Morgunblaðið - 25.05.2018, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2018
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Suðurgata 53, Hafnarfjörður, fnr. 207-9756, þingl. eig. Baldvin Reyr
Gunnarsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves,
þriðjudaginn 29. maí nk. kl. 10:30.
Álfholt 12, Hafnarfjörður, fnr. 207-3234, þingl. eig. Sigrún Benedikts-
dóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 29. maí nk. kl.
11:00.
Vesturholt 17, Hafnarfjörður, fnr. 224-3226, þingl. eig. Herdís Hrönn
Árnadóttir, gerðarbeiðandi Lánasjóður íslenskra námsmanna,
þriðjudaginn 29. maí nk. kl. 11:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
24. maí 2018
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Vesturvegur 28, Vestmannaeyjar, fnr. 218-5098, þingl. eig. Leiguíbúðir
Vestmannaeyjum ehf., gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf.,
miðvikudaginn 30. maí nk. kl. 14:00.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
23. maí 2018
Tilkynningar
ATVINNUVEGA- OG NÝSKÖPUNARRÁÐUNEYTIÐ
Úthlutun aflaheimilda Íslands
fyrir árið 2018 úr stofni Austur-
Atlantshafs bláuggatúnfisks
Ísland hefur verið aðili að Atlantshafs
túnfiskveiðiráðinu (ICCAT) frá árinu 2002.
Á árinu 2018 er íslenskum skipum heimilt að
veiða samtals 84 tonn af bláuggatúnfiski miðað
við afla upp úr sjó. Af þeim heimildum verður
80 tonnum úthlutað til veiða með línu og 4,0
tonnum ráðstafað til að mæta áætluðum
meðafla íslenskra skipa á bláuggatúnfiski
Leyfishafa er heimilt að stunda línuveiðar á
tímabilinu 1. ágúst til 31. desember á veiði-
svæði norðan 42°00,00´ N milli 10°00,00´ V
og 45°00,00´ V.
Útgerðir sem hafa áhuga á að nýta heimild til
línuveiða á bláuggatúnfiski skulu sækja um til
atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins fyrir
7. júní 2018.
Í umsókninni skal koma fram nánari áætlun um
veiðarnar, m.a. veiðiskip, aðstöðu til afla-
meðferðar s.s. kælingu eða frystingu afla um
borð, löndunarhöfn sem og söluaðila og
markaðsland. Við ákvörðun um úthlutun verður
litið til allra þessara atriða.
Skilyrði er að veiðiskip sé að lágmarki 500 BT.
Skipið skal hafa eftirlitsmann frá Fiskistofu um
borð, skipið skal búið rafrænni afladagbók og
hafi IMO númer. Ráðuneytið áskilur sér því
rétt til að hafna umsóknum séu líkur til að
viðkomandi skip sé að einhverju leiti óhentugt
eða vanbúið til veiðanna með tilliti til öryggis
eða búnaðar.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu
22. maí 2018
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9. Nú er bingóið komið í sumarfrí
en kaffið á sínum stað kl. 14.30. Allir velkomnir
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17.
Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45.
Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Vatnsleikfimi kl. 9. Vöflukaffi kl. 14.30.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Leikfimi kl. 13.45. Kaffiveitingar kl.
14.30. Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Aðstoð við notkun á æfingatækjum kl.
9.30-10.30, göngutúr kl. 10.30, áhugasamir hittast við móttöku kl.
10.30. Föstudagshópurinn kl. 10-12, frjáls spilamennska kl. 13-16.30,
bingó í sal kl. 13.30-14.30, Handaband, ókeypis vinnustofa í handverki
sem er öllum opin kl. 13.30-16, vöfflukaffi kl. 14.30-15.30. Verið öll vel-
komin til okkar á Vitatorg. Síminn okkar er 411-9450.
Flatahraun 3 Hafnarfirði Dansleikur verður haldin í Hraunseli
föstudaginn 25. maí. Hilmar Sverrisson og Kristján Snorrason leika
fyrir dansi frá kl. 20. Miðaverð 1500 kr. Allir hjartanlega velkomnir.
