Verslunartíðindi - 01.06.1920, Side 3
MANAÐARRIT GEFIÐ ÚT AF VERSLUNARRAÐI ISLANDS
3. ár.
JÚnf 192 0.
Nr. 6
^erslunarciðindi koma út einu sinni í mánuði 12—16 blaösiöur. — Árgangurinn kostar kr. 4..r)0
R.itstjórn og afgreiðsla: Skrifstofa Verslunarráðs Islands, Kirkjustræti 8 B. Talsimi 694. Pósthólf 514
Verðlagshorfur.
Þau stórtíSindi spnrðnst hingað um síðustu
mánaðamót, að vörur væru farnar að falla í
verði á heimsmarkaðinum. En símfregnirnar
Voru óljósar, og er það fyrst nú, er erlend
viðskiftablöð ltafa borist hingað, að ítarlegar
llPr>lýsingar hafa fengist um verðfallið.
TVrstu verðfallsfrjettirnar komu frá
Bandaríkjunnm. Eins og' kunnugt cr voru
Bandaríkin lengst af hlutlaus og nutu góðs
af ófriðarástandinu í Norðurálfunni. Þau
komust að mestu lijá dýrtíðinni og öðrum
ofriðarvandræðum, sem flest lönd hjer í álfu
fengu að kenna á. En eftir að Bandaríkin
komust sjálf í ófriðinn milda, fór að breytast
heima fyrir og dýrtíðin óx hröðum fetum,
°g varð að lokum meiri, en víðast hvar ann-
ars staðar. Þar sem dýrtíðin skall þar yfir
a skemmri tíma en í flestum öðrum löndum,
hefur almenningur fundið meira til hennar
°g hagað sjer eftir því. Sparnaðaralda gekk
yfir landið og olli því, að eftirspurn eftir
dýrari vörutegundum fór þverrandi. Bank-
arnir drógu að sjer hendina með lánveitingar,
°g losaði það um vörubirgðirnar. Afleiðingin
varð sú, að ýmsar vörur lækknðu talsvert í
verði og bar inest á verðfalli vefnaðarvör-
nnnar. Síðustu fregnir frá Bandaríkjun-
inn segja, að verðfallið hafi haft í för með
s.ier aukna eftirspurn, og margar þær vörur,
sem fallnar voru í verði, sjeu nú lækkaðar
á ný.
Þá hefur einnig orðið verðfall á allmörg-
um vörutegundum í Þýskalandi og Prakk-
landi. í Þýskalandi nam verðfallið á sumum
vörum 30—50%, og er talið, að helsta orsökin
til verðfallsins sje hækkun sú, er orðið hefur
á gengi þýsks gjaldeyris; hafa mörkin smá
hækkað, en þó verið mjög reikul í rásinni.
og hafa gengisbreytingar þessar valdið mikl-
um glundroða í utanríksversluninni, en það
hefur auðvitað áhrif á verðlagið innanlands.
Um Prakkland er að ýmsu leyti svipað ástatt.
Gengisbreytingar á frönkum hafa að vísu
verið minni, en þó hefur gengið farið smá
hækkandi; þar í landi hefur mest borið á
verðfalli á vefnaðarvöru og skófatnaði.
Enn fremur hefur verðfallið gert vart við
sig í Bretlandi. Baðmull hefur fallið talsvert
í verði og einnig hafa nokkrar matvörur lækk-
að. Meðal matvaranna eru sjerstaklega til-
greindar: egg, mjólk, grænmeti, ávextir og
te. Sumar af þessum vörum lækka venjulega
í verði í Bretlandi á þessum tíma árs, og er
verðfallið að því levti eigi í frásögur fær-
andi, en hitt er þó talin aðalástæðan um
flestar vörurnar, að þeir, sem legið hafa með
miklar birgðr af þeim, hafa orðið smeykir
við örðugleika þá, sem eru á peningamark-
aðinum, og hafa þess vegna selt vörurnar ört.
Að því er snertir verðlækkanir í öðrum
löndum má geta þess, að silkiverð fjell mjög
í Japan fyrr skömmu, en virðist svo hafa
hækkað aftur í verði, meðfram vegna ráð-
stafana stjórnarinnar. Enn fremur er þess