Morgunblaðið - 25.05.2018, Side 12

Morgunblaðið - 25.05.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2018 Velkomin í okkar hóp! Innritun og nánari upplýsingar í síma 581 3730 og á jsb.is Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt fyrir konur og stelpur sem tekur mið af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti, hreysti og vellíðan. E F L IR / H N O T S K Ó G U R Gefum í fyrir sumarfrí! Ný námskeið hefjast 4. júní TTHRAÐLEST 2 VIKUR -5X Í VIKU STELPUR KONUR STAÐURINN RÆKTIN Gaman Í fjallgöngu í Ananga, Snæfríður og eiginmaðurinn Matthías og dæturnar Ragnheiður, Margrét og Bryndís. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þegar ég eignaðist mittþriðja barn fyrir fimm ár-um langaði mig til aðferðast í fæðingarorlofinu. Þá fórum við að stunda íbúðaskipti af fullum krafti, því það er ódýr leið til að ferðast með stóra fjölskyldu. Við fórum til Kanaríeyja, þangað sem við höfum farið árlega á vet- urna síðan og dvalið þar í mánuð eða lengur með allar dæturnar,“ segir Snæfríður Ingadóttir, sem sent hef- ur frá sér ferðahandbókina Æv- intýraeyjan Tenerife, en í bókinni segir hún frá eigin reynslu af eyj- unni og gefur lesendum hugmyndir að ýmsu áhugaverðu sem henni finnst vert að gefa gaum og upplifa þar. „Af þeim eyjum sem ég hef heimsótt af Kanaríeyjum er Tener- ife í mestu uppáhaldi. Náttúran þar er svo fjölbreytt og þessi litla eyja er einstaklega gróðursæl. Hún er fimmtíu sinnum minni en Ísland, en þrátt fyrir smæðina hefur hún upp á svo margt að bjóða. Hún er ekki nema hundrað kílómetrar þar sem hún er lengst og fimmtíu kílómetrar þar sem hún er breiðust. Samt hefur hún nánast allt, og því er hægt á einum og sama degi að liggja á strönd og sóla sig, ganga í gegnum rakan regnskóg eða þurran furu- skóg, snerta snjó, ganga á hrauni eða í gegnum ávaxtaakra eða bananaplantekru.“ Snæfríður tekur fram að hún sé ekki að reyna að afgreiða allt á eyj- unni í bókinni. „Það sem rataði í þessa bók eru hlutir sem mér per- sónulega finnst þess virði að deila og vekja athygli á. Bókin er engan veg- inn tæmandi fyrir eyjuna. Nánast allt í bókinni hef ég sjálf prófað, myndirnar eru mestmegnis mínar eigin og ég hef gert þetta með fjöl- skyldunni minni.“ Veitingastaðir vínræktenda spretta upp í bílskúrum Snæfríður segir að þar sem fjölskyldan hafi ferðast svo mikið í gegnum íbúðaskipti sem raun ber vitni hafi þau oft lent á öðruvísi stöðum en hinn venjulegi ferðamað- ur. Og frá heimamönnum hafa þau fengið alls konar skemmtilegar ábendingar um hvað sé áhugavert. „Tenerife skiptist í tvennt; ferðamannastrandsvæðið í suðri og svo restina af eyjunni. Langflestir ferðamenn hópa sig á suðvestur- horni eyjunnar, en ef fólk fer út fyr- ir það svæði kemst það að hversu margt annað er í boði, til dæmis náttúrulaugar og píramídar. Mig langaði að skrifa þessa bók til að hvetja fólk til að ferðast um eyjuna, sjá fleiri hliðar á henni. Þarna eru skemmtilegar göngu- og hjólaleiðir, til dæmis er Helvítisgilið ein af vin- sælli gönguleiðunum. Á vernduðum svæðum eyjunnar er að finna áhuga- verðar náttúruupplifanir, til dæmis Teide-þjóðgarðinn, með hæsta fjalli Spánar, El pico del Teide.“ Snæfríður mælir eindregið með að fólk þefi uppi veitingastaði vín- framleiðenda í vínræktarhéruð- unum. „Þeir mega opna sína eigin veitingastaði í fjóra mánuði á ári og þar selja þeir eigin afurðir beint frá býli, vín og heimagerðan mat. Þessir veitingastaðir spretta upp í þennan stutta tíma í bílskúrum, bakgörðum og kjöllurum. Það getur verið erfitt að finna þá, en það er virkilega gam- an að rekast inn á svona stað, mat- urinn er góður og ódýr. Og vínið geggjað. Þetta er mikil upplifun og enginn talar ensku, en það er um að gera að ganga inn, setjast við borð og segja „si“ við öllu sem kemur á borðið, því það er enginn matseðill.