Verslunartíðindi - 01.06.1920, Qupperneq 20

Verslunartíðindi - 01.06.1920, Qupperneq 20
70 verslunartíðindi Belgíu hafa einnig slíkar nfendir verið settar. Eftir því sem ráða má af tillögum þeim, sem komið hafa fram, verður fyrirkomulag þessa alþjóða-verslunarráðs á þessa leið: Með- limir geta allar verslunar-, f jármála- og iðnað- arstofnanir orðið, svo framarlega sem ekki er um atvinnufyrirtæki að ræða. Einnig ein- stakir menn geta orðið meðlimir, en hafa þó ekki atkvæðisrjett. Þessu alþjóða-verslunar- máli stjórnar forseti og stjórnarnefnd. Stjórn- arnefnd velur forsetann fyrir eitt ár í senn. í stjórninni eru tveir menn frá liverju landi, og eru þeir valdir til 2—3 ára af áðurnefndum stofnunum í hverju landi, þar sem eru með- limir verslunarráðsins. Að minsta kosti einu sinni annaðhvert ár heldur verslunarráðið aðalfund, sem er boð- aður með 6 mánaða fyrirvara, og senda stofn- anir hvers lands þangað fulltrúa sína, ekki færri en 1 og ekki fleiri en 10 fyrir hverja stofnuu. Einnig má bjóða stjórnum hinna ýmsu landa á aðalfundinn, þó ekki meira en þremur fulltrúum fyrir hvert land. Auk stjórarnefndarinnar er einnig sett á stofn „alþjóðleg aðaldeild". Er þar forstjóri fyrir, sem sjer um daglegu störfin ásamt um- sjónarráði. í þetta ráð hafa stofnanir hinna ýmsu landa rjett til þess að velja einn meðlim. Þessi meðlimur á svo að vekja athygli ráðs- ins á þörfum og fyrirtækjum þess lands, sem hann er fulltrúi fyrir. Að lokum á hvert land að setja á stofn skrifstofu heima fyrir til þess að Ijetta undir samvinnuna við alþjóðadeild- ina. Arstillag meðlima verða 500 frankar og uppsögn verður að vera með þriggja mánaða fyrirvara. Þetta eru í stuttu máli aðaldrættrinir í fyrirkonmlagi alþjóðaverslunarráðsins, sem á að vinna að því, að gera verslunarviðskift- in greiðari á milli þjóðanna og mynda og efla samvinnu á milli allra framkvæmdar- stofnana hvervetna í heiminum. Aöalfunöur Eimskipafjelags íslands 1920. Aðalfundur Eimskipafjelagsins var haldinn 26. júní. Eormaður stjórnarinnar Sveinn Björnsson hæstarjettarmálaflutningsmaður setti fuudinn og var því næst kosinn fundarstjóri Eggert Briem hæstarjettardómari og kvaddi hann til fundarskrif- ara Yigfús Einarsson, stjórnarráðsfulltrúa. La fyrir fundinum reikningur fjelagsins fyrir síðast- liðiö ár, ásamt skýrslu stjómarinnar um hag fje- lagsins og framkvæmdir á starfsárinu. Arður af rekstri fjelgasins áriö 1919 hefir or'ð- ið kr. 1211338, og er það yfir 100 þús kr meira en árið á undan. Af rekstri Gullfoss var ágóðinn kr. 537362 og af rekstri Lagarfoss kr. 641582. í skýrslu stjórnarinnar er það tekið fram, að ferðir skipanna hafi gengið mjög greiðlega — jafnvel miklu greiðar en búast mátti við — og er það talin aðalástæðan til þess, að árið bar svo glæsilegan árangur fyrir hag fjelagsins. I árslok 1919 voru eignir fjelagsins, samkvæmt efnahagsreikningn- um, kr. 4.346.185, en skuldir (þar með talið hluta- fje og varasjóður fjelgasins) kr. 3.024.238, og eru þá eignir umfram skuldir kr. 1.321.947 Auk þess var eftirlaunasjóður fjelagsins á þeim tíma kr. 104.668. Ef talið er frá skuldunum hlutafjeð og varasjóður, verða skuldimar aðeins kr. 737.675, og eru eignirnar þá rúmar 3.6 milj. kr. eða nokkuð meira en hlutaf jeð tvöfalt. Auk þess verður að taka tillit til, að eignamegin eru skipin bæði aðeins bókfærð með 800 þús. kr., en þau munu nú vera yfir 3 milj. kr. virði samtals. par sem aðrar eignir fjelagsins eru einnig lágt bókfærðar, er fjárhagur- fjelgasins hinn glæsilegasti. Samkvæmt samþykt aðalfundar er varið 92,783 kr. til frádráttar af bókfærðu verði Gullfoss og 58.468 kr. til frádráttar af bókfærðu verði Lagar- foss. I endurnýjunar- og varasjóð leggjast 450 þús. kr., stjórnendum greiðast 9 þús. kr. og endur- skoðunarmönnuih 3 þús. kr., arður til hluthafa (10%) 168 þús. kr., ágóðaþóknun útgerðarstjóra 20 þús. kr., í eftirlaunasjóð 75 þús. kr. og til næsta árs yfirfærast 425.241 kr. og eru þar af ætlaðar 300 þús. kr. til viðgerðar á Lagarfoss Ennfremur var samþykt að greiða endurskðounarmönnum

x

Verslunartíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.