Morgunblaðið - 01.02.2018, Side 1
FYLGIST MEÐ NEYTENDAHEGÐUNTÍMI HAGRÆÐINGAR
tvörubíll Robomart sendir kjörbúðina heim að dyrum. 4
Framundan er tími hagræðingar hjá
fyrirtækjum vegna aukins rekstrar-
kostnaðar og harðnandi samkeppni. 7
VIÐSKIPTA
4
aM
Unnið í samvinnu við
Eva María Þórarinsdóttir Lange hjá Pink Iceland
segist reyna að fylgjast vel með þróun í notkun
samfélagsmiðla og neytendahegðun.
FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2018
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
15 milljarða tekjuauki
Rúmlega 40% lítilla og meðalstórra
fyrirtækja hér á landi hyggjast fjölga
starfsfólki á næstu 3-5 árum sam-
kvæmt nýrri könnun sem gerð var
fyrir Litla Ísland, vettvang þar sem
lítil fyrirtæki vinna að stórum hags-
munamálum óháð atvinnugreinum.
Bakhjarlar vettvangsins eru SAF,
SVÞ, SI, SFF og SA.
Samkvæmt útreikningum Samtaka
atvinnulífsins, byggðum á könn-
uninni, mun störfum fjölga um 4.500 á
næstu árum ef svör stjórnenda fyrir-
tækja með færri en 10 starfsmenn
endurspegla áform sambærilegra
fyrirtækja í atvinnulífinu öllu. Þessi
fjölgun starfa mun auka launa-
greiðslur um 25 milljarða.
Skatttekjur hins opinbera aukast
þannig um 15 milljarða á ári vegna
þessarar tekjuaukningar.
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, segir að lítil og meðalstór
fyrirtæki gegni gríðarlega mikilvægu
hlutverki í samfélaginu. „Þessi litlu
fyrirtæki eru alvöru efnahagsleg
stærð sem við verðum að hlúa að.
Þegar þeim gengur vel, þá gengur ís-
lensku atvinnulífi vel. Uppbygging
innviða gerist ekki nema þessi fyrir-
tæki vaxi og dafni,“ segir Halldór í
samtali við ViðskiptaMoggann.
Samkvæmt könnuninni hyggst
rúmlega helmingur fyrirtækja fjölga
um 2-4 starfsmenn á tímabilinu en
fjórðungur fyrirtækjanna hyggst
fjölga um 5-9 starfsmenn. Tæplega
helmingur fyrirtækja telur hinsvegar
að starfsmannafjöldi muni standa í
stað á næstu 3-5 árum. Rúmlega 10%
telja að störfum muni fækka.
Minni fyrirtæki bjartsýnni
Bjartsýni um fjölgun starfa er
meiri hjá minni fyrirtækjum en þeim
stærri og stærri fyrirtæki hyggjast
frekar fækka starfsfólki en þau
minni. Þegar horft er á einstök
félagasamtök þá ríkir mesta bjart-
sýnin hjá fyrirtækjum innan Sam-
orku, samtökum orku- og veitufyr-
irtækja, en einnig eru um 40%
svarenda innan vébanda SAF, SI og
SVÞ bjartsýn á fjölgun starfsfólks.
Mest er svartsýnin innan vébanda
SFS, Samtaka fyrirtækja í sjávar-
útvegi, en um þriðjungur svarenda
þar telur að störfum muni fækka á
tímabilinu.
Spurður að því hvernig beri að hlúa
að litlum fyrirtækjum, segir Halldór
Benjamín að lækkun tryggingagjalds
sé þar efst á blaði, en einnig einföldun
rekstrarumhverfis fyrirtækjanna.
„Nú er rétti tíminn til að efna loforðið
um lækkun tryggingagjaldsins.“
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Hið opinbera mun bera
ríkulega úr býtum í formi
skatttekna fjölgi störfum
um 4.500 á næstu árum,
eins og ný könnun SA
gefur fyrirheit um.
Morgunblaðið/Ómar
Fjölgun starfa næstu ár mun auka launagreiðslur um 25 milljarða og munu
skatttekjur hins opinbera aukast um 15 milljarða á ári vegna tekjuaukningar.
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
1.8.‘17
1.8.‘17
31.1.‘18
31.1.‘18
1.793,3
1.760,35
130
125
120
115
110
122,95
124,65
Samkeppnisstaða fyrirtækja á
Grundartangasvæðinu er skökk að
ýmsu leyti, að sögn Bolla Árnasonar,
framkvæmdastjóra þjónustufyrir-
tækisins Meitils GT tækni, sem ein-
göngu starfar innan Grundartanga-
svæðisins. Sem dæmi um það sem
bæta þyrfti úr á svæðinu eru orku-
málin. „Sveitarfélagið sem Grundar-
tangi tilheyrir, Hvalfjarðarsveit, út-
vegar til dæmis ekki heitt vatn inn á
svæðið. Málið hefur lengi verið til
umræðu. Við þurfum því að kynda
upp með rafmagni og kaupa raf-
magnið á RARIK-taxta. Þetta
skekkir samkeppnisstöðuna enn
frekar fyrir þjónustufyrirtæki á
svæðinu. Þá má nefna samgöngu-
málin, en hingað gengur enginn
strætisvagn,“ segir Bolli.
Á Grundartangasvæðinu starfa
um 1.100 manns, en með verktökum
er fjöldinn nálægt 2.000. Viðbúið er
að fyrirtækjum fjölgi
nokkuð á næstu árum.
Samkeppnisstaðan er skökk
Morgunblaðið/RAX
Bolli segir sveitarfélagið ekki útvega
heitt vatn inn á Grundartanga.
Mikill kostnaður fylgir því
að reka þjónustufyrirtæki
á Grundartanga.
8
Á yfirborðinu virðist Jerome
Powell, nýr seðlabankastjóri,
taka við góðu búi en undir
niðri er ástandið
háskalegt.
Seðlabankastjóri
í glímu við góðæri
10
Berkshire Hathaway, Amazon
og JP Morgan stofna saman
byltingarkennt fyrirtæki á
heilbrigðissviði
fyrir starfsfólk sitt.
Buffett, Bezos
og Dimon í félagi
11