Morgunblaðið - 25.05.2018, Side 25

Morgunblaðið - 25.05.2018, Side 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2018 Flestum sem komnir eru til vits og ára og al- ist hafa upp við Ísa- fjarðardjúp þykir firn mikil þær fréttir að lax- ar þeir er ganga í ár í Ísafjarðardjúpi séu nú svo verðmætir að vel- ferð þeirra og erfða- mengi ráði nú hvort mannlíf við Djúp fái að þróast í takt við eðlilegt sambýli manns og náttúru líkt og verið hefur þar frá því að hinir frægu elstu menn muna. Að um sé að ræða landnámsstofn voru slík tíðindi að kunnuga setti hljóða. Slíkur arf- hreinleiki er með nokkrum ólík- indum. Umræðuhefðin er orðin slík að smáatriðin eru orðin aðalatriði og rangfærslurnar að sannleika. Rétt er því að rekja nokkuð sögu laxveiða og „hreinleika“ stofna. Lýsing Ferðafélagsins Í gegnum aldirnar hafa bæði há- menntaðir vísindamenn og aðrir far- ið um landið og skrásett landkosti. Ekki úr vegi að rekja skrif sumra þeirra í stuttu máli. Jóhann Hjaltason skólastjóri skrifaði lýsingu á Norður-Ísafjarð- arsýslu í árbók Ferðafélags Íslands árið 1949. Um Laugardalsá skrifar hann: „Áin er því lygn með miklum botngróðri og veiðisælt silungsvatn, en lax hefur þar eigi verið svo menn viti, fremur en í öðrum ám Vest- fjarða, fram til síðustu ára, að laxa- seiði hafa verið látin í ána til upp- vaxtar.“ Svo mörg voru þau orð. Engum orðum fer hann frekar um lax- veiði í Ísafjarðardjúpi. Frumkvöðullinn Bjarni Sæmundsson Í bók Bjarna Sæ- mundssonar fiskifræð- ings, Fiskarnir, sem kom út árið 1926 rekur hann nokkuð nákvæm- lega hvar lax veiðist á Íslandi. Er kemur að Vestfjörðum í hans upptalningu stendur: „en á öllu svæðinu þaðan kringum Vestfjarðakjálkann, að Hrútafirði, verður varla vart við lax, eða menn greina hann þar tæplega frá sjóurr- iða.“ Í sóknarlýsingum Vestfjarða sem ritaðar voru á árunum 1839-1854 að tillögu Jónasar skálds Hallgríms- sonar er nokkuð nákvæm lýsing á hlunnindum jarða í hverri sókn í Ísa- fjarðardjúpi. Er þar nokkrum sinn- um nefnd silungsveiði en aldrei er laxveiði nefnd á nafn. Í undirstöðuritinu Lýsing Íslands eftir Þorvald Thoroddsen sem gefin var út árið 1881 skrifar hann: „Lax- inn (Salmo salar) gengur upp í mjög margar ár bæði sunnan lands og norðan, en miklir hlutar landsins eru þó laxlausir, t.d. Vestfirðir allir milli Gilsfjarðar og Bitru, suðurströndin öll fyrir austan Þjórsá og Austfirðir norður að Héraðsflóa.“ Félagarnir Eggert og Bjarni Eggert Ólafsson og Bjarni Páls- son fóru rannsóknarferðir um Ísland á árunum 1752-1757 og skildu eftir sig handrit að ferðabók er síðar kom út. Í henni kemur fram að hvergi veiðist lax í ám á Vestfjörðum en í nokkrum veiðist það sem þá var kall- aður laxbróðir, öðru nafni sjóbirt- ingur. Engin þeirra áa er í Ísafjarð- ardjúpi. Að auki segja þeir silung veiðast víða. Í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns um Ísafjarðar- og Strandasýslu, sem rituð var 1710 er nákvæm lýsing á mannlífi og stað- háttum, svo mörgum þótti nóg um. Þar stendur um Laugadalsá: „Sil- úngsveiði lítil í Laugadalsá, þykir nú fara til rýrðar og valla með hlunn- indum teljandi.“ Eðlilega er ekki minnst á laxveiði í ánni enda áttu eft- ir að líða tvær og hálf öld þar til hún var gerð laxgeng. Um Langadalsá segir: „Silúngsveiði gagnvæn hefur verið í Lángadalsá, en hefur nú brugðist í nokkur ár að mestu ald- eilis.