Tuttugasta öldin - 26.03.1909, Qupperneq 2

Tuttugasta öldin - 26.03.1909, Qupperneq 2
2 20. ÖLDIN. f----------------------------- ^ IL/felsrose 3í^3.±fi-_ Heyndu það við ínorgunverð Þú biðurum það viðdagverð Þú heimtar það við kvöldverð. Einusinni reynt. altaf notað. Ver pöntum vort eigið kafli í stórslumpum og getum því gefið þér sér- srr.ka prísa er 25 pund eru tekin í einu. Sérstakt íslenzkt brent kaffi í 25 punda pökkum á $4.10. Te, bezta blöndun. allar sort'r 25C. upp. Ilreint Cream Tartar gerduft, Ocean Wave 5 punda kanna 85C. McLarens Invinsible Extracts, allar sortir 16 únsa glas 90c. “ •Telly Powder, hvert dúsin $1.00. Krydd, allar sortir. ábyrgst að vera alveg hreint, pd. 40c. Lowneys Hreakfast Cócóa. y)undkanna óOc. Nú er Maplesýróps tíðin austurfrá. Vér höfum samið um nokkur þús- und gallon af því allra fvrsta og eins fljótt og fyrsti farmur ke'nur inn, getum vér látið úti alveg hreint Maple Syrup á $1.50 gallons cönnu. THE CEYLON TEA CO. Phone 7590. 146 Isabel St. WINNIPEG. Sýnishorn af kaffi sent ef um er beðið. i >) 20. 01d-Í2TL Óháö vikublaö. Utgefendur: - Twentieth Century Put). Co. Winnipeg,. Mán. Canada. Kemur út hvern föstudag. Verö: í Canada $1.00 á ári, fyrirfram borgað. Utan Canada $1.50. tTtanáskrift til blaösins er: “20. Öld.irLfct Winnipeg, Eitt vikmblaöiö enn. Vér sem stöndum fyrir útgáfu þessa blaðs, höfurn þá skoöiin.að þó hin viku- blööin séu mikið góð og fullnœgþ andi íslen^ku sálarlítí, þá megi þó enn bétur gera. í sumum grein- urn aö ininsta kosti. Vér trúurn því, að enn sé þörf fyrir blað meðal Vrestur-Islendinga því enn sé ekki fullnœgt hinum andlegu kröfum manna cg kvenna í þessu landi. Höfum vér því ráðist í að stofna dálítið vikublað, er sé að öl!u óháð í hvaða máli sem er, þori að rœöa um hvaða málefni sem er, án ótta fyrir því aö les- endurnir vilji ekki heyra það sann- asta og réttasta sein föng eru á að aíla sér um hvert málefni. Vér auglýsum enga sérstaka stefnuskrá, aö ööru en því, að vér tölum máli þeirra skoöana, sem vér álítum aö miði ti’. betr- unar og menningar fyrir menn yhrleitt. En það má taka fram, að vir viljum frelsi og réttlœti í hvívetna fyrir alla menn og kon- ur, og það strax nú, — ekki ein- hverntíma meö undandrœtti og helirings afslætti. Vér höfum valiö blaöinu þetta nafn, ,,20. Öldin“," af því að vér œtlum aö ræöa tuttugustu aldar málefni á tuttugustu öld við tutt- ugustu aldar fólk, Vér ætlum að gera vort allra bezta, og vér viljum gera vel. En til þess að þetta blað geti náö til- gangi sínum, verðum vér að heita á hvern góðan dreng og konu, aö leggja oss sitt lið aö svo miklu leyti sem kraftar leyfa, — bœði með að senda oss fréttir, ritgjörð- ir og kvœði, og sömuleiðis að út- vega blaðinu áskrifendur. Að svo mœltu sendum vér frá oss fyrsta tölublað 20. Aldarinnar og vonum að henni veröi vel tek- ið, og hún eigi fyrir sér að þrosk- ast og gjöra gagn. Útgefendurnir. VONDIR Hetir yður nokkurntima dottið í hug að reyna að grenslast efiir ástandi “vondra drengja”. Heim- ili sumra drengja eru ekki góð. Eoreldrarnir ætla að gera börnin góð með kristilegri hirtingu við og viö og um að gjöra að hún sé nógu hörö. Þaö er ekki rétt aö svíkja af blessuðum börnunum þessa himnesku blessun, þessa kœrleiksríku athöfn, þessa mann- úölegu aðfeið aö gjöra þau aö göfugum mönnum og konurn. Hafið þér nokkurntíma reynt hina aðferðina þegar börnin eru ódœl, — að vera þeim góð? Versti drengurinn í skólanum. Taktu hann afsíðis, vittu hvort hann hefir nægilegt viðurværi og sómasamleg klæði. Komdu inn hjá honum feguröartiltinningu. Og umfram allt vittu hvort litla hjartaö hans hungrar—hungrar ei eftir ást, blíðuatlotnm. Hví aö láta barnssálina svelta í hel frem- ur en líkamann, fyrir skort á ást og hluttekningu. r \ jj 20. Aldar Guðspjall. V*_________________ J Hedbrigði lfkamans