Verslunartíðindi - 01.12.1937, Blaðsíða 8

Verslunartíðindi - 01.12.1937, Blaðsíða 8
96 VERSLUN ARTÍÐINDI Samkvæmt lögum um samþykt ríkisreikn- ingsius fyrir árið 1935 hefir hallinn það ár numið kr. 67,966,64, og er það tæpum 32 þús. kr. minna en áætlað var. Viðbótin, sem samþykkt var sem fjárauka- lög fyrir 1935 niam kr. 2,635,128,72, og fjár- aukalög fyrir 1936 námu kr. 90,845,45. Ai tekjuöflunarlögum frá þessu J)ingi má nefna: Lög um bráðabirgfíatekjuöflun ríkissjófís og jöfnúnarsjóðs bœjar- og sveiJarfjelaga. Er þar fyrst og fremst breyting á tekju- skattsstiganum frá 1935, og er þar um all- verulega hækkun iað ræða. Þá eru ný ákvæði um fjelög og stofnanir, sem skattskyld eru eftir lögum nr. 6 frá 9. jan. 1935 Skulu hlutafjelög, og önnur fjelög með takmarkaðri ábyrgö, ennfrenmr önnur fjelög, sjóðir og stofnanir, sem ekki eru sjerstaklega undanþegnir skattgjaldi, aldrei greið.a, lægri skatt en 5% af skattskyldum tekjum. Gagn- kvæm ábyrgðarfjelög, Ina.upfjelög, smjörbú, sláturfjelög o.fl., skidu greiða 10%, ef skatt- skyldar tekjur þeirra nema 7000 kr. eða þar vfir. í 3 gr. lagiainna- er ákvæði um að innlieimta á árinu 1938 gjald til ríkissjóðs af ýmsum innfluttum vörum, og skal greiða það af inn- kaupsverði varanna, kominna um borð í skip, sem á að flytja þær hingað. Er í greininni upptalning á vörunum og þess jafnframt get- ið með hve háum hundraðshlut af vöruverð- inu þær eiga að stimpliast. 4. gr. ákveður 8 aura innflutningsgjald pi. lítra á bensíni, og er }>að helmingshækkun frá því, sem áður var, en sú tekjuaukning á ,aö ganga til vegabóta. Þá segir loks í 5. gr., að innheimta skuli með 11% viðauka þau ríkisgjöld, sem falla í gjialddaga á árinu, aðeins með fáum undan- tekningum. Þá eru lög um heimild fyrir ríkisstjófwina til aS innJwknta ýms gjöld 1938 meS viðauka. Eftir þessum lögum er xúkisstjórninni heimilt að innlieimta eignarskatt, álagðan 1938, með 10% viöauka. Með 25% má hún 'einnig innhe'imta vitagjöld og ýmsar auka- tekjur ríkissjóðs, stimpilgjöld og verðtoll ,af ýmsum vörum. Lög um bráðabirgðabreyting nokkurra laga, er ný lagaframlenging, sem nú má orð- ið heita, fastur, óbreyttur liður. Er þetta, frest- un á ýmsum framkvæmdum, sem mundu hafa xitgjöld í för með sj'er fyrir ríkissjóðiun. En þrátt fyrir Stórfellda hækkun á fjárlög- unum sjálfum, og þrátt fyrir Jxessa miklu skattaálagningu í ýmsum mvndum, sem hjer hefir verið minnst á, var fjárhagur ríkissjóðs tal'inn svo bágborinn, að lög um lántöku fyrir ríkissjóö voru samþykt, þar sem ríkisstjóm- inni er heimilað lað taka handa ríkissjóði, alt að 3 m'iljónum íslenskra króna, enda verði lánið tekið innanlands. Um tollheimtu og tollaeftirlit er alllangur lagabálkur í 6 köflum. 1. kaflinn er um tollstjórnina og eru þar litlar breytingar frá því, sem áður var í eldri lagaákvæðum. 2. kaflinn er um tolleftirlitið, og eru þar m.jög nákvæmlega reglur gefnar fyr- ir tolleftirlitsmenn, hve víðtækt vald þeir hafa o. s. frv. 3. kaflinn er um innfluttar vörur, og er þar auk ákvæðanna um ven.julegar innflutningsvörur, tekið fram að allir, er hafa meðferðis vörur eða farangur, sem ekki er nauðsynlegt að skráður sje á farmskrá eða vöruskrá, skuli ótilkvaddir framvísa slíkum vörum eða farangri fyr- ir tolleftirlitsmönnum. 4. kaflinn er um útflutningsvörur, og eru þar ákvæði um skýrslur og vottorð, sem þeim þurfa að fylgja. 5. og 6. kaflinn er um brot á þessum lögum og eru refsingar fyrir slík brot mun harðari en var í hinum fyrri toll- lögum. Rúmsins vegna er ekki hægt að fara

x

Verslunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.