“ Lax ekki nefndur á nafn hér frekar en annars staðar í umfjöllun þeirra um Ísafjarðarsýslu. Það er á grundvelli þessarar sögu sem vísindaleg ákvörðun var tekin árið 2004 að leyfa laxeldi á Vest- fjörðum þegar stærstum hluta strandlengju landsins var lokað. Laxeldi í Ísafjarðardjúpi á „gömlum merg“ Af þessum örfáum dæmum sést að laxveiðar við Ísafjarðardjúp hafa ekki verið stundaðar lengi í sögulegu samhengi. Þvert á móti. Þær hófust ekki að neinu marki fyrr en örfáir menn fóru að fikta við laxarækt rétt fyrir miðja síðustu öld. Í Langadalsá, sem er stærst þeirra áa í Djúpinu sem eru laxgengar frá náttúrunnar hendi, veiddust í fyrsta skipti 100 laxar eftir 1960. Veiði úr henni hefur ávallt verið mjög sveiflukennd og frá 1950 til 2013 var meðalveiðin aðeins 174 laxar. Árið 1936 hófust tilraunir til þess að sprengja fiskistiga í Laugardalsá. Þær báru lítinn sem engan árangur fyrr en árið 1969 er steyptur var laxastigi í ána. Eftir það fóru laxveið- ar í Laugardalsá vaxandi. Um leið og ræktun í ám í Ísafjarðardjúpi skilaði sér skiluðu árnar sér í hlunnindamat. Má þar nefna Handbók um hlunn- indajarðir á Íslandi eftir Lárus Ágúst Gíslason sem gefin var út árið 1982 þó skráning þar sé nokkuð óná- kvæm. Sleppingar og stórfelld hafbeit Eins og áður sagði voru það mann- anna verk, m.a. með sleppingum ut- anaðkomandi seiða, sem urðu þess valdandi að lax tók að veiðast í áð- urnefndum ám svo og öðrum á þess- um slóðum. Um árabil var miklum fjölda seiða frá hinum ýmsu stöðum á landinu sleppt í árnar. Voru gerðar talsverðar tilraunir við þessar slepp- ingar og fóru fram talsverðar rann- sóknir á því hvar best væri að sleppa fiskinum. Var honum meðal annars sleppt utarlega í Ísafjarðardjúpi en niðurstöður rannsókna voru á þann veg að sá fiskur skilaði sér síst í árn- ar aftur. Það er athyglisverð stað- reynd með hliðsjón af umræðum að undanförnu. Fjöldi þessara fiska er sleppt var telst í hundruðum þús- unda og frá ýmsum stöðum á landinu og þar af leiðandi með hinum ýmsu erfðamengjum. Þrátt fyrir þessar ólíku tegundir er ekki að sjá, ef marka má vís- indamenn, að það hafi haft nein áhrif á erfðamengi „landnámslaxsins“ í Djúpinu. Í umræðum undanfarið hefur lítt eða ekki verið getið um umtalsvert seiðaeldi og hafbeit sem stunduð var frá áttunda til tíunda áratugar síð- ustu aldar í Ísafjarðardjúpi. Seiði í eldi voru af ýmsum stöðum á landinu og voru seld víða um land og einnig til Noregs um tíma. Þá hófst einnig umtalsverð hafbeit eins og áður sagði. Endurheimtur til stöðvanna voru minni en vonast hafði verið til en laxagengd á Vestfjörðum öllum jókst mjög á þessum árum. Mátti víða veiða lax í ám þar sem hans hafði ekki orðið vart áður. Af lax- veiðiám má nefna að veiði í Hvanna- dalsá fór í 304 fiska árið 1991. Þrátt fyrir þessa miklu laxagengd „óhreinna“ eldislaxa sjást þess engin merki í erfðamengi laxastofnsins í Ísafjarðardjúpi í dag, ef marka má vísindamenn. Er genamengið óbreytanlegt? Því er ekki skrýtið að leikmaður velti fyrir sér hvort hinn náttúrulegi stofn í Ísafjarðardjúpi sé svo sterkur að allur sá utanaðkomandi lax sem sannarlega hefur verið sleppt í ár þar og í hafbeit hafi engin áhrif haft. Sé svo, er þá einhver ástæða til þess að óttast að fiskeldi með ströngustu varúðarráðstöfnum sem þekkjast geti haft þar neikvæð áhrif? Leitin að landnámslaxinum Efti Halldór Jónsson » Þrátt fyrir þessa miklu