Garðabær Jónshúsi / félags - og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jóns-
húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9:30-16. Meðlæti með
síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.30. Gönguhópur frá Jónshúsi kl.
10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20,
Hleinum kl. 12.30 og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni
félagsvist ef óskað er.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16, glervinnustofa með
leiðbeinanda kl. 9-12, prjónakaffi kl. 10-12, leikfimi gönguhóps kl. 10-
10.20, gönguhópur um hverfið kl. 10.30, bókband með leiðbeinanda
kl. 13-16, kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
13 tréskurður, kl. 13 léttgönguhópur (frjáls mæting).
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, velkomin í frítt kaffi kl. 9. Opin
handavinna kl. 9-12. Botsía kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30. Bíó kl.13.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, dagblöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
jóga hjá Karinu kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu
kl. 13, bingó kl. 13.15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, botsía kl. 10.15, listasmiðjan er opin fyrir alla frá kl. 9-16, zumba
dansleikfimi með Auði kl. 13, síðdegiskaffi kl.14-15, allir velkomnir
óháð aldri, nánari upplýsingar í Hæðargarði 31 eða í síma 411-2790.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja
með leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11,
bingó kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14. Uppl. í s. 4112760.
Seltjarnarnes Handverkssýning eldri bæjarbúa Seltjarnarnesi. Sýn-
ingin verður haldin í félagsaðstöðu eldri borgara á Skólabraut 3-5,
Seltjarnarnesi, föstudag til sunnudags 25.-27. maí kl. 13-18. Margt fal-
legra muna, sölubás og vöfflukaffi. Allir velkomnir.
Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-14. Upp úr kl. 10 er boðið
upp á kaffi og gaman að koma í spjall og kíkja í blöðin. Ganga kl. 10.
Hádegisverður kl. 11.30-12.15. Framhaldssaga kl. 13. Allir eru hjartan-
lega velkomnir í Selið. Nánari uppl. hjá Maríu í síma 568-2586.
Stangarhylur 4 Ferð á söguslóðir Svarfdæla og Eyjafjarðarsagna
28.-30. maí. Brottför frá Stangarhyl 4, mánudaginn 28. maí kl. 8.30.
Dansað sunnudagskvöld kl. 20, Hljómsveit hússins leikur og allir vel-
komnir.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Elsku mamma og
tengdamóðir kvaddi
okkur mánudaginn
7. maí. Það er skrýt-
in tilhugsun að hafa þig ekki leng-
ur hjá okkur. Lífið er ekki alltaf
sanngjarnt en þú tókst því sem
kom og stóðst ávallt upprétt þó
örugglega hafi það ekki alltaf
reynst auðvelt. Ung að árum eign-
aðist þú fimm drengi og ólst okkur
upp ein eftir að Tómas faðir okkar
lést. Það gerðir þú með miklum
sóma og myndarskap. Þú kenndir
okkur svo ótal margt og varst ein-
staklega hæversk.
Bernskubrekum okkar bræðr-
anna tókstu öllum með jafnaðar-
geði þó stundum hafi það örugg-
lega tekið á. Ég man vel eftir því
þegar ég var ungur og bauð einu
sinni til mín fólki eitt laugardags-
kvöld fyrir páska. Þú hafðir verið
búin að gera köku fyrir kaffiboð á
páskadag en þessi kaka var borð-
uð um nóttina. Morguninn eftir
bankaðir þú á hurðina á herberg-
inu mínu og sagðir: „Hörður, get
ég nokkuð fengið lánaðan kökud-
iskinn hjá þér?“
Ég fór norður á Strandir í sveit
sem barn og mörgum árum seinna
sagðir þú mér frá því að þú hefðir
fengið samviskubit yfir því að
senda mig svo ungan til
ókunnugra.
Ég man ég sagði þér að þú
hefðir ekki þurft að hafa áhyggjur
af því, vegna þess að betra fólk var
vart hægt að finna. Það fannst þér
gott að heyra.
Þú kunnir svo sannarlega að
lifa lífinu og varst ætíð heilbrigð
sál í hraustum líkama. Ég veit að
þér fannst gaman að ferðast og
eins naust þú þess að syngja, enda
hefur þú alla tíð verið söngelsk
mjög. Þeir eru ófáir kórarnir sem
þú hefur sungið með.
Þegar ég svo sjálfur eignaðist
börn varst þú ávallt tilbúin að
koma með fjölskyldunni í sum-
arbústaðarferðir eða passa fyrir
okkur.
Þú varst klettur sem ætíð var
hægt að treysta á. Síðar kynnist
þú honum Línberg og áttuð þið
góða tíma saman. Línberg var
mikill listasmiður og einstaklega
góður maður. Það var mikill
styrkur fyrir þig að kynnast hon-
um og reyndist hann okkur líka
einstaklega vel.
Þú eyddir oft jólum og áramót-
um hjá okkur og voru það miklar
ánægjustundir þar sem mikið var
um hlátur og bros. Þessar stundir
og allar hinar eiga eftir að lifa í
minningu okkar.
Að lokum ætlum við að setja
eitt ljóð sem þú hélst mikið uppá:
Jóna Aðalheiður
Hannesdóttir
✝ Jóna Að-alheiður
Hannesdóttir
fæddist 30. mars
1924. Hún andaðist
6. maí 2018. Útför
Jónu fór fram 16.
maí.
Hví ertu að gráta, glugg-
inn minn?
hvað getur angrað þig?
Þú átt að kætast, kján-
inn þinn,
því káta sérðu mig.
Já, glöð þú sýnist, satt
er það
og sælli virðist fár,
en samt þér gengur eitt-
hvað að,
þú áðan felldir tár.
(Höf. ók.)
Hörður Ingþór Tómasson
og Sigrún Jónsdóttir.
Elsku amma, það er sárt að
skrifa þessi orð. Þú ert ekki leng-
ur hjá okkur. Betri ömmu er ekki
hægt að hugsa sér, en minningar
eru fjársjóður og af þeim eigum
við margar með þér. Ógleyman-
legar eru þær stundir sem við sát-
um saman, ræddum um ljóð og
söng og kórinn þinn. Þú varst allt-
af svo dugleg að segja frá hvað þér
fannst gaman að syngja fyrir
„gamla“ fólkið, sem líklegast var
flest nokkrum árum yngra en þú.
Svo má ekki gleyma öllum leik-
húsferðunum ykkar Grétu þar
sem þú brostir alltaf af því hvað
Gréta var ófeimin að fá hina og
þessa til að taka mynd af ykkur.
Þú hafðir alltaf gaman af því þeg-
ar við sögðum þér frá uppátækj-
um okkar systkinanna, sem voru
þónokkur. Það var alveg sama
hvað sagt var, þú varst alltaf
stuðningsmaður okkar númer eitt
í öllu því sem við tókum okkur fyr-
ir hendur. Þú klipptir út blaða-
greinar þegar fjallað var um eitt-
hvað sem okkur langaði að taka
þátt í. Og svo hringdir þú í okkur
um leið og ævintýrunum var lokið
til að fá að vita hvernig gekk.
Það er erfitt að finna orð yfir
suma hluti og það er erfitt að
hugsa til þess að þessar stundir,
þessi kvöld eða símtöl verði ekki
fleiri.
Elsku amma, þú ert fyrirmynd,
vinur, sjálfstæð og einstök kona.
Þú fórst alltaf þínar eigin leiðir.
Þú ert með hjarta úr gulli. Þú
verður ávallt í hjörtum okkar. Þín
verður sárt saknað
Vor í lofti heiðskírt er
allir koma saman
á tímamótum stöndum hér
því miður ekki gaman
Sú stund er nú komin hér
að kveðja þarf nú ömmu
það er sárt innst í hjarta mér
því þráin var allt önnur
Þú söng og gleði kenndir mér
og að hugsa vel um aðra
það var ljúft að liggja í fangi þér
þó svo þú vildir að ég hætti að blaðra.
(Hörður Ingþór Harðarson)
Ragnar, Hörður Ingþór,
Birgir Örn, Gréta Ósk,
Jón Heiðar, Ásgeir.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn-
ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr
felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri
en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein-
göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað
er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað
útförin fer fram.
Minningargreinar