Morgunblaðið - 06.01.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 06.01.2018, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2018                                            !        "  #    $  "   %  "   &'( ) *+ ,-   "    . % /          % 0 1   2  % 0  1           $  3  $  0 (  2  +2             4  5   6-      5  $      (      $  7  (8 2 9       -6 : -;6< =    (   #   ( 4     # (      212 / "">   0 ?  2 !      @-@<A;; Seltjarnarnesbær hefur með undirritun sáttmála Samein- uðu þjóðanna, Global Com- pact, um samfélags- ábyrgð tekið sér stöðu með- al fremstu bæj- arfélaga í heimi og er fyrsta bæj- arfélagið á Íslandi til að und- irrita slíkan sáttmála. 21 ís- lenskur aðili hefur nú und- irritað yfirlýsingu þessa efnis en Samtök atvinnulífsins eru tengiliður Íslands við Global Compact. Meðvitund um ábyrgð Stjórnendur Seltjarnarnes- bæjar hafa á liðnum árum lagt áherslu á samfélagslega ábyrgð og hafa ákvarðanir bæjarstjórnar tekið mið af því, segir í frétt frá Seltjarn- arnesbæ. Bæjarstjórn hafi verið meðvituð um ábyrgð á umhverfi sínu hvort sem það varði mannauð eða umhverfi. Ennfremur vaxi þeim sjón- armiðum ásmegin á meðal bæjarbúa að taka beri sam- félagsábyrgð föstum tökum og vinna eigi að innleiðingu góðra stjórnarhátta í þeim anda. Ábyrg innkaupastefna er eitt dæmið um slíkt. „Við stefnum að því að Sel- tjarnarnes verði í fremstu röð meðal vistvænna sveitarfélaga á Íslandi. Siðferðileg rök hníga að því að sveitarfélögum beri að græða þau spor sem þau setja á samfélagið og umhverfi þess. Samfélagsábyrgð snertir alla þætti mannlífsins og snýr að öllum grunninum í starfs- háttum sveitarfélagsins,“ segir Ásgerður Halldórsdóttir, bæj- arstjóri Seltjarnarnesbæjar. Félagsleg markmið Sáttmáli Sameinuðu þjóð- anna um samfélagsábyrgð hef- ur tíu viðmið sem 9.000 fyr- irtæki og 4.000 félög hafa heitið að virða. Þar með gefa þau fyrirheit að þau muni í stefnumótun sinni og starf- semi fylgja alþjóðlegum sátt- málum Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi, vinnuvernd, sjálfbært umhverfi og heið- arlega starfshætti. Jafnframt að þau vinni hvert fyrir sig og í samstarfi að félagslegum markmiðum í anda Sameinuðu þjóðanna. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Golli Seltjarnarnes Áhugaverð málefni í bæjarfélaginu í deiglunni. Samfélagsábyrgð á Seltjarnarnesi  Í fremstu röð  Global Com- pact  Allir þættir mannlífsins Ásgerður Halldórsdóttir Sendinefnd á vegum Banda- lags íslenskra skáta er á Ír- landi þessa dagana til þess að miðla reynslu sinni af því að skipu- leggja al- þjóðlegt skátamót. Í sumar skipulagði bandalagið á Íslandi 5000 manna al- þjóðlegt skátamót fyrir ald- urshópinn 18-25 ára að Úlf- ljótsvatni og á 10 öðrum stöð- um á landinu en þátttakendur voru frá tæp- lega 100 löndum. Írar eiga að halda næsta mót, árið 2021, og þeir buðu íslensku móts- stjórninni út til þess að læra af henni. Þetta kemur fram í frétt frá Bandalagi íslenskra skáta Góðar móttökur „Okkur hefur verið ein- staklega vel tekið hér í úti- lífsmiðstöð skáta í nágrenni Dublin og Írar vilja nýta sér okkar reynslu af því að skipuleggja og halda utan um jafn stórt mót og það sem var hér á Úlfljótsvatni og 10 öðr- um stöðum á landinu“, segir Hrönn Pétursdóttir, sem var mótsstjóri og er ein af níu manns sem nú eru á Írlandi. Hrönn segir það hafa vakið mikla athygli hversu um- fangsmikið sjálfboðastarfið var í sambandi við fram- kvæmdina á mótinu og Írar hafi mikinn áhuga á því að hafa sama háttinn á. Alls 540 íslenskir sjálfboðaliðar tóku þátt í undirbúningi og fram- kvæmd mótsins og 652 er- lendir sjálfboðaliðar bættust í hópinn á mótinu sjálfu. Efldi starfið Alþjóðlega skátamótið síð- astliðið sumar er langstærsti viðburður sem bandalagið hefur séð um og Marta Magnúsdóttir, skátahöfðingi Íslands, segir að vinnan í tengslum við mótið hafi eflt allt skátastarf í landinu. Hún er fullviss um að skátastarfið í framtíðinni verði öflugra en nokkru sinni fyrr enda hafi þetta verkefni sýnt hversu öflug hreyfingin er og hversu mikill kraftur er í íslenskum skátum, að því er fram kem- ur í tilkynningu. sbs@mbl.is Skátar miðla reynslu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skátamót Dansað á Skóla- vörðustígnum sl. sumar. Hrönn Pétursdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.