Morgunblaðið - 02.06.2018, Blaðsíða 1
1. vélstjóri
á Ottó N. Þorláksson VE 5
1. vélstjóri og til afleysingar sem yfirvélstjóri
óskast á Ottó N. Þorláksson VE 5, vélastærð
1619 kW.
Skipið mun stunda bolfiskveiðar og verður gert
út frá Vestmannaeyjum.
Nánari upplýsingar gefur Eyþór Harðarson
í síma 861 2287. Umsókn skal senda á
eh@isfelag.is fyrir 15. júní
WOW HVAÐA LEIÐ ERT ÞÚ?
Viltu vinna hjá framsæknu flugfélagi með stórskemmtilegu samstarfsfólki? Kynntu þér málið á wowair.is/starf
TALAR ÞÚ TÖLUR?
Við leitum að framúrskarandi greinanda sem elskar tölur,
söguna sem þær segja og er snillingur í skýrslugerð.
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐARSVIÐ
Kostnaðargreining og kostnaðaraðhald
Innleiðing viðskiptagreindar
Eftirfylgni með rekstrarmælingum og greiningu frávika
Greining á rekstrar- og efnahagsreikningi, sjóðstreymi
og fjárfestingum
Greining á flugrekstrartengdum frávikum
Sviðsmyndagreining
Lykilhlutverk í samsetningu fjárhagslegra
stjórnendaupplýsinga
Vinnur náið með fjármála- og flugrekstrardeild fyrirtækisins
í greiningu kostnaðar og innleiðingu betri ferla og nýtingu
rekstrarfjármuna
Gegnir lykilhlutverki í kostnaðaraðhaldsteymi fyrirtækisins
HÆFNISKRÖFUR
Háskólapróf í viðskiptafræði, verkfræði eða tengdum greinum
Framúrskarandi þekking á Microsoft Excel og Power Point
Reynsla af áætlanagerð og notkun viðskiptagreindar
Grunnþekking á bókhaldi og reikningsskilum
Reynsla og þekking úr flug- og ferðaþjónustu er æskileg
en ekki skilyrði
Framúrskarandi samskiptahæfileikar, hugmyndaauðgi
og drifkraftur
Reynsla og þekking á aðgerðagreiningu er kostur
Reynsla og þekking á Power Pivot og SQL er kostur
Greiningarhæfni, sjálfstæð, öguð, og nákvæm vinnubrögð
SÉRFRÆÐINGUR Í GREININGUM - ANALYST
ERTU GAGNAGÚRÚ?
Vegna aukinna verkefna leitar WOW air nú að gagnlegum
gagnasérfræðingi í viðskiptagreind sem fílar fjólubláan
og finnst flugvélabrandarar fyndnir.
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐARSVIÐ
Rekstur og þróun á gagnavöruhúsi
Uppsetning og þróun á árangursmælikvörðum
Samþætting og áreiðanleikaprófun gagna
Þátttaka í þróun ferla tengdum áætlunum og eftirfylgni
Þarfagreining og skýrslugerð
HÆFNISKRÖFUR
Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði
eða sambærileg menntun
Reynsla/þekking af SQL
Reynsla af þróun og uppsetningu OLAP teninga
Reynsla af Power BI eða Tableau er kostur
Reynsla af úrvinnslu gagna æskileg
Greiningarhæfni, sjálfstæð, öguð og nákvæm vinnubrögð
SÉRFRÆÐINGUR Í VIÐSKIPTAGREIND
- BI SPECIALIST
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Frekari fyrirspurnir um störfin má senda á
starf@wow.is
Umsóknarfrestur til og með 11. júní 2018.
Skeiða- og
Gnúpverjahreppur
Grunnskólakennari í Þjórsárskóla
Laus staða kennara í Þjórsárskóla.
100% staða í aflýsingum til eins árs. Kennslugreinar eru stærðfræði, náttúrufræði, enska og danska í 6.-7.
Bekkur í samkennslu. Möguleiki á húsnæði.
Umsóknarfrestur til 12. júní 2018.
Nánari upplýsingar veitir Bolette Höeg Koch skólastjóri sími 895 9660, bolette@thjorsarskoli.is
Þjórsárskóli er grunnskóli fyrir 1.-7. bekk. Nemendur eru tæplega 50. Þeim er kennt í fjórum kennsluhópum.
Í Þjórsárskóla er lögð áhersla á sjálfbærni, nýsköpun, útikennslu og umhverