Fréttablaðið - 02.07.2018, Síða 2
Hann var snillingur
í að skrifa stuttan og
hnitmiðaðan texta og barði
þessu í okkur ungu
blaðamennina.
Kristín Þorsteinsdóttir,
útgefandi Frétta-
blaðsins
Minning Jónas Kristjánsson, fyrr-
verandi fréttastjóri og ritstjóri, lést
þann 29. júní síðastliðinn. Hann var
brautryðjandi frjálsrar og óháðrar
blaðamennsku hér á landi en hann
vann við blaðamennsku í hartnær
hálfa öld ásamt því að skrifa bækur
um hugðarefni sín.
„Jónas á eina glæstustu sögu sem
nokkur íslenskur blaðamaður á. Hann
skóp ásamt öðrum frjálsa íslenska fjöl-
miðlun og hafði þar fyrirmyndir utan
úr heimi. Hann breytti íslenskri fjöl-
miðlun með því að stofna frjálst, óháð
dagblað um 1975. Fyrir þann tíma var
allt falsfréttir og skrifað á pólitískum
forsendum,“ segir Mikael Torfason,
fyrrverandi ritstjóri hjá DV og 365.
„Einnig menntaði hann upp nokkrar
kynslóðir blaðamanna. Ég bar gæfu til
að stíga mín fyrstu skref þar sem hann
var ritstjóri.“
Jónas hóf störf á Tímanum árið
1961. Hann starfaði síðar á Vísi sem
frétta- og ritstjóri. Hann var einn
stofnenda Dagblaðsins árið 1975 og
starfaði þar til ársins 1981 sem ritstjóri
þar til Dagblaðið og Vísir sameinuðust
í DV árið 1981. Þar vann hann sem
ritstjóri í tvo áratugi. Einnig starfaði
hann sem ritstjóri Frétta-
blaðsins og útgáfu-
stjóri hjá Eiðfaxa.
„Hann var snill-
ingur í að skrifa
stuttan og hnit-
miðaðan texta og
barði þessu í okkur ungu blaðamenn-
ina sem unnum hjá honum. Hann var
fyrst og fremst frábær ritstjóri sem lið-
sinnti okkur ungu blaðamönnunum,“
segir Kristín Þorsteinsdóttir, útgefandi
Fréttablaðsins. Hún vann undir stjórn
Jónasar í árdaga DV í byrjun níunda
áratugarins.
Jónas markaði djúp spor í fjölmiðla-
sögu Íslands og breytti fjölmiðlalands-
laginu með tilkomu óháðrar fjölmiðl-
unar. „Hann hafði þá náðargáfu að
vera jafnt í senn hinn reyndi lærifaðir
og hinn reiði ungi maður og tapaði
því aldrei að krefjast réttlætis,“ bætir
Mikael við. „Kannski voru það okkar
helstu mistök að hlusta ekki nægilega
mikið á Jónas.“ sveinn@frettabladid.is
Veður
Í dag er kunnulegt stef ráðandi,
vestlæg átt og þokusúld á vestan-
verðu landinu en bjartviðri og
hýtt eystra. Þó gæti líka verið
fínasta veður á hálendinu og ekki
útilokað að stytti upp og létti til
vestan til í kvöld. Hiti 8 til 14 stig
vestanlands en 15 til 20 stig fyrir
austan. sjá síðu 18
Ríða á vaðið
Landsmót hestamanna hófst í gær á keppnissvæði Fáks í Víðidal, á keppni í barna- og unglingaflokki. Búist er við allt að tíu þúsund gestum á Lands-
mótið að þessu sinni, en nokkurrar reiði gætir meðal gesta vegna þeirrar ákvörðunar stjórnar Landsmótsins að banna myndbandsupptökur til að
birta á netinu eða í sjónvarpi. Stjórnin ber fyrir sig einkaréttarsamning sem gerður var vegna sjónvarpsútsendinga. Fréttablaðið/anton brink
VELDU GÆÐI!
PREN
TU
N
.IS
................................................
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
Fálkagata 18
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
PREN
TU
N
.IS
3 TEGUNDIR AF SÚRDEIGSBRAUÐUM
Markaði djúp spor og
breytti fjölmiðlunum
Jónas Kristjánsson lést þann 29. júní. Hann var brautryðjandi frjálsrar blaða-
mennsku á Íslandi. Útgefandi Fréttablaðsins og fyrrverandi ritstjóri unnu fyrir
Jónas þegar þau hófu feril sinn í fjölmiðlum. „Fyrst og fremst frábær ritstjóri.“
ViðsKiPTi Nýsköpunarfyrirtæki sem
konur hafa stofnað skila fjárfestum
meiri arðsemi en nýsköpunarfyrir-
tæki sem karlar stofna, eða yfir tvö-
falt meiri arðsemi á hvern dollara
sem er fjárfestur. Konur eiga hins
vegar miklu erfiðara með að fá fjár-
festa til liðs við sig.
Konurnar þurfa oftar að sanna
getu sína en karlar auk þess sem
karlkyns fjárfesta skortir oft þekk-
ingu á vörum og þjónustu sem
konur setja á markað fyrir kynsystur
sínar.
Þetta kemur fram í skýrslu ráð-
gjafarfyrirtækj-
a n n a B o s t o n
Con sulting Group
og MassChall-
enge sem hafa
rannsakað mun
á fyrirtækjum
kvenna og
karla. – ibs
Skila tvöfalt
meiri arðsemi
Mikael torfason
og kristín
Þorsteins-
dóttir.
Jónas kristjánsson lést þann 29. júní síðastliðinn. Fréttablaðið/GVa
sValbarðssTrönd Stefán Tryggva-
son, eigandi jarðarinnar Þórisstaða
í Svalbarðsstrandarhreppi við Eyja-
fjörð, telur sauðfjáreigendur, í skjóli
hreppsins, beita land hans án leyfis.
Sveitarstjórn hefur í áraraðir
leyft að sauðfé sé sleppt á land í
eigu hans í Vaðlaheiði og vill hann
fá svör frá hreppnum af hverju
slíkt er gert. „Fyrir mér snýst þetta
um prinsipp. Vaðlaheiðin er ekki
afréttur eða almenningur og hefur
aldrei verið,“ segir Stefán sem sent
hefur sveitarstjórn spurningar og
krefst svara fyrir ágústlok ellegar fer
hann með málið til umboðsmanns
Alþingis.
„Að mínu mati stenst þetta ekki
eignaréttarákvæði stjórnarskrár
að aðrir megi nýta mitt land án
leyfis og að hreppurinn ákveði það
fyrir mig,“ bætir Stefán við. „Mér er
skipað að girða af eigið land gegn
ágangi búfjár í stað þess að það sé í
hina áttina. Ég hef oft lýst þessu sem
svo að offitusjúklingum sé leyft að
stela kexi í búri hjá fólki ef búrið er
ekki læst. Nú er bara svo komið að
færri og færri hafa sauðfé og því á
það að vera eigenda þeirra að halda
fé sitt á eigin landi.“ - sa
Segir land sitt
nýtt í leyfisleysi
Sauðfé hefur í langan tíma verið rekið
á fjall á sumrin. Fréttablaðið/SteFán
Ég hef oft lýst þessu
sem svo að offitu-
sjúklingum sé leyft að stela
kexi í búri hjá fólki ef búrið
er ekki læst.
2 . j ú l í 2 0 1 8 M á n u d a g u r2 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
0
2
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
4
9
-8
8
B
C
2
0
4
9
-8
7
8
0
2
0
4
9
-8
6
4
4
2
0
4
9
-8
5
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
1
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K