Fréttablaðið - 02.07.2018, Síða 6
TILBOÐSVERÐ FRÁ: 1.990.000 KR. – LISTAVERÐ FRÁ: 2.390.000 KR.
ÚTFÆRSLUR Í BOÐI: POP, LOUNGE, BEINSKIPTUR/SJÁLFSKIPTUR, BLÆJU OG 105 HESTAFLA TWINAIR (TAKMARKAÐ MAGN BÍLA Í BOÐI)
FIAT 500 Á FRÁBÆRU FIAT-SUMARTILBOÐI
MAMMA
MIA!
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF · UMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI · WWW.FIAT.IS
ÞVERHOLT 6 · 270 MOSFELLSBÆR · SÍMI: 534 4433 · WWW.ISBAND.IS · OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 · LAUGARDAGA 12-16
MenntaMál Menntamálaráðuneytið
vinnur nú að því að fjölga nemum
við Háskólann á Akureyri en fjölgun
innritaðra nemenda næsta vetur
nemur um 30 prósentum frá fyrra
ári. Athygli vekur að mun fleiri óska
eftir námi í hjúkrunarfræði við HA
en Háskóla Íslands en á sama tíma
fær HA fjármagn til að taka inn
helmingi færri en HÍ.
Um 175 nemendur innrituðust
í hjúkrunarfræði við Hí en aðeins
120 komast að í nám við skólann
sökum fjöldatakmarkana. Því getur
HÍ tekið tvo af hverjum þremur sem
vilja komast að.
Á hinn bóginn sóttu rúmlega 300
nemendur um að komast í hjúkr-
unarfræði við Háskólann á Akureyri.
Háskólinn nyrðra hefur hins vegar
aðeins bolmagn til að taka við 55
þeirra þrátt fyrir mun meiri ásókn í
námið á Akureyri en í Reykjavík.
„Það er gleðiefni að svo margir
sækist eftir því að komast í hjúkr-
unarnám, ekki síst við Háskólann á
Akureyri þar sem umsóknum fjölgar
ár frá ári,“ segir Lilja Alfreðsdóttir
menntamálaráðherra. „Á vettvangi
ráðuneytisins er verið að skoða með
hvaða leiðum er hægt að mæta auk-
inni ásókn í námið og vænti ég að við
getum greint frá niðurstöðum þess
mjög fljótlega.“
Eyjólfur Guðmundsson, rektor
HA, segir mikilvægt að vinna að
langtíma stefnumótun um framtíð
skólans og hvernig megi fjölga nem-
endum og starfsfólki því aðsóknin
sé mjög góð og skólinn sæki í sig
veðrið. „Við höfum bent ráðuneytinu
á lausnir við ákveðnum aðkallandi
verkefnum sem við teljum mikil-
vægt að farið verði í. Þeim lausnum
var vel tekið innan ráðuneytisins og
er vinna hafin við að skoða tillög-
urnar,“ segir Eyjólfur. „Það er mikil-
vægt að tjalda ekki til einnar nætur
heldur vinna að framtíðarlausnum.