laxagengd „óhreinna“ eldislaxa sjást þess engin merki í erfðamengi laxastofns- ins í Ísafjarðardjúpi í dag, ef marka má vís- indamenn. Halldór Jónsson Höfundur er fjármálastjóri, búsettur á Akranesi. Friðrik Frið- riksson fæddist að Hálsi í Svarfaðardal 25. maí 1868 og dó 9. mars 1961. Mér er ljúft að horfa til baka. „Öll þjóðin kannast við starf hins sívak- andi æskuleiðtoga. En nánir vinir hans muna samverustund- irnar, er þeir voru vottar hans að fræðslu hans og iðandi lífsfjöri, er ógleymanlegar sögur voru sagðar og hlegið var dátt, er leiftrandi augu hans sögðu frá fjársjóði hjartans, og gamansemin var í fylgd með alvöru hins fróða vinar. Menn hlökkuðu til slíkra sam- funda og fóru fagnandi heim.“ (Sr. Bjarni Jónsson: Séra Friðrik segir frá eftir Valtý Stefánsson, Bók- fellsútgáfan.) Fjöldi uppalenda hefur bent á hvað leikur og samvera eru mik- ilvæg fyrir andlegan, félagslegan og líkamlegan þroska. Börnin upp- götva leyndardóma tilverunnar og læra þar með leikreglurnar. Í öll- um listum leynist leikur. „Leik- urinn er móðir listanna.“ (Gustav Mugglin.) Með leiknum lærum við ekki aðeins að gera tilraunir, þjálfa hug og hönd. Við lærum leyndardómana á bak við sam- skipti og tjáskipti í gleði og sorg – lærum að bera virðingu fyrir með- leikendum og mótherjum. Séra Friðrik var hugsjónamað- ur. Ásamt trúarfræðslu var leikur og samfélag einn af meginþátt- unum í stefnu KFUM og K, Kristilegu félagi ungra manna og Kristilegu félagi ungra kvenna, sem Friðrik stofnaði á sínum tíma. Hann var hugljúfur, hug- myndaríkur, hugdjarfur, húm- oristi, einlægur trúmaður og mik- ill náttúruunnandi. Ég man þegar hann ávarpaði okkur drengina í Vatnaskógi um miðja síðustu öld og minnti okkur á að njóta æsk- unnar og vináttunnar. Hann hvatti okkur til að hlusta á söng fuglanna og þytinn í trjánum og að ganga ætíð á Guðs vegum. Í ræðu sem sr. Frið- rik flutti í Lágafells- kirkju við gönguför fótboltafélags KFUM, sunnud. 16. júlí 1911, lagði hann áherslu á fegurð og prédikun náttúrunnar: „Hlustið þá, bræður, á fuglasönginn í dag og gefið gætur að pré- dikun hans. Það er eins og svari þeir hver öðrum, ló- an með „dirrindí“ sínu, spóinn með velli sínu, hrossagaukurinn með gneggi sínu, örninn með hlakki sínu og allt þetta hljómar til vor og kveður og kvakar um kærleika, ást og yndi.“ Ég átti því láni að fagna í æsku að alast upp í skjóli góðra fé- lagasamtaka og vina. Fundir í KFUM á Amtmannsstíg 2b, svell- andi söngur, sögur og samvera. Dvölin í Vatnaskógi og æfingar og ævintýri með Knattspyrnufélaginu Val frá 8 ára aldri gagntóku hug minn og hjarta um áraraðir og áhrifin vara ævilangt. Í erindi sem sr. Friðrik flutti við vígslu fót- boltasvæðis KFUM 6. ágúst 1911, sagði hann: „Leggið alla stund á að leggja fegurð inn í leik yðar. Látið aldrei kappið bera fegurðina ofurliði. Látið ekki líkamann vera í 18 hlykkjum, heldur látið hvern vöðva vera stæltan og allan líkam- ann í þeirri stellingu sem fegurst er. Verið þar á svæðinu sem yður ber að vera hverjum samkvæmt skyldu sinni og varast blindan ákafa og fum. Allur þjösnaskapur veri langt frá yður.“ Nokkru áður en ég hóf störf í Vatnaskógi sumarið 1957 átti ég oft góðar stundir með sr. Friðriki. Við drukkum ilmandi, bleksterkt kaffi með rjóma og hann gaf unga manninum góð ráð: „Vertu ávallt glaður í boðun þinni. Kenndu drengjunum að bera virðingu fyrir ættjörðinni og íslenska fánanum. Gefðu þeim sér- stakan gaum sem hvorki taka þátt í íþróttum né róa út á vatn. Reyndu að muna nöfn drengjanna. Þau skipta persónu þeirra miklu máli.“ Sr. Friðrik var hlýr, brosmildur og ótrúlega skarpur og minnugur á efri árum, en blindur. Níutíu ára, vorið 1958, hélt hann hátíð- arræðu á latínu við útskrift ný- stúdenta í MR. Mér eru ofarlega í huga orð tveggja drengja sem ég hitti fyrir nokkrum árum, báðir á sjötugs- aldri – en þeir dvöldust í Vatna- skógi á unga aldri. Egill Jónsson sagði: „Vatnaskógarævintýrið varir ævilangt. Ég var hvorki í íþróttum né „á bátunum piltarnir bruna“ en átti ógleymanlegar stundir á göngu-, sögu- og skógarferðum með foringja og fámennum hópi vina. Svo undraðist ég alltaf hvað 95 sprellfjörugir strákar gátu ver- ið stilltir á kvöldvökum.“ Rúnar Júlíusson sagði: Íþróttirnar gleymast seint og leikirnir í Lindarrjóðri voru fjör- ugir. Skemmtilegt var þegar við drengirnir unnum leiðtogana og vinnumennina í knattspyrnu og eftirminnilegt að við Keflvíkingar, Akurnesingar og Vistmanna- eyingar skyldum hafa okkar eigin borð í salnum. Kraftmikill söngur á kvöldvökum við arineldinn og spennandi sögur sköpuðu sérstaka stemningu.“ Og enn er starfinu haldið áfram fyrir íslenska æsku í KFUM, Val, Vatnaskógi, Vindáshlíð, Kald- árseli, Ölveri og á Hólavatni. Leikur og list í góðum og skemmtilegum félagsskap hefur áhrif á líðan okkar alla ævi. KFUM, Valur og Vatnaskógur Eftir Þóri S. Guðbergsson Þórir S. Guðbergsson » 150 ára fæðingar- afmæli sr. Friðriks Friðriksson, minningar um kynni af sr. Friðriki og starfi hans. Höfundur er félagsráðgjafi. thorirsg@gmail.com Framtíðarsýn nú- verandi meirihluta í Reykjavík byggist á þeirri forsendu að hægt verði að töfra fram 200 milljarða til að losa um bygging- arlandið í Vatnsmýr- inni og 21 milljarð til að losna við Miklu- braut af yfirborði jarðar. Þessar óskaforsendur kristallast í því að borgarlínan er hönnuð út frá aðalskipulagi sem gerir ráð fyrir þéttri byggð í Vatnsmýri sem þjóna þurfi með hágæða- samgöngukerfi. Allar leiðir borg- arlínunnar liggja niður á BSÍ, sem í dag er staðsett á óvistlegri um- ferðareyju. Óháð því hvað hverjum kann að finnast um staðsetningu Reykja- víkurflugvallar væri mögulega skynsamlegra að aðlaga sig að þeim veruleika að 350 þúsund manna samfélag hefur ekki efni á að eyðileggja flugvöll sem kostar a.m.k. 200 milljarða að koma á nýjan stað. Raunhæfara væri að byggja sameiginlega framtíðarsýn okkar Reykvíkinga á þeirri forsendu að þungamiðja borg- arinnar verði milli Kringlumýrarbrautar og Ártúnsbrekku. Búum til nýjan miðbæ í austurborg- inni á stærsta og veðursælasta land- massa Reykjavíkur. Þéttum byggð upp að Laugardalnum, sem yrði miðborgargarð- urinn. Borgarlína framtíðarinnar gæti legið um Sæbraut, þar sem stór landflæmi bíða frekari þróunar. Flýtum atvinnu- og íbúðauppbygg- ingu við Kringlu, í Skeifu, við Borgartún/Kirkjusand og með- fram Miklubraut. Gerum Vesturbæinn að sjötta úthverfi Reykjavíkur. Færum mið- borgina austar, nær hinum út- hverfunum. Færum þunga- miðju borgarinnar nær úthverfunum Eftir Snædísi Karlsdóttur Snædís Karlsdóttir » Gerum Vesturbæinn að sjötta úthverfi Reykjavíkur. Færum miðborgina austar, nær hinum úthverfunum. Höfundur skipar 2. sæti á lista Fram- sóknarflokksins í Reykjavík. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.