“ Snæfríður segist halda mikið upp á rétt sem fæst á Tenerife og heitir Papas arrugadas, eða krump- aðar kartöflur. „Þetta eru kartöflur soðnar upp úr sjó eða mjög söltu vatni og borðaðar kaldar með mojo- sósu. Þetta lítur ekki vel út en er hrikalega gott með köldum bjór.“ Snæfríður hefur skipulagt gönguferð á Tenerife í haust og seg- ist þar hafa tekið það besta úr bók- inni sinni og sett saman í vikulanga gönguferð. „Ég er í samstarfi við Úrval- Útsýn með þessa göngu og hlakka til að sýna fólki hina hliðina á Ten- erife. Við fjölskyldan ætlum að vera búsett næsta vetur á Tenerife og gerast námsmenn, læra spænskuna, enda er ég ekkert hætt að heim- sækja þessar eyjar.“ Helvítisgilið og krumpaðar kartöflur Eyjan Tenerife, sem er fimmtíu sinnum minni en Ísland, hefur upp á ótal margt fleira að bjóða en sólarstrendur. Snæfríður Ingadóttir hefur kynnst því af eigin raun og gefur fólki ráð í nýrri ferðahandbók. Náttúrufegurð Dóttir Snæfríðar á gangi á norðurhluta eyjunnar en þar er gróðursælt og bratt niður í sjó. Ananga Snæfríður á náttúruverndarsvæðinu sem geym- ir meðal annars einangruð fjallaþorp og regnskóga. Ámorgun verður kosið tilsveitarstjórna á landinuöllu. Pólitík á Íslandi geturoft verið ágætis áminning um hversu sveitó við Íslendingar er- um þrátt fyrir að við lítum oft á okkur sem framúrstefnulega nútímaþjóð. Þetta sést best í sveitarstjórnarkosn- ingum þar sem um 1% Íslendinga er í framboði á 204 framboðslistum. Þar að auki fer fram persónukjör í 15 sveitarfélögunum. Þetta er allt saman dásamlegt en fátt er hins vegar dásamlegra fyrir borgarbarn eins og mig en að skoða framboð á lands- byggðinni. Í Vopnafjarðarhreppi er að finna framboðið Betra Sigtún, sem er frá- bært nafn á framboði, þrátt fyrir að ég hafi ekki hugmynd um hvað Sig- tún er né hvað þarf til að gera það betra en ætla að ímynda mér að þar vanti fleiri hjólastíga og færri mislæg gatnamót. Í Bolungarvíkurkaupstað er framboðslisti með nafnið Máttur meyja og manna, sem er fallegt og ljóðrænt nafn en hver ætli afstaða þeirra sé til borgarlínu? Í Ölfusi er framboð Framfarasinna og félagshyggju- fólks í Ölfusi, sem hljómar í mínum eyrum eins og ef Miðflokkurinn og Samfylkingin yrðu að koma sér saman um nafn á framboði í barsvarskeppi á sveitaballi. Í Skeiða- og Gnúpverjahreppi verður síðan æsispennandi »Kjósendur í Skeiða- ogGnúpverjahreppi hafa á sl. átta árum fengið að velja á milli átta framboða. Heimur Magnúsar Heimis Magnús H. Jónasson mhj@mbl.is kosning. Þar eru framboði þrír listar, Okkar sveit, Gróska og Afl til upp- byggingar. Í kosningunum 2014 voru 399 á kjörskrá í Skeiða- og Gnúp- verjahreppi og fékk Okkar sveit hreinan meirihluta. Okkar sveit velti þar með hreinum meirihluta Far- sælla framfarasinna frá árinu 2010, sem sátu í sveitarstjórn með Nýju afli og Einingu. Anna Sigríður Valdi- marsdóttir var einu atkvæði frá því að ná sæti í sveitarstjórn árið 2014 fyrir framboðslistann Fjölbreytt og réttlátt samfélag. Nú er spurning hvort henni vegni betur í ár sem odd- viti Grósku. Kjósendur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi hafa á sl. átta árum fengið að velja á milli átta framboða. Slíkur fjöldi framboða í sveitarfélagi sem hefur um 400 manns á kjörskrá er eins íslenskt og það gerist. Við Íslendingar þurfum hins vegar ekki að vera svona sveitó og það væri kannski réttast að skoða sameiningu sveitarfélaga af ein- hverri alvöru eftir kosningar?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.