Verslunartíðindi - 01.06.1920, Page 10

Verslunartíðindi - 01.06.1920, Page 10
66 VEIiSLUNAETIÐINDÍ -f- 2—3° C., því ofmikill kuldi getur líka vald- ið þráa í því. Tólg. íslensk tólg er mjög misgóð verslunarvara, en það kemur aðallega til af því, að mörinn er látinn eldast áður en hann er bræddur, eða þá að of miklu af tólg er rent í einu ofan í sama ílátið; sje það gert, vill hitna í tólg- inni, en þá kemur í hana eins konar gerð, sem leiðir til rotnunar. Þessi galli á tólginni hefir þráfaldlega komið óorði á íslensku tólg- ina, bæði innanlands og utan. Sje tólgin brædd í tunnur, sem eru mjög hentugar um- búðir, verður, ef um mikla tólg er að ræða, að hafa margar tunnur í takinu og steypa í hverja þeirra í senn og láta storkna vel, áður en næsta lagi er rent ofan á. Belgja- umbúðirnar eru ágætar hvað geymsluna snertir, en þær eru of dýAr og íremur illa þokkaðar erlendis. Þar sem mikið er um slátrun á haustin og talsvert safnast fyrir af mör, er ekki ótítt að mörinn sje saltaður og hnoðaður til geymslu. Þetta er mjög var- hugaverð aðferð, nema því skemmri tími líði áður en mörinn er bræddur, því annars safn- ast í hann sjerstakur myglugróður, sem hefir þau álirif, að tólgin verður brúnleit. Vitan- lega getur tólgin orðið brúnleit af öðrum ástæðum, t. d. ef gengið er of nærri höms- umun, eða hafi mörinn verið blóðblandinn. Hvað íblöndun aðvífandi fituefna i tólg- ina snertir, þá er óhætt að fullyrða, að slíkt eigi sjer tæplega stað, enda er ilt að koma því við, því hrossafeitar-íblöndun leynir sjer tæplega; tólgin verður kramari en ella og fær bræðingskeim. Bn bræðingskeiinur getur líka komið af tólg, sem gerð er úr hnoðmör, ef hann hefir þránað. Einkennin geta því verið nokkuð svipuð, og íblöndunin því ekki afráðin ne'ma með efnarannsókn. Ilentugast er að gcyma tólgina í þurru lofthýsi, og sje hún í skjöldum, er gott að hafa þá í kalkdregiium ílátum, eins og sagt er frá um smjörgeymsluna. Kœfa. Eins og flestum þeim kaupmönnum, sem lengi hafa verslað með kæfu. mun vera kumi- ugt um, er íslenska kæfan varasöm verslunar- vara. Það á ekki saman nema nefnið, hver kæfan er, og væri ekki vanþörf á, að settar væru reglur um tilbúning hennar og annara matvæla. I sauðakjötskæfu ætti t. d. ekki að vera annað en vöðvar og feiti eða ómeingað kjöt. Nú er það kunnugra en frá þurfi að segja, að kæfan er að meiru eða minna leyti svikin eða blandin á ýmsan hátt, þótt gera megi undantekningu iijá mörguin framleið- endum. Þessu til sönnunar má geta þess, að rannsóknarstofunni liefir frá ófriðarbyrjun borist um 170 sýnishorn af skemdri eða mengaðri kæfu, og hafa hlutföllin verið þannig: Blóðblandin kæfa (af sjálfdauðu?) .. 18% Innýflablandin kæfa.................. 46 — Mjölblandin kæfa..................... 5 — Fiskblandin kæfa...................... 4 — Mygluð og illa verkuð kæfa........... 24 — Rotnunarkend kæfa (skaðleg köfn- unarefnasambönd).................... 3 — 100 % Auk þeirrar kæfu, sem þannig hefir reynst, hafa allmörg sýnishorn verið send til athug- unar, er leitt liafa í ljós, að folaldakjötskæfa hefur verið seld sem sauðakjötskæfa, en kæfan verið vel verkuð og ágætis verslunar- Vara að öðru leyti. Þótt.hin tilgreindu kæfu- sýnishorn, sem annaðhvort hafa verið skemd eða blandin, sjeu nokkuð mörg, bá eru þau enginn mælikvarði kæfuskemda eða sviká, því vitanlega ber að taka tillit til þess, að kæfan er því að mns send til rannsóknar, þyki hún athugaverð. IIve mikið muni vera um ineng- aða kæfu í hlutfalli við góða og ómengaða,

x

Verslunartíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.