Morgunblaðið - 25.05.2018, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 145. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. „Hann hefur aldrei byggt …“
2. Meidd Sara sá gullið renna úr …
3. Barátta við „samlokusala“
4. Tónlistarferlinum að ljúka …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitirnar Singapore Sling og
Skrattar halda tónleika á Húrra kl.
22.30 í kvöld. Annað kvöld stíga
Skrattar aftur á svið, en þá á Gaukn-
um þar sem þeir spila frá miðnætti
og frumsýna tónlistarmyndbönd.
Singapore Sling og
Skrattar á tónleikum
Handbendi –
Brúðuleikhús sýn-
ir Engi, frum-
samið brúðuverk
eftir Gretu
Clough, í Tjarn-
arbíói kl. 15 á
morgun, laugar-
dag. Sýningin er
fyrir börn eldri en
þriggja ára. Sagan er sögð með frum-
legum, handgerðum leikbrúðum og
sérsaminni tónlist eftir tónskáldið og
söngvarann Paul Mosley. Aðeins
þessi eina sýning í Tjarnarbíói.
Frumsamið brúðu-
verk í Tjarnarbíói
Á laugardag Sunnan 10-18 m/s og talsverð eða mikil rigning á
sunnan- og vestanverðu landinu og hiti 8 til 13 stig, en hægari suð-
austlæg átt norðaustanlands, úrkomulítið og hiti 12 til 19 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 8-15 og skúrir um landið sunnan-
og vestanvert en yfirleitt þurrt og bjart um landið norðaustanvert.
Hiti yfirleitt fimm til 13 stig.
VEÐUR
Sara Björk Gunnarsdóttir
upplifði einhver sárustu
vonbrigði sín á ævinni um
leið og hún tók við fyrstu
verðlaunum sem íslensk
knattspyrnukona hefur
unnið til í Meistaradeild
Evrópu, með liðsfélögum
sínum í Wolfsburg í Kænu-
garði í gærkvöld. Lyon sigr-
aði 4:1 og Sara þurfti að yf-
irgefa völlinn á 55. mínútu
vegna meiðsla. Rætt er við
Söru í íþróttablaðinu. »1
Silfurverðlaun en
sár vonbrigði
„Staðan á mér er góð. Endurhæfingin
hefur gengið vel síðustu tvær vikur
og það er ennþá langt í mót þannig
að ég flýti mér hægt og við erum ekki
að taka neina óþarfa áhættu,“ segir
landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðs-
son, sem er mættur til landsins til
undirbúnings fyrir HM. »4
Staðan á mér er góð en
tek ekki óþarfa áhættu
Geysilega óvænt úrslit litu dagsins
ljós í Garðabæ í gærkvöldi þegar
Grindavík skellti Stjörnunni 3:2 í
Pepsi-deild kvenna. Grindavík var á
botninum fyrir leikinn og hafði ekki
skorað mark en Stjarnan hefur verið
eitt allra besta lið landsins á síðustu
árum og fjórum sinnum hefur liðið
fagnað Íslandsmeistaratitlinum á
þessum áratug. »2
Geysilega óvænt úrslit í
Garðabænum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Mokka-Kaffi var opnað 24. maí 1958
og átti því 60 ára afmæli í gær. Hjón-
in Guðný Guðjónsdóttir og Guð-
mundur Baldursson stofnuðu stað-
inn en börnin þeirra sjá að stórum
hluta um hann í dag. Mokka er eitt
af elstu kaffihúsum Reykjavíkur og
hefur verið nánast óbreytt síðan það
var opnað.
„Það voru einhver kaffihús í
Reykjavík þegar við opnuðum en
engin með ítalska kaffivél eins og
við,“ sagði Guðný við Morgunblaðið í
gær. „Þegar við opnuðum hér var
Guðmundur maðurinn minn búinn
að vera á Ítalíu að læra söng. Þar
kynntist hann ítölsku kaffimenning-
unni. Hér á landi þekkti enginn
espresso eða cappuccino,“ segir
Guðný og bætir við að þessi nýstár-
lega aðferð hafi vakið mikla lukku.
Kaffihúsið vakti í raun svo mikla
lukku að það sem átti að vera auka-
starf varð að aðalstarfi. „Þetta átti
að verða að hliðarstarfi við sönginn
en svo fór kaffihúsið svo vel af stað
strax í byrjun að þetta varð að aðal-
starfi hans og söngurinn var til
hliðar.“
Kaffihús og sýningarsalur
Það er svolítið eins og að stíga aft-
ur í tímann að koma inn á Mokka.
Listin á veggjunum er í raun það
eina sem breytist reglulega, en list-
sýningar hafa verið þar frá upphafi.
Oddný, dóttir Guðnýjar og Guð-
mundar, segir þá hefð hafa komist á
í upphafi vegna skorts á sýningar-
sölum. „Pabbi var úti á Ítalíu með
Braga Ásgeirsyni og Erró og þegar
hann kom heim vantaði sýningarsali.
Pabbi fór þá að setja myndir eftir
vini sína á veggina og svo vatt þetta
upp á sig.“
Á fjögurra til sex vikna fresti er
listaverkum skipt út, en þessa dag-
ana stendur yfir sýning á hinum
ýmsu verkum sem hafa verið sýnd á
Mokka í gegnum árin.
Vöfflurnar á Mokka hafa alla tíð
verið umtalaðar en þegar Guðný er
spurð út í uppskriftina hristir hún
höfuðið. „Hún er enn leyndarmál og
við megum til með að halda henni
fyrir okkur. Starfsfólkið fær ekki
einu sinni að vita hvað er í deiginu.“
Mokka er sannkallað fjölskyldu-
fyrirtæki, en börn Guðmundar og
Guðnýjar sjá að mestu um staðinn
og hafa barnabörn þeirra hjóna
einnig mörg hver unnið á kaffihús-
inu. Guðný segist hafa haft mjög
gaman af því að reka kaffihúsið en
að það hafi einnig verið afar
krefjandi. „Mokka er litla barn-
ið okkar sem aldrei verður
stórt.“
Mokka fagnar sextíu árum
Mokka færði
Íslendingum
ítalska kaffihefð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjölskyldufyrirtæki Mæðgurnar Guðný Guðjónsdóttir og Oddný Guðmundsdóttir eru þakklátar fyrir kaffihúsið.
Oddný segist kjósa að reka Mokka áfram í óbreyttri mynd. Vöffluuppskriftin er enn hernaðarleyndarmál.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
60 ár Myndin er tekin árið 1958 við opnun Mokka. Staðurinn er nánast
óbreyttur 60 árum síðar að öðru leyti en því að nýjar myndir eru á veggjum.
Opnunarhátíð Listar án landamæra
á Akureyri 26.-27. maí verður haldin
kl. 14 á morgun, laugardag, í Deigl-
unni, Listagilinu á Akureyri.
Fjölmargir listamenn, nem-
endur og aðrir taka þátt í
þessari hátíð fjölbreytileik-
ans, t.d. flytur Atli Viðar
Engilbertsson fjöl-
listamaður frum-
samið lag og texta
sem hann tileinkar
hátíðinni.
Listahátíð fjölbreyti-
leikans á Akureyri