Verslunartíðindi - 01.06.1920, Page 19

Verslunartíðindi - 01.06.1920, Page 19
VEKSLTJNARTIÐINDI °g eig'a kjörseðlarnir að endursenclast kjör- stjórn fyrir 1. október. Kosning fer fram á tvehn fulltrúum. Þeir, sem úr gauga eftir kjöraldri, eru: kaupmaður Carl Proppé og konsúll Ólafur Johnson. Eft-ir sitja í ráðinu: heildsali Garðar Gíslason. konsúll Jes Zim- sen, kaupm. Jón Brynjólfsson, kaupm. J. L. Jensen-Bjerg og skipamiðlari Gunnar Egil- son. Enn fremur á að kjósa varafulltrúa og endurskoðunarmenn. Fráfarandi varafulltrú- ar eru: kaupm. Þórður Bjarnason og banka- Gjóri L. Kaaber; fráfarandi endurskoðunar- rnaður er kaupm. Pjetur Þ. J. Gunnarsson, °g fráfarandi varaendurskoðunarmaðui bók- sali Pjetur Halldórsson. Yerslonin við önnur lönd árið Í917 Verslunarskýrslurnar fyrir árið 1917 eru nú fullgerðar, en þar sem talsverðan tíma tek- Ur að prenta þær og útkoma þeirra getur því dregist nokkuð, hefur verið birtur útdráttur ór þeim í maíblaði Ilagtíðinda. Samkvæmt þessu yfirliti hefur verð aðfluttrar og út- fluttrar vöru síðustu 5 árin verið sem lijer segir: flflult Útflutt Samtals Útfl umfr. aQfl. milj. kr milj. kr. m ij. kr. milj. kr. 1913 . . 16.7 19, 35.s 2, 1914 .. 18.! 20.8 38.9 9 7 1915 .. 26.3 39.G 65.9 13.4 1916 .. CO CO 40, 79.3 0, 1917 .. 43.5 29, 73, - -13, Þar sem samgöngur við útlönd voru að heita má engar allan fyrri hluta árs 1917, er eðlilegt að dregið Iiu.fi úr verslunarviðskift- l|num það ár. Að vísu hefr verðmagn aðfluttu vörunnar hækkað úr 39.u milj. kr. 1916 upp í 43-5 milj. kr. 1917 eða um 11%, en þar sem mikil verðhækkun átti sjer stað á þessum tíma er bersýnilegt, að vörumagnið er miklu minna, en árið á undan. En það sem í fljótu bragði virðist mjög ískygg'ilegt er, að útflutta varan • 69 hefir lækkað úr 40., milj. kr. 1916 niður í 29.7 milj. kr. 1917 og verslunarjöt’nuðurinn er svo óhagstæður, að aðflutt vara nemur 13.s milj. kr. meira en iitflutta varan 1917. Undanfarin ár hefir útflutta varan ávalt numið meira en sú aðflutta og 1915 nam mismunurinn 13.4 milj. kr. Það er kunnugt, að aðstaða vor hefur farið síversnandi síðari árin vegna þess, að afurðir vorar hafa eigi stígið líkt því í verði sem aðfluttu vörurnar. Hinn mikli halli, sem verður á árinu 1917 getur þó eigi stafað ein- göngu af því, heldur aðallega af hiru, að óvenju mikið af ársframleiðslunni hafi legið hjer á landi við áramót og hafi fyrst verið flutt út á árinu 1918 og að síldveiðin brást 1917. Samkvæmt upplýsingum sem hagstofan hefir látið í t.je nam fiskútflutningurinn 1917 16 milj. kg. á 11 milj. kr., en 1916 var hann 30.5 milj. kg. á 17.4 milj kr. Af fiskiveiða- skýrslunum sjest að aflinn 1917 hefir að eins verið lítið eitt minni en 1916 og er því ber- sýnilegt að mjög mikill fiskur hefur verið óút- fluttur um áramót, líklega 8—10 milj. kg. og um fram það, sem venjulegt var undanfarin ár. Síldarútflutningurinn var lOmilj.kr.minni en 1916 og ennfremur var idlar- og gæruút- flutningurinn miklu minni, scm vafalaust stafar af því, að mikið af þessum síðasttöldu vörum hefur legið hjer um áramótin. Alþjóða verslunarráð. Fyrir nokkru kom fram á Bretlandi tillaga um að stofna alþjóða verslunarráð, sem ætti að starfa að því, að koma á samvinnu milli verslunarstofnana allra lauda til þess að vinna í þarfir verslunarinnar. Þessi hugmynd er nú að nálgast veruleikann, þar sem nú er verið að lialda undirbúningsfund í London og mæta þar fulltrúar frá breskum og amerísk- um nefndum til þess að ræða fyrirkomulag slíks verslunarráðs. í Frakklandi, Ítalíu og

x

Verslunartíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.