessar kosningar og höfundur bæklingsins svaraði sjálfur þessari spurningu einu sinni hér á fundi hjá okkur í haust, og svaraði henni í tveimur stuttum setningum. Orustan, sagði hann, stendur á milli Dana og danska flokksins hér á landi öðru megin, og Sjálfstæðismanna hinu megin, sem vildu vera Dönum sem óháðastir og eiga landið sem mest fyrir okkur. Núna, þegar leggja á út i úrslila- orustuna, ætti einkanlega að vera ástæða til að rifja þetta upp fyrir sér, og svo aðferðirnar við bardagann. Allir vita um hvað við berjumst. Við höfum margsagt það skýrt í öll- um blöðum okkar og á öllum fundum okkar, það er enginn ykkar í vafa um það, að við berjumst sérstaklega fyrir því, að fá stjórnarskrárfrumvarp síðasta þings samþykt að öllu óbreytt, ein- mitt aðallega af því, að það á að verða vígi eða varnarvirki um sjálfstæðismál- ið, girða fyrir það, að sambandsfrum- varpið frá 1908, eða nokkur annar þess kyns herfjötur verði á oss rekinn að þjóðinni óviðbúinni eða óspurðri. Við berjumst beinlínis fyrir sjálf- stæði okkar, að það sé sem tryggast, og móti þvi að vera keyrðir inn í al- ríkið danska. Hvernig svo sem þessudansk-íslenzka bandalagi er háttað, eða þessum danska flokki, sem sá ræðumaður sem eg nefndi, lýsti þá fyrir okkur og ein- kendi, og svo óviðkunnanlegur og sárbeittur sem okkur finst hann, þá er annað en gaman að mótmæla mann- inum, því bæði Danir og Heimastjórn- armenn hafa sett sér sama markmið- ið, að vernda alríkisheildina ú ölium mætti sínum, og vinna okkur alt til nis, sem íosa vujum sambahdið sein mest. Nú mætti búast við, að Heimastjórn* armenn ynnu þá beint á móti stjóm- arskrárbreytingu siðasta þings, 0g berð- ust fyrir sambandslögunum, því til þess hvorstveggja hlýtur þá að langa, en þetta þora þeir ekki, þeir eru hrædd- ir við, að þjóðin sé ennþá andstæð millilandafrumvarpinu eins og hún var 1908, og hafa ekki í fullu tré að segja það, að þeir vilji eyðileggja þing- ið næsta, og hrinda stjórnarskránni aftur á bak. Þetta þora þeir ekki að segja þjóð- inni, nema Jón Olafsson, sem leyfir sér ýmislegt smávegis, sem aðrir leyfa sér ekki, og svo þeir, sem losa fyrir- bandið frá heimastjórnarpokanum af handvömm eins og hér hafði viljað til hjá Mýraprófastinum og þeim kump- ánum þar uppfrá. En af því heimastjórnin hefir ekki þorað að ráðast beint á málefnin, sem við berjumst með og móti, þá hafa þeir sérstaklega nú síðustu árin beitt þeirri orustuaðferð, sem þeir hafa lengi kunnað, að ráðast á einstaka menn af þeim, sem við málefnin fást, og þetta hafa þeir gert svo rækilega, að þeir menn munu fáir vera í vorum flokki, sem nokkurt mannsbragð er að, sem þeir, og sérstaklega blöð þeirra, hafi ekki reynt að elta út úr, einn og einn, með persónulegu illmæli og ofsókn- um. Menn okkar hafa verið eltir með óþokkaskap þeim mun meira, sem þeir stóðu framar í fylkingunni, og illvígast sá sem fremstur stóð. Beri menn saman þau orð, sem flokkablöðin hafa farið hér um þing- mannaefni þessa bæjar, hvorir hafa sætt meiri og ljótari persónulegum óvirðingarorðum í biöðunum. Það á auðsjáanlega að ganga jvo frá hnútun- um hér, að enginn af oss þori að risa móti þessum dansk-islenzka flokki, eða kinnoki sér við því, til þess að fá ekki óþverrann yfir höfuð, því að við þvi hrýs mörgum hugur, bæði sakir sín sjálfs og vina sinna og skyld- rnenna. Það hefir verið sagt, að Heíma*

x

Kosningablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kosningablaðið
https://timarit.is/publication/1289

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.