Morgunblaðið - 22.11.2017, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2017
Ég geri mér grein fyrir því að
Zlatan Ibrahimovic getur státað
sig af því að hafa orðið lands-
meistari í fjórum löndum. Að
hann hefur raunar orðið hol-
lenskur meistari tvisvar, ítalskur
meistari fjórum sinnum,
spænskur meistari, og franskur
meistari fjórum sinnum!
Ég veit sem sagt alveg að
afrekalisti þessa hávaxna Svía er
langur og merkilegur, en það
hlýtur samt að teljast eitt hans
mesta afrek að vera farinn að
spila á ný með einu besta liði
ensku úrvalsdeildarinnar, sem 36
ára gamall framherji, aðeins sjö
mánuðum eftir að hafa meiðst
svo alvarlega í hné að útlit var
fyrir að ferlinum væri lokið.
Það má alveg örugglega
deila um það hvort Manchester
United spilar betri fótbolta með
eða án Zlatans. Hvort betri ár-
angur náist með eða án hans. En
mikið gladdi það mig að sjá hann
mæta aftur út á völlinn um
helgina og klippa boltann einu
sinni á lofti. Svona leikmaður,
sem hefur einstaka hæfileika en
líka einstakan persónuleika, er
óhræddur við að gera „eitthvað
öðruvísi“ og hefur einhvers kon-
ar knattspyrnukynþokka sem
erfitt er að lýsa, er maður sem
ég vil hafa í mínu liði.
Ég skil vel að sænskir fjöl-
miðlamenn hafi viljað vita, strax
eftir að Svíþjóð sló Ítalíu út og
vann sér sæti á HM fyrr í þessum
mánuði, hvort möguleiki væri á
því að Zlatan færi til Rússlands.
Þjálfari Svía furðaði sig á spurn-
ingum þess efnis, svona strax
eftir hið mikla afrek sinna leik-
manna, en ég skil alveg að menn
hafi viljað velta þessari spurn-
ingu upp. Ég dreg ekkert úr af-
reki sænska liðsins en það yrði
óneitanlega talsvert mikið kyn-
þokkafyllra með Zlatan innan-
borðs næsta sumar.
BAKVÖRÐUR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
MEISTARADEILDIN
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Kálið er ekki sopið þótt í ausuna
sé komið. Það fengu leikmenn
Liverpool svo sannarlega að finna
í heimsókn sinni til Sevilla í
fimmtu umferð E-riðils Meist-
aradeildar Evrópu í knattspyrnu í
gærkvöldi. Liverpool fékk
draumabyrjun í leiknum og stað-
an var vænleg að loknum fyrri
hálfleik, 3:0. Draumurinn breytt-
ist hins vegar í matröð í síðari
hálfleik, ekki síst á næstsíðustu
mínútu í uppbótartíma þegar
Guido Pizarro jafnaði metin, 3:3,
fyrir heimaliðið. Fyrir vikið er
engu hægt að slá föstu enn um
hvort Liverpool kemst í 16-liða
úrslit keppninnar. Liðið er efst í
riðlinum sem stendur með níu
stig, stigi meira en Sevilla og
þremur á undan Spartak Moskvu,
sem verður andstæðingur Liver-
pool á Anfield í lokaumferðinni
miðvikudaginn 6. desember.
Liverpool fór á kostum í fyrri
hálfleik. Roberto Firmino skoraði
tvö mörk og lagði upp eitt fyrir
Sadio Mané og héldu þá flestir að
Liverpool færi með sigur af hólmi.
Firmino skoraði fyrra mark sitt á
annarri mínútu leiksins.
Sevilla-menn voru alls ekki af
baki dottnir þótt staða þeirra
væri slæm. Þeir hafa ekki tapað
leik á heimavelli í tæpt ár og gild-
ir einu í hvaða keppni og móti það
hefur verið.
Wissam Ben Yedder skoraði tvö
mörk með skömmu millibili
snemma í síðari hálfleik, það síð-
ara úr vítaspyrnu. Hinn glaðbeitti
Pizarro kætti heimamenn á áhorf-
endapöllunum með marki sínu á
þriðju mínútu í uppbótartíma. Og
þar við sat. Leikmenn Liverpool
og knattspyrnustjórinn Jürgen
Klopp vissu ekki hvaðan á sig
stóð verðið í veðurblíðunni í Se-
villa.
„Mér líður eins og við höfum
tapað en við gerðum það ekki. Við
eigum einn leik eftir svo þetta er
ennþá í okkar höndum en þessa
stundina er erfitt að kyngja
þessu,“ sagði Klopp fljótlega eftir
að flautað var til leiksloka og
hann hafði náð áttum.
Markaveisla á Nikósíu
Real Madrid innsiglaði sæti í
16-liða úrslitum með stórsigri, 6:0,
á APOEL á Nikósíu. Madrid-
arliðið fylgir þar með Tottenham
eftir í H-riðli.
Cristiano Ronaldo skoraði tvö
síðustu mörk Madrídarliðsins í
sýningunni á Nikósíu á Kýpur á
49. og 54. mínútu. Áður hafði Ka-
rim Benzema skoraði í tvígang og
Luka Modric og Nacho Fern-
andez sitt markið hvor.
Besiktas tryggði sér ennfremur
sæti í næstu umferð Meist-
aradeildarinnar. Liðinu dugði 1:1-
jafntefli til þess við FC Porto á
heimavelli. Hvort Leipzig eða
Porto fylgir Besiktas skýrist í
lokaumferðinni en þá fær þýska
liðið Besiktas í heimasókn á sama
tíma og Porto tekur á móti liðs-
mönnum Mónakó.
Leikmenn Leipzig léku við nán-
ast hvern sinn fingur í heimsókn
sinni í furstadæmið í gærkvöldi.
Þeir skoruðu þrjú mörk á fyrsta
hálftímanum og slógu heimamenn
algjörlega út af laginu. Radamel
Falcao klóraði reyndar í bakkann
á 43. mínútu en það var ekkert
annað en klór vegna þess að Naby
Keita skoraði fjórða mark Leipzig
rétt áður en gengið var til bún-
ingsherbergja til hálfleikste-
drykkju.
Draumabyrjun Liverpool
dugði skammt í Sevilla
Þrjú mörk í hvorum hálfleik Besiktas og Real Madrid í 16-liða hópinn
AFP
Hressir Leikmenn Sevilla brostu breitt eftir að þeir jöfnuðu metin á heimavelli á elleftu stundu gegn Liverpool.
Góður hokkíleikur
Með þessum sigri eru Íslands-
meistarar Esju stigi á eftir toppliði
SA, sem á leik til góða, og spennan
áfram mikil í toppbaráttunni. Björn-
inn mátti aftur á móti varla við þessu
tapi. Þótt mikið sé eftir af Íslands-
staklega opin færi. Þegar farið var
að líða á annan leikhlutann fóru
Esjumenn hægt og rólega að sölsa
undir sig öll völd á vellinum og upp-
skáru fyrir vikið tvö mörk á stuttum
kafla. Robbie Sigurðsson er marka-
hæsti leikmaður deildarinnar og
hann sýndi enn eina ferðina hvers
hann er megnugur í leiknum í gær.
Þegar það vantaði einhvern neista í
leikinn var það auðvitað hann sem
skoraði frábært einstaklingsmark
og eftir að Bjarnarmenn hleyptu
smáspennu í leikinn í þriðja leik-
hluta var það Robbie sem skoraði
mikilvægt mark til að tryggja grip
Esju á leiknum á ný. Það urðu smá-
læti undir lokin þegar Aron Knúts-
son, leikmaður Esju, hrinti dóm-
aranum þegar hann fékk tveggja
mínútna brottvísun og var hann
sendur í sturtu fyrir vikið fyrir þetta
óþarfa athæfi.
mótinu er liðið núna 13 stigum frá
sæti í úrslitakeppninni og það verð-
ur erfiður róður að vinna það bil upp.
Gauti Þormóðsson, þjálfari Esju, var
að vonum sáttur við úrslitin en hann
segir sína menn eiga meira inni.
„Þetta er að fara í rétta átt, menn
eru að koma inn úr meiðslum sem
hafa verið lengi frá og ég tel okkur
eiga mikið inni,“ sagði hann í viðtali
við Morgunblaðið eftir leik. „Við vor-
um þéttir til baka og það var erfitt
að skapa færi gegn okkur í kvöld.
Við sækjum stundum of mikið en
fyrir utan síðustu mínúturnar var
þetta mjög góður hokkíleikur.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Einn Kristján Kristinsson, leikmaður Bjarnarins á auðum sjó með pökkinn fyrir miðri mynd. Aðrir fylgjast með.
Esjumenn
styrktu stöðu
sína til muna
Skelltu Birninum í hörkuleik á svell-
inu í Skautahöllinni í Laugardal
Í LAUGARDAL
Kristófer Kristjánsson
sport@mbl.is
Esja er heldur betur komin í þægi-
lega stöðu í Hertz-deild karla í ís-
hokkíi eftir 4:1-sigur á Birninum í
Skautahöllinni í Laugardal í gær-
kvöld. Um var að ræða mikilvægan
leik í baráttunni um sæti í úrslita-
einvíginu og með sigrinum er Esja
nú með 13 stiga forystu á andstæð-
inga sína og þótt mikið sé eftir af
mótinu verður staðan að teljast ansi
vænleg. Þeir Jan Semorad og
Robbie Sigurðsson skoruðu tvö
mörk hvor fyrir Esju en Andri
Helgason skoraði eina mark Bjarn-
armanna.
Leikurinn var í járnum fyrsta
hálftímann og áttu bæði lið fínar
rispur án þess þó að skapa sér-