er undir- staða undir heilbrigði sálarinnar. P'örum því gœtilega með líkama vorn. Misbjóðið honum ekki með óreglu og ofnautn. Hót- semi er lykill farsceldar. Vörumst sterka drykki og tóbak í allri inynd. Drekkum kaffi varlega. Margur hefir um sárt að binda eftir viðskiftin við það. Hrein- lœtiíhúsum vorum er dýrmœt- ara en peningar á banka. Vörum oss á mikilli meðalanautn. Flest meðul eru sterkt eitur og skemma meir en þau bæta. Að kunna aö vernda í sér lungun með réttri andardráttar- aðferð, er list sem allir þyrftu aö kunna. — Lœrum að bera oss vel, — ganga fallega og venja líkamann við hollar og eðlilegar hreyfingar. Menn baða sig aldrei of oft. Gallaðan vöxt má laga ef aö- ferðin er kunn. Líkamsæfingar eru betri en læknar. Dans er hollari en kyrkjulall. — Fegurðar tilfinning manns- ins er aldrei á of háu stigi. Is- lendingum er ábótavant í þeirri grein. Göngulag manna lýsir karakter þeirra. Samaerumalla aðra hreyfingu hans og látæði. — Reynum að þekkja sjálfa oss bæði andlega og líkamlega. Svo aðra á eftir. Vor allra nauðsyn- legasti lærdómur, er í því fólginn, að geta þekkt sem bezt hver ann- an. Vér erum öll systkin. — Ef vér frelsum líkama vorn þá er sálinni borgið. Heilbrigö- isfræði er vor bezti sálusorgari. — Hvað er sannleikur? Virki- leikinn. Allt nema ímyndaðir draumórar fáfróðra og andlega sjúkra vesalinga. — Látum oss biðja. — Um hvaö? -- Sannleik, fegurð, rétt- læti. Hæfileg háðgrein var í síðasta ,,Baldri“ um ..Auðsafn Vestur- íslendinga“, er Hkr. birti 14 jan. ,,Helgi magri‘‘ er undirritaður. Þessi auðsafnsvizka var álíka gitn- steinn í hagfrœði eins og „Bjart- sýni og bölsýni“, sem Lögb. flutti einu sinni, var í heimspeki. Og það er eins og manni sé ómögu- legt að gleyma flugnagreininni sœlu. Sœlir eru hreinhjartaðir. ísland. (Stælt.) I.ag: þii bláfjallageimur ete. O, fjallháa, eldþrungna íshafsins land, ég ann þér og minnist þín með lotning. Við þig fram í dauða mig bindur kærleiks band, ó, blessuð móðir, fagra Norðurs drottning. Tvennskonar sjúklingar. Öllum sjúklingum má skifta í tvo fiokka, þeim sem vilja verða heil- brigðir og þeim sem ekki vilja það. Margt af fölki er ánægt með sína kvilla, í sannleika, læra að unna sínu krankleiks ástandi. Þó þeir þykist vilja fá bata, þá er þeim það ekki alvara. Þeirra sjúkdómur er svo sérstakar, er þektur um alt, og allir læknar segja það inn undarleg- asta sjúkdóm sem þeir hafi séð. Hinn flokkur sjúklinganna er líka krankur, en það eru ærlegir menn, Þeir vilja verða heilir. Þeim er alvraa með að gera sitt til/og takaglaðirá móti þeirri aðhlynn- ingu er þeim býðst. Þessi stóri hluti manna er jafnan áreiðanlegur. Þeim þykir ekki æra í að vera í voluðu ástandi. Þá langar til að verða frískir og geta aftur farið að vinna. Magnetic Shields geta læknað alla sjúkdóma er vísindin þekkja sé því gefið tækifæri. Sjáið hvað Magnetism hefir gert fyrir þenna mánn er alt annað brást. The Magnetic Shield Co., Winnipeg, Man. Herrar.—Eg hefi notað yðar segulmagns áhöld aðeins í 3 vikur og hafa þau hjálpað mér mjög inikið. Eg var ófær, á hækjum þegar ég fékk þau. Eftir tvær vikur gatéggengið án hækjanna og fann ekki mjög mikiðtil 0g gat komið út fvrir dyr fyrsta sinn í 4 mánuði. Eg vildi ekki l&tu þau fyrir tíu sinnuiu það verð sem ég borgaði fyrir þau. Eg vildi segja að þér mættuð nota þetta bréf fyrir vottorð, og ég skal senda eiðfest vottorð ef þér óskið, þar ég ber fylsta traust til þeirra, hve mikið gott þau geri þeim er nota þau, Þeir mörgu sem vissu hvað veikur ég var, munu einnig votta það sama. Yðar, með þakklátsemi Arthur Vopni, 489 Victor St. Winnipeg, Man. 13. marz, 1909. ARTHUR VOPNI.

x

Tuttugasta öldin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tuttugasta öldin
https://timarit.is/publication/1290

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.