Það væri það skynsamlegasta í stöð-
unni.“
Lilja segir mikilvægt að heilbrigðis-
yfirvöld komi að borðinu svo fjölga
megi hjúkrunarfræðingum. „Vilji er
til staðar bæði hjá skólanum og innan
ráðuneytisins til þess að finna hag-
fellda lausn á þessu og þá fjölga nem-
endum við skólann. Þó verður að hafa
í huga að fjöldi ársnema sem komast
að í hjúkrunarnáminu fyrir norðan
takmarkast líka af fjölda náms-
staðna við Sjúkrahúsið á Akureyri,“
bætir Lilja við. „Við Svandís Svavars-
dóttir heilbrigðisráðherra höfum
rætt þetta og hyggjumst vinna að því
í sameiningu að þessi mikilvægu kerfi
okkar tali sem best saman. Mennta-
kerfið þarf að eiga í góðu samtali við
atvinnulífið, og samfélagið allt. Þann-
ig stuðlum við best að uppbyggingu
þess til framtíðar.“
Á fimmta hundrað einstaklingar
sækja um nám í hjúkrunarfræðum
við íslenska háskóla en aðeins 175
komast að á hverju ári. Á sama tíma
hafa stjórnendur heilbrigðisstofnana
og sjúkrahúsa ítrekað gert grein fyrir
mönnunarvanda í íslensku heilbrigð-
iskerfi sem snýr aðallega að skorti á
hjúkrunarfræðingum og sjúkra-
liðum. Komið hefur fram í máli Páls
Matthíassonar, forstjóra Landspítala,
að þessi mönnunarvandi sé svipaður
þeim vanda sem heilbrigðiskerfi ann-
arra Vesturlanda eru að kljást við í
dag. sveinn@frettabladid.is
Skoða fjölgun hjúkrunarnema
við Háskólann á Akureyri
Innrituðum nemendum við Háskólann á Akureyri hefur fjölgað gríðarlega mikið síðustu ár. FréttAblAðIð/Auðunn
Menntamálaráðherra
vinnur að leiðum til þess
að mæta aukinni ásókn
í hjúkrunarnám við HA.
Mun fleiri sækja um í
hjúkrun á Akureyri en í
Háskóla Íslands.
Það er mikilvægt að
tjalda ekki til einnar
nætur heldur vinna að
framtíðar-
lausnum.
Eyjólfur Guð-
mundsson, rektor
HA
lilja Alfreðsdóttir,
menntamálaráð-
herra
MeXíKÓ Talið er að hinn 64 ára gamli
Andres Manuel Lopez Obrador,
fyrrverandi borgarstjóri Mexíkó-
borgar, verði hlutskarpastur þegar
talningu atkvæða í mexíkósku for-
setakosningunum verður lokið. Tíð
morð á frambjóðendum og starfs-
mönnum framboða settu svartan
blett á kosningarnar.
Það var ekki aðeins kosið um for-
setastólinn heldur fóru kosningar
til efri og neðri deildar þingsins
fram samtímis sem og kosningar til
borgar- og sveitarstjórna. 88 millj-
ón manns voru á kjörskrá og um 18
þúsund sæti í boði.
Frá því að Mexíkó hlaut sjálfstæði
árið 1929 hafa tveir flokkar ráðið
þar ríkjum. Fyrstu 70 árin kom það
í hlut PRI en síðan þá hefur höfuð-
andstæðingur hans, íhaldsflokkur-
inn PRI, verið við stjórnartaumana.
Samkvæmt stjórnarskrá landsins
getur forseti aðeins setið í embætti
í eitt sex ára kjörtímabil og því var
sitjandi forseti, Enrique Piena Nieto,
ekki í framboði.
Obrador, sem yfirleitt er kallaður
Amlo, varð annar í forsetakosning-
unum 2006 og 2012. Í skoðana-
könnunum síðustu dagana fyrir
kosningarnar í gær hafði hann hins
vegar nokkuð öruggt forskot.
Frá því að kosningabaráttan hófst
í september hafa 130 frambjóðend-
ur og starfsmenn framboða verið
myrtir. Spilling í landinu er mikil og
svífast margir einskis til að tryggja
að sinn frambjóðandi standi uppi
sem sigurvegari.
Fyrstu tölur úr kosningunum lágu
ekki fyrir þegar Fréttablaðið fór í
prentun. – jóe
Fyrrverandi
borgarstjóri
líklega nýr
forseti Mexíkó
Andres Manuel lopez Obrador á
kjörfundi í gær. FréttAblAðIð/EPA
88
milljón manns voru á kjör-
skrá í kosningunum í Mexíkó.
2 . j ú l í 2 0 1 8 M á n U D a G U R6 f R é t t i R ∙ f R é t t a B l a ð i ð
0
2
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
4
9
-B
0
3
C
2
0
4
9
-A
F
0
0
2
0
4
9
-A
D
C
4
2
0
4
9
-A
C
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
1
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K