Verslunartíðindi - 01.06.1920, Side 16

Verslunartíðindi - 01.06.1920, Side 16
68 VERSLUNARTÍÐINDI kjötið.*) Súr í kjöti getur vitaniega stafað frá ónothæfu salti eða saltpjetri, og þess vegna er áríðandi, að notuð sje eingöngu besta tegund af saltpjetri og salti.Stöku sinnumlief- ur efnarannsóknastofunni borist blá-svart, úld- ið saltkjöt, og stafa slíkar skemdir frá því, að tunnurnar eru illa pæklaðar eða þá að kjötið er byrjað að rotua, áður en það er saltað. Saltkjöt geymist best í kulda, og jafnan ber að gæta þess, að tunnurnar sjeu fullar af saltlegi, því sje holriim í þeim, getur myglugróður og gerla sest að í því, en hvoru tveggja getur komið af stað gerjun og rotnun. Um harðæti eða sjávarafurðir er óþarft að ræða, því kaupmönnum er kunn meðferð og geymsla á þeim. Þó má geta þess um harðæti og þurran saltfisk, að haldgæðin ern því betri sem húsakynnin eru rakaminni, og kemur það til af því, að efnabrigði verða síður í þurru lofti, en allur smávörugróður, sem eyðilagt getur matvæli, verður að hafa nægan raka. Þá hefir verið minst á gæði og gevmslu' þéirra fáu innlendu matvælategunda, sem verslað er með. Það er ilt til þess að vita, að þær fáu vörutegundir, sem vjer höfum á boðstólum, skuli að meiru eða minna leyti Vera ótrygg verslunarvara, og nauðsynlegt er, að ráða bót á því. Nú er því þannig farið, að það eru einmitt kaupsýslumenn, sem al- gerlega geta umskapað vörugæðin og komið því á, að framleiðendur vandi sinn varning. Eins og áður er tekið fram, er brýn nauðsyn að hið opinbera setji reglur um matvöru- gæði, og að kaupmenn stuðli að því. að þeim verði hlýtt. En meðan slík lagaákvæði vant- ar, gætu kaupmenn með samtökum sín á milli komið sjer saman um einhverjar varúðar- *) Höf hefir enn þá ekki lokiö við þessar at- huganir, en þær tilraunir, sem gerðar hafa veri'ð til þessa, benda til, að súrinn geti komið af of- þreytu í fjenu. reglur um vöndun í matvælakaupum. Slíkar ráðstafanir mundu mælast vel fyrir og kæmu þeim einum í koll, sem frajnleiða óvandaða vöru. Það ætti ekki að þurfa að brýna fyrir kaupmönnum, hve nauðsynlegt er fyrir þá, að koma vörugæða-ábyrgðinni á frambjóð- ancía, þegar um vörukaup ræðir. Komi nú t. d. landbóncli og vilji selja kæfu, væri ekki úr vegi, að hann undirritaði skírteini, þar sem tekið væri fram, að lmnn selji ómengaða sauðakjötskæfu, folaldakjötskæfu o. s. frv. En kaupmenn munu vera alt of óvarkárir í þessum efnum, ekki síst þegar um erlend matvörukaup er að rœða. Þess vegna verða kaupmenn jafnvel að selja varninginn eins og hann er á sig kominn, og geta engri ábyrgð komið á hlutaðeigandi vörusala, verða þar af leiðandi oft fyrir fjárhagsiegu tjóni, og þar við bætist vond samviska gagnvart við- skiftavinum. (Framh.) Verslunarráö Islanös. Skýrsla 1919. Verslunarráðið hefir nýlega gefið út skýrslu um starfsemi sína árið 1919, ásamt yfirliti yfir fjárhag ráðsins, skrá yfir þátt- takendur o. fl. I árslok 1918 voru þátttak- endurnir 205, á árinu 1919 gengu úr 17 (1 dáinn, 5 hættu atvinnurekstri og 11 greiddu eigi tillög sín), en 12 bættust við. í árslok 1919 voru þannig 200 þátttakendur, en síðari hluta árs 1919 og nú í ársbyrjun 1920 hafa bætst við 20 nýir, er teljast þátttakendur frá 1920. Af þátttakendum í á.rslok 1919 áttu 107 heima í Revkjavík og 93 úti um land. Kosning 1920. Kjörscðlar við kosning til verslunarráðs- ins hafa nýlega verið sendir þátttakendum,

x

Verslunartíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.