Morgunblaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018 Lausar stöður hjá Listasafni Reykjavíkur Listasafn Reykjavíkur auglýsir lausar til umsóknar tvær stöður verkefnastjóra í deild sýninga og miðlunar. Um er að ræða störf í 50-100% starfshlutfalli. Verkefnastjórar starfa við miðlun og fræðslu um sýningar safnsins jafn til almennra safngesta, skólahópa og annarra hópa sem sækja safnið heim. Verkefnastjóri sér um og ber ábyrgð á skipulagi, mótun, þróun og vinnu við fræðslustarf í samráði við yfirmann og samstarfsfólk. Leitað er að öflugum einstaklingum sem eru tilbúnir til að starfa í kraftmiklum starfshópi. Leitað er að hugmynda- ríkum og jákvæðum einstaklingum sem hafa frumkvæði og metnað til að ná árangri í starfi og hafa víðtæka þekkingu á myndlist og hæfni til að miðla til ólíkra hópa. Helstu verkefni og ábyrgð: Í starfinu felst umsjón og ábyrgð á skipulagi, mótun, þróun og vinnu við fræðslu í safninu. Á meðal verkefna er skipulag og móttaka skólahópa og annarra hópa, leiðsagnir og önnur safnfræðsla fyrir almenna gesti safnsins, ábyrgð á gesta- stofum og upplýsingagjöf í safnhúsum. Verkefnisstjórar hafa umsjón með þróun og gerð fræðsluefnis, námskeiðahaldi og ýmsum viðburðum og samstarfsverkefnum auk þess sem þeir taka þátt í þróun og framkvæmd fræðsludagskrár safnsins. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun á framhaldsstigi á sviði safnsins; í myndlist, listfræði, safnafræði eða listasögu auk mennt- unar og/eða reynslu á sviði listkennslu eða listmiðlunar. • Reynsla á sviði safnastarfs. • Mjög góð þekking á íslenskri listasögu, góð þekking á íslenskri og alþjóðlegri samtímamyndlist. • Mjög góðir skipulags- og verkefnisstjórnunarhæfileikar. • Mjög góð samskiptafærni á íslensku og ensku og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. • Færni og geta til að vinna undir álagi og sinna mörgum viðfangsefnum. • Færni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki. • Metnaður, frumkvæði, hugmyndaauðgi og sjálfstæði í starfi. Listasafn Reykjavíkur er lifandi og framsækinn vettvangur þar sem tækifæri gefst til að að kynnast fjölbreytileika myndlistar og öðlast dýpri skilning á sögulegu, félagslegu, menningarlegu og listrænu samhengi sköpunarverka listamanna. Safnið er til húsa á þremur stöðum í Reykjavík: í Hafnarhúsi, á Kjarvalsstöðum og í Ásmundarsafni við Sigtún. Nánar: Umsóknarfrestur er til og með 13. júní 2018. Launakjör eru skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélög. Nánari upplýsingar um veitir Markús Þór Andrésson, deildarstjóri sýninga og miðlunar, markus.thor.andresson@reykjavik.is, sími 411 6400. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um störfin á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem við búum í. Reykjavíkur- borg vinnur gegn mismunun á vinnumarkaði og hvetur innflytjendur, fatlað fólk, hinsegin fólk og fólk á öllum aldri til að sækja um störf hjá borginni. 1  ATVINNA í boði hjá Kópavogsbæ Grunnskólar • Aðstoðarforstöðumaður dægradvalar í Álfhólsskóla • Aðstoðarmaður frístundar í Hörðuvallarskóla • Bókasafns- og upplýsingafræðingur í Álfhólsskóla • Deildarstjóri sérúrræða í Álfhólsskóla • Deildarstjóri verkefna í Álfhólsskóla • Dönskukennari í Kársnesskóla • Enskukennari í Hörðuvallaskóla • Enskukennari í Snælandsskóla • Forstöðumaður í dægradvöl Snælandsskóla • Frístundaleiðbeinandi í dægradvöl Kópavogsskóla • Íslensku kennari á unglingastigi í Álfhólsskóla • Íþróttakennari í Hörðuvallaskóla • Íþróttakennari í Kópavogsskóla • Kennari í íslensku sem annað mál í Álfhólsskóla • Kennari í Lindaskóla • Kennari í Vatnsendaskóla • Laus staða kennara á yngsta stig í Kársnesskóla • Matreiðslumaður í Kópavogsskóla • Náttúrufræðikennari á miðstig í Hörðuvallaskóla • Smíðakennari í Kársnesskóla • Stuðningsfulltrúi í Kársnesskóla • Stærðfræði- og náttúrufræðikennari í Álfhólsskóla • Tónlistarkennari í Salaskóla • Tónmenntakennari í Álfhólsskóla • Umsjónarkennari á miðstigi í Álfhólsskóla • Umsjónarkennari í Hörðuvallaskóla • Þroskaþjálfi eða sérkennari í Kársnesskóla Leikskólar • Aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum Kópasteini • Deildarstjóri í Austurkór • Deildarstjóri í Fífusölum • Deildarstjóri í Kópahvol • Deildarstjóri í leikskólann Baug • Deildarstjóri í Læk • Deildarstjóri í Sólhvörfum • Fólk í sérkennslu í Fífusölum • Leikskólakennari eða starfsmaður í Læk • Leikskólakennari í Austurkór • Leikskólakennari í Álfatúni • Leikskólakennari í Baug • Leikskólakennari í Dal • Leikskólakennari í Kópahvoli • Leikskólakennari í Núp • Leikskólakennari í Sólhvörfum • Leikskólasérkennari í Kópahvol • Leikskólasérkennari/þroskaþjálfi í Baug • Sérgreinastjóri í Núp • Sérkennari, þroska- og iðjuþjálfi í Sólhvörfum • Sérkennslustjóri í Fífusölum • Sérkennslustjóri í Læk • Þroskaþjálfi/leikskólasérkennari í Álfatúni Velferðarsvið • Sérkennari/þroskaþjálfi í sérdeild einhverfra • Starfsmenn óskast á heimili fatlaðs fólks Annað • Forstöðumaður íþróttahúss Vatnsendaskóla • Persónuverndarfulltrúi • Sálfræðingur óskast við skólaþjónustu Kópavogs • Starfsmaður í Þjónustumiðstöð við almenna þjónustu • Starfsmaður við Salalaug - Karl Vantar þig dekk? FINNA.is Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að dugmiklu fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð. Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana. Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is Hafðu samband í dag og byrjaðu launaða líkams- rækt strax á morgun. www.mbl.is/laushverfi Vantar þig auka- pening? Allir blaðberar Morgunblaðsins fara í blaðberaklúbbinn sem veitir ýmis fríðindi. Eins og til dæmis: • Fjallakofinn 15% afsláttur af SCARPA gönguskóm og 10% afslátt af öðru. • Lemon 20% afslátt á öllum Lemon stöðum. • SmáraTívolí 20% afsláttur af tímakortum. • Bakarameistarinn 10% afsláttur af eigin framleiðslu. • Sambíóin Mánudagsbíó, afslættir af miðum á mánudögum. • Edda útgáfa 25% afsláttur á bókum. • Dalía blómaverslun 10% afsláttur. • Lín design 15% afsláttur. • Istore 4% afsláttur af tölvum og Ipad. 10% afsláttur af fylgihlutum. • Stilling 12% afsláttur. • Örninn reiðhjólaverslun 10% afsláttur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.