Morgunblaðið - 06.01.2018, Side 3

Morgunblaðið - 06.01.2018, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2018 ÍS L E N S K A S IA .I S I T S 6 04 96 0 1/ 18 ICELANDAIR ÓSKAR EFTIR öflugum liðsmönnum til starfa hjá tækniþjónustu félagsins í Hafnarfirði STARFSSVIÐ: I Eftirlit með viðhaldi á rafeindakerfum og rafkerfum flugvéla I Afgreiðsla lofthæfifyrirmæla og breytinga frá framleiðendum I Verkfræðiaðstoð við viðhald flugvéla og viðvarandi lofthæfi I Umsjón tæknigagna er snúa að viðvarandi lofthæfi flugvéla I Innleiðing á nýjum rafeindabúnaði í flugvélar og þjónusta við hann í rekstri I Fylgjast með og skrá breytingar á álagi á rafkerfi flugvéla I Samskipti við framleiðendur flugvéla og íhluta I Verkefnastjórnun og kostnaðareftirlit HÆFNISKRÖFUR: I Próf í rafmagnsverkfræði/rafmagnstæknifræði, próf í flugvélaverkfræði eða flugvirkjanám sem gefur B2 réttindi I Þekking og reynsla af viðhaldi flugvéla er kostur I Mjög góð tölvukunnátta I Mjög góð enskukunnátta í bæði töluðu og rituðu máli I Góðir samskiptahæfileikar I Frumkvæði og sjálfstæði I Öguð og góð vinnubrögð Sérfræðingur til að annast eftirlit með rekstri og viðhaldi vélrænna kerfa flugvéla (Mechanical Systems), svo sem vökvakerfi, loftræstikerfi og eldsneytiskerfi. STARFSSVIÐ: I Eftirlit og ráðgjöf varðandi viðgerðir og endurbætur I Afgreiðsla lofthæfifyrirmæla og breytinga frá framleiðendum I Verkfræðiaðstoð við daglegan rekstur flugvéla og viðvarandi lofthæfi I Umsjón með tæknigögnum er varða viðvarandi lofthæfi flugvéla I Samskipti við framleiðendur flugvéla og íhluta I Verkefnastjórnun, áætlanagerð og kostnaðareftirlit HÆFNISKRÖFUR: I Próf í verkfræði, tæknifræði eða flugvirkjanám og sérþekking á þessum sviðum I Þekking og reynsla af viðhaldi flugvéla er kostur I Mjög góð tölvukunnátta I Mjög góð enskukunnátta í bæði töluðu og rituðu máli I Góðir samskiptahæfileikar I Frumkvæði og sjálfstæði I Öguð og góð vinnubrögð Sérfræðingur til að annast eftirlit með rafeindabúnaði og rafkerfum flugvéla (Avionics Engineer). Nánari upplýsingar veita: Ásgeir Bjarni Lárusson I asgeirl@its.is Sveina Berglind Jónsdóttir I sveinaj@icelandair.is + Umsóknir ásamt ferilskrá óskast fylltar út á www.icelandair.is/umsokn eigi síðar en 14. janúar nk. Bílstjóri á dráttarbifreið Menntunar- og hæfniskröfur • Meirapróf • Stundvísi og snyrtimennska • Öguð vinnubrögð • Góð mannleg samskipti • Þjónustulund • Vinnuvélaréttindi og/eða kranaréttindi kostur Sölumaður í varahlutaverslun Menntunar- og hæfniskröfur • Yfirgripsmikil þekking á bifreiðum • Góð almenna tölvukunnátta • Stundvísi og snyrtimennska • Þjónustulund og gott viðmót • Góð mannleg samskipti • Vinnuvélaréttindi kostur Afgreiðsla í móttöku Menntunar- og hæfniskröfur • Góð almenn tölvukunnátta • Stundvísi og snyrtimennska • Þjónustulund og gott viðmót • Góð mannleg samskipti Skútuvogi 8 | 104 Reykjavík | Sími: 567 6700 | vakahf.is Vaka hf. er eitt elsta fyrirtækið í bílabransanum á Íslandi og er með fjölbreytta þjónustu við bíleigendur. Í dag starfar fyrirtækið á hinum ýmsu sviðum s.s. bíla- og tækjaflutningar, dekkjaverkstæði, varahlutasala, dekkjahótel og móttaka förgunarbifreiða. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Áhugasamir sendi inn umsókn á starf@vakahf.is Umsóknarfrestur 19. janúar 2018 Vaka leitar að öflugum liðsmönnum Aðalfundur Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi í Vestmannaeyjum mótmælir í ályktun fyrirætlunum Sam- göngustofu um að leggja af losunar- og sjósetningarbúnað í íslenskum skipum. Þessi áform eru sögð vera „tilræði“ eins og komist er að orði. Mannslífum bjargað Málinu er lýst á þann veg að til skoðunar sé að alþjóðlegar kröfur um björgunarbúnað gildi og að íslenskar sérreglur um sleppibúnað verði úr gildi felldar. Allir viti að það kosti sitt að hafa alvöru björg- unartæki um borð og verði Samgöngustofa að kynna sér hve mörgum mannslífum sleppibúnaður hafi bjargað. „Við höfum séð alltof mörg dæmi um mismunandi teg- undir af sjósetningarbúnaði á undanförnum árum sem hafa ekki virkað og sjómenn látist. Það eru engar reglur um að losunar- og sjósetningarbún- aður skili gúmmíbát upp á yf- irborðið óháð dýpi eða hvort skipið sé á hvolfi. Það er til búnaður sem er hannaður til að skila gúmmíbát upp- blásnum við hlið skips óháð dýpi og sama hvernig skip snýr,“ segir í ályktun fund- arins. Þar er starfsfólk Sam- göngustofu hvatt til að færa öryggismál sjómanna ekki aft- ur í tímann heldur leita sam- starfs við þá sem best til þekki til og þróa nýja reglugerð samkvæmt því. Sleppibúnaðurinn verði áfram skylda Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vestmannaeyjar Útgerðin er undirstaða alls í þessum bæ.  Eyjasjómenn mótmæla Hreyfing Samningar um Heilsueflingu afgreiddir. Í vikunni undirrituðu Har- aldur Líndal Haraldsson, bæj- arstjóri í Hafnarfirði, og Janus Guðlaugsson samstarfssamn- ing sveitarfélagsins við Heilsu- eflingu Janusar slf., til eins og hálfs árs í tengslum við heilsu- eflingu allt að 160 íbúa Hafn- arfjarðarbæjar á aldrinum 65 ára og eldri. Í boði verður þol- þjálfun einu sinni í viku í frjálsíþróttahöllinni við Kapla- krika og styrktarþjálfun tvisv- ar í viku í heilsuræktarsal Reebok fitnes við Ásvallalaug. Áskorun í nútímanum Í frétt frá Hafnarfjarðarbæ segir Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri fjölskylduþjónustu, að ein af áskorunum samfélags nútímans sé að gefa öllum kost á að stunda hreyfingu af ein- hverjum toga. Eigi það ekki síst við um eldra fólk, sem ella sé útsett fyrir ýmsum lífsstíls- sjúkdómum. Einnig geti hreyfing átt sinn þátt í því að fólk geti lengur verið í eigin búsetu, sinnt athöfnum dag- legs lífs hjálparlaust og haldið lífsgæðum. Hver og einn þátttakandi í þessu verkefni í Hafnarfirði fær einstaklingsmiðaða æf- ingadagkrá sem gerð verður í kjölfar mælinga á þreki, styrk og líkamlegu ástandi hvers og eins. Æfingar fara fram í fá- mennum hópum undir leið- sögn fagfólks. Auk þol- og styrktaræfinga verða einnig fyrirlestrar um hollt mataræði og lífsstíl. Þjálfa þol og styrk  Hreyfing í Hafnarfirði Stjórn fé- lags um stofnun Lýðhá- skóla á Flateyri hefur ráð- ið Helenu Jónsdóttur sálfræðing sem fram- kvæmda- stjóra Lýðháskólans þar í bæ. Hlutverk Helenu verður að undirbúa starfsemi skól- ans en sérstök fagráð hafa unnið að því að móta náms- framboð skólans á þremur sviðum, sjálfbærni og um- hverfismálum, kvikmynda- vinnu og tónlistarsköpun. Framkvæmdastjóri mun vinna að skipulagi skólans og útfærslu og þróun náms- framboðs auk þess að vinna verkefni fyrir Fræðslu- miðstöð Vestfjarða um lýðháskóla almennt sam- kvæmt samningi við mennta- málaráðuneytið. Starfsstöð framkvæmdastjóra er á Flateyri og mun Helena þeg- ar hefja störf. Undanfarin þrú ár hefur Helena starfað sem verk- efnastjóri og ráðgjafi á veg- um samtakanna Læknar án landamæra í Afganistan, Suður-Súdan, Egyptalandi og Líbanon. Áður var hún m.a. meðeigandi og starfandi sálfræðingur hjá Kvíða- meðferðarstöðinni, fram- kvæmdastjóri hjá Glitni og framkvæmdastjóri hjá Kaup- þingi. Helena Jónsdóttir Helena stýrir Lýðháskóla á Flateyri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.