Morgunblaðið - 10.01.2018, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2018
Bandaríkjunum en það er ekkert að
marka þau úrslit núna. Það er ómögu-
legt að sjá fyrir sigurvegara í þessum
leik og mun dagsformið skipta miklu
máli eins og svo oft í bikarnum. Bæði
lið eru pottþétt búin að kortleggja
hitt og vita upp á hár hvað þarf að
gera. Svo kemur í ljós hvoru liðinu
tekst betur upp að framkvæma það
sem lagt er upp með. Sá þjálfari sem
nær að stilla spennustigið hjá sínum
leikmönnum betur mun ganga sigur-
reifur frá þessum leik en bæði lið eru
með öfluga reynslubolta í brúnni sem
kunna sitt fag.
Ég er sjálfur búinn að búa mig
undir nokkrar framlengingar í þess-
um leik og sé fyrir mér leik sem verð-
ur lengi talað um sem einn rosaleg-
asta leik í Höllinni síðari ára. Sama
hvað ég rýni í þessa viðureign þá sé
ég ekki hvort liðið mun hafa betur.
Ég treysti mér ekki einu sinni til að
koma með „educated“ gisk.
Morgunblaðið/Golli
ð í seinni leiknum í kvöld.
ga stórleik til að
oftar en einu sinni
Morgunblaðið/Hari
Blikar Sveinbjörn Jóhannesson og félagar lögðu Hött í
átta liða úrslitum og mæta Íslandsmeisturunum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
KR-ingar Jón Arnór Stefánsson og samherjar eru afar sig-
urstranglegir í fyrri leik dagsins.
danúrslitum bikarsins
Alls hafa 42 af þeim 43 rússnesku keppendum sem dæmdir
voru í ævilangt keppnisbann fyrir ólöglega lyfjanotkun á
Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí 2014 áfrýjað dómnum til Al-
þjóðaíþróttadómstólsins, CAS. Á meðal þeirra sem áfrýjuðu
eru keppendur sem vonast til að taka þátt á Vetrarólympíu-
leikunum í Pyeongchang í næsta mánuði, en niðurstaða CAS
ætti að liggja fyrir í lok þessa mánaðar.
Skíðagöngumaðurinn Alexander Legkov og bobsleðakapp-
inn Aleksandr Zubkov, sem báðir unnu gull í Sotsjí, eru einnig
meðal þeirra sem áfrýjuðu. Rússar unnu upphaflega til flestra
verðlauna allra þjóða í Sotsjí en hafa verið sviptir 13 af 33
verðlaunum vegna lyfjamála, og þar með farið niður í 4. sæti á verðlaunalist-
anum, niður fyrir Noreg, Kanada og Bandaríkin. sindris@mbl.is
Alexander Legkov
42 Rússar áfrýjuðu til CAS
Bandaríska skíðakonan Mikaela Shiffrin virðist af-
skaplega sigurstrangleg í svigi og stórsvigi á Vetraról-
ympíuleikunum sem hefjast í Pyeongchang 12. febrúar.
Shiffrin hefur unnið fyrstu fimm heimsbikarmót ársins
2018, en einsdæmi er að skíðakona byrji ár svo vel á
mótaröðinni. Um var að ræða þrjú svigmót, eitt stór-
svigsmót og eitt mót í samhliða svigi.
Shiffrin fagnaði sigri í svigmóti í Flachau í Austurríki
í gær, en næstar á eftir henni komu Bernadette Schild
frá Austurríki og hin sænska Frida Hansdotter. Shiffrin
er langstigahæst á heimsbikarmótaröðinni en á listanum
yfir samanlagðan árangur í öllum greinum er hún með 1.381 stig, í sér-
flokki. Wendy Holdener frá Sviss er næst með 560 stig. sindris@mbl.is
Sögulega góð byrjun Shiffrin
Mikaela Shiffrin
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Veigar Páll Gunnarsson skýrði frá því í viðtali við
mbl.is í gær að hann hefði ákveðið að leggja knatt-
spyrnuskóna á hilluna. Það kom í kjölfarið á því að
Stjarnan tilkynnti að Veigar og Skagamaðurinn Jón
Þór Hauksson hefðu verið ráðnir aðstoðarþjálfarar
karlaliðs félagsins, í stað Davíðs Snorra Jónassonar
og Brynjars Björns Gunnarssonar.
Þar með er lokið 22 ára ferli Veigars í meist-
araflokki en þar af lék hann í tíu ár sem atvinnu-
maður, níu í Noregi og eitt í Frakklandi, og er í sjö-
unda sæti yfir þá íslensku knattspyrnumenn sem
hafa skorað flest mörk í deildakeppni erlendis.
Veigar, sem verður 38 ára í mars, átti góðu gengi
að fagna í Noregi og var um árabil einn besti leik-
maður úrvalsdeildarinnar þar í landi. Hann náði
lengst hjá Stabæk en þar lék hann í samtals sjö ár,
spilaði 169 deildaleiki og skoraði 79 mörk. Hann
varð norskur meistari með liðinu 2008 og átti þá
flestar stoðsendingar allra í norsku úrvalsdeildinni,
annað árið í röð.
Alls gerði Veigar 84 mörk í 204 leikjum í norsku
deildakeppninni, þar sem hann spilaði einnig með
Strömsgodset og Vålerenga, en þar að auki lék hann
fimm leiki með Nancy í efstu deild í Frakklandi. Að-
eins sex Íslendingar hafa skorað fleiri mörk erlend-
is, Heiðar Helguson, Eiður Smári Guðjohnsen, Arn-
ór Guðjohnsen, Ásgeir Sigurvinsson, Alfreð
Finnbogason og Teitur Þórðarson.
Á Íslandi lék Veigar lengst með Stjörnunni, frá
1996 til 2000 og aftur frá 2013 til 2016. Ferlinum
lauk hann 2017 með FH og Víkingi R. Veigar lék
með KR í tvö ár, 2002 og 2003, og varð Íslands-
meistari bæði árin. Hann vann síðan Íslandsmeist-
aratitilinn með Stjörnunni árið 2014. Samtals lék
Veigar 376 deildaleiki á ferlinum, heima og erlendis,
og skoraði 128 mörk. Þá lék hann 34 A-landsleiki
fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim 6 mörk.
Morgunblaðið/Ómar
Garðabær Veigar Páll Gunnarsson lék lengst með
Stjörnunni og er kominn þangað aftur.
Sjöundi markahæstur
Íslendinga erlendis
Veigar Páll hættur eftir 22 ára feril í fótboltanum
Laura Georges, knattspyrnukona
frá Frakklandi sem lengi hefur verið í
hópi bestu varnarmanna heims, hefur
samið við Bayern München til hálfs
annars árs. Georges hætti hjá París
SG fyrir nokkrum dögum en þar hefur
hún leikið undanfarin fjögur ár og var
þar áður í röðum Lyon í sex ár. Með
Lyon varð hún sex sinnum franskur
meistari og vann Meistaradeild Evrópu
tvisvar með félaginu. Hún á að baki
185 landsleiki fyrir Frakkland.
Davíð Snorri
Jónasson hefur
verið ráðinn þjálf-
ari U17 ára lands-
liðs drengja í
knattspyrnu og
tekur við af Þor-
láki Árnasyni sem
fyrir skömmu var
ráðinn umsjónar-
maður með hæfileikamótun KSÍ. Davíð
hefur verið aðstoðarþjálfari karlaliðs
Stjörnunnar undanfarin tvö ár en var
áður aðalþjálfari karlaliðs Leiknis í
Reykjavík, við hlið Freys Alexand-
erssonar.
Jón Þór Hauksson og Veigar Páll
Gunnarsson hafa verið ráðnir aðstoð-
arþjálfarar karlaliðs Stjörnunnar í
knattspyrnu, í stað Davíðs Snorra
Jónassonar og Brynjars Björns Gunn-
arssonar en Brynjar var í vetur ráðinn
þjálfari HK. Jón Þór var aðstoðarþjálf-
ari ÍA og síðan aðalþjálfari á loka-
spretti Íslandsmótsins 2017. Veigar
snýr þar með aftur til Stjörnunnar eft-
ir árs fjarveru en nánar er fjallað um
hann hér í opnunni.
Kristall Máni Ingason, ungur knatt-
spyrnumaður úr Fjölni, er á leið til
danska meistaraliðsins FC Köbenhavn
síðar í þessum mánuði. Kristall verður
16 ára síðar í mánuðinum og mun í
kjölfarið skrifa undir samning við
danska félagið. Það var fotbolti.net
sem greindi frá þessu í gær. Kristall
spilaði tíu leiki með U17 ára landsliði
Íslands á síðasta ári.
Enska knattspyrnufélagið Stoke
City keypti í gær austurríska bakvörð-
inn Moritz Bauer af Rubin Kazan í
Rússlandi fyrir fimm milljónir punda.
Þá fékk Burnley franska kantmanninn
Georges-Kevin Nkoudou lánaðan frá
Tottenham út þetta tímabil.
Danski landsliðsmaðurinn Andreas
Christensen skrifaði í gær undir
samning til ársins 2022 við enska úr-
valsdeildarfélagið Chelsea. Þessi 21
árs gamli knattspyrnumaður hefur
fest sig í sessi í vörn Chelsea og leikið
22 leiki í öllum keppnum í vetur. Chris-
tensen kom fyrst til Chelsea 15 ára
gamall. Hann var að láni hjá Borussia
Mönchengladbach í Þýskalandi síð-
ustu tvær leiktíðir.
Argentínski knattspyrnumaðurinn
Carloz Tévez, sem lék áður með West
Ham, Manchester United, Manchester
City og Juventus, er kominn á ný til
uppeldisfélagsins, Boca
Juniors í Argentínu, í ann-
að sinn á þremur árum.
Tévez kom heim árið
2015 en staldr-
aði stutt við
og hélt til
Kína þar
sem hann
lék með
Shanghai
Shenhua og var
þar launahæsti
leikmaður
heims.
Eitt
ogannað