Morgunblaðið - 21.04.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.04.2018, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018 RAFVIRKJAR! Óskum eftir rafvirkjum til framtíðar starfa. Umsóknum ásamt ferilskrá sendist á rafbodi@rafbodi.is Skeiðarás 3 - 210 Garðabær - 565 8098 - rafbodi@rafbodi.is Læknamóttökuritari 59% staða sem getur tímabundið krafist hærra hlutfalls. Nauðsynlegt er að viðkom- andi reyki ekki, sé sjálfstæður, vanur tölvuvinnu, kassauppgjörsvinnu og helst bókhaldi. Ferill sem greinir menntun, starfs- reynslu og fjarvistir í tímaröð ásamt upplýsingum um tölvureynslu, uppgjörs- og/eða bókhaldsvinnu, persónu- og fjölskylduhagi, launakröfur, hvers vegna hlutastarf henti auk valupplýsinga eins og um veikindi og meðmælendur óskast strax á starfsumsokn@gmail.com. Símaþjónusta sumarafleysing Óskað er eftir þjónustuliprum og jákvæðum einstaklingi til starfa við símsvörun og létt skrifstofustörf. Viðkomandi þarf að búa yfir skipulagshæfni og frumkvæði og geta unnið undir nokkru álagi. Einungis reyklausir einstaklingar koma til greina. Vinnutíminn er áætlaður annars vegar frá kl. 8.00 til 14.00 og hins vegar frá kl. 14.00 á daginn til kl. 18.00 á kvöldin. Áhugasamir einstaklingar skili inn greinar- góðum umsóknum á box@mbl.is fyrir 24. apríl, merktum: „M – 26370“. RITARI - BÓKHALD - O.FL. Hefur þú áhuga á 40% starfi hjá lítilli verkfræðistofu á byggingarsviðinu sem ritari og þátttakandi í öðrum störfum stofunnar? Starfið krefst kunnáttu í bókfærslu (DK-bók- haldskerfi) og tölvukunnáttu og reynslu á þeim sviðum. Þekking á markaðsmálum og byggingarmálum kostur og áhugi á að læra um þau málefni. Starfið krefst sjálfstæðis, frumkvæðis og lipurðar starfsmanns. Mikið lagt upp úr jákvæðum samskiptum. Ekki sækja um starfið nema þú sért að leita þér að framtíðarstarfi. Auk þessa hefðum við áhuga á að vita hvort þú búir yfir forritunarkunnáttu og kunnir að þýða tölvukerfi yfir á ensku. Ef þetta er eitthvað fyrir þig sendu okkur þá upplýsingar ásamt meðmælum á póstfangið: hannarr@hannarr.com. Upplýsingar ekki gefnar í síma. Við gætum þess trúnaðar sem þú óskar eftir. Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að dugmiklu fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð. Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana. Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is Hafðu samband í dag og byrjaðu launaða líkamsrækt strax á morgun. www.mbl.is/laushverfi Hressandi morgunganga Karlakórinn Lóuþrælar úr Húnaþingi vestra heldur sína árlegu vortónleika í Seltjarn- arneskirkju í dag, laug- ardaginn 21. apríl, kl. 16. Söngstjóri kórsins er Ólafur Rúnarsson, undirleikari El- ínborg Sigurgeirsdóttir og einsöngvarar Friðrik M. Sig- urðsson, Guðmundur Þor- bergsson og Skúli Einarsson. Aðgangseyrir er 3.000 krón- ur og dagskráin fjölbreytt að vanda. Lóuþrælar syngja á Seltjarnarnesi Háskólamenntuðu fólki á Ís- landi á aldrinum 25 til 64 ára hefur fjölgað um 14,7% frá árinu 2003. Alls 42,4% fólks í þessum aldurshópi höfðu lok- ið háskólamenntun á síðasta ári eða alls 73.600. Á sama tíma fækkaði þeim sem ein- göngu höfðu lokið grunn- menntun um rúmlega 11% og eru þeir um 39.700, tæp- lega 23% þeirra sem eru 25- 64 ára. Hægari breytingar urðu á fjölda þeirra sem ein- göngu höfðu lokið starfs- og framhaldsmenntun en fjöld- inn hefur verið á bilinu 35- 39% frá 2003. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Ís- lands. 35% karla með háskólapróf Konum með háskóla- menntun hefur fjölgað hrað- ar en körlum. Á síðastliðnum fjórtán árum hefur konum með háskólamenntun fjölgað um rúm 20% og var um helmingur kvenna með há- skólamenntun á síðasta ári. Á sama tímabili hefur körl- um með háskólamenntun fjölgað um tæplega 10% og nú eru um 35% þeirra með háskólapróf. Menntunarstig lands- byggðarfólks er eins og verið hefur talsvert lægra en íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Þar hefur um þriðjungur fólks eingöngu lokið grunnmennt- un og var það næstum tvöfalt hærra hlutfall en á höfuð- borgarsvæðinu. Þróunin á landsbyggðinni er þó sú sama og í borginni þar sem sífellt fleiri sækja sér há- skólamenntun. Mikil atvinnuþátttaka Atvinnuþátttaka var mest á meðal háskólamenntaðra í aldurshópnum 25-64 ára, tæplega 95% árið 2017. Með- al þeirra sem eingöngu höfðu lokið starfs- og framhalds- menntun var atvinnuþátttak- an rúmlega 91% en minnst var hún á meðal þeirra sem eingöngu höfðu lokið grunn- menntun, tæp 79%. Atvinnu- leysi var mest hjá konum sem eingöngu höfðu lokið starfs- og framhaldsmennt- un, 2,3%. Minnst var at- vinnuleysið meðal kvenna sem eingöngu höfðu lokið grunnmenntun eða 1,3%. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Mannlíf Atvinnuþátttaka er mest á meðal háskólamenntaðra í aldurshópnum 25-64 ára, skv. nýrri könnun Hagstofunnar. Háskólamenntuðu fólki fjölgar hratt  Menntunarstigið lægst úti á landi  Konurnar sækja á Morgunblaðið/Sigurður Bogi Landsbyggð Menntunarstig þar lægra en í borginni. Alls 14,1 milljarðs kr. heild- arávinningur var af starf- semi Virk starfsendurhæf- ingarsjóðs á síðasta ári og ávinningur á hvern útskrif- aðan einstakling var 12,6 millj. kr., skv. nýrri skýrslu Talnakönnunar. Bæði heildarávinningurinn og ávinningur samfélagsins af virkni útskrifaðra ein- staklinga eykst á milli ára. Niðurstöður fyrri athug- ana Talnakönnunar sýndu að ávinningur af starfi VIRK var 13,6 milljarðar kr árið 2016, 13,8 milljarðar kr. 2015, 11,2 milljarðar kr. 2014 og 9,7 milljarðar kr. á árinu 2013, að því er fram kemur í frétt á vef sjóðsins. Þetta er fimmta árið í röð sem VIRK fær Talnakönnun til að greina árangur og hagnað af starfsemi sinni. Sem fyrr var unnið út frá ópersónugreinanlegum upp- lýsingum úr gagnagrunni. Mikill ávinningur af starfsemi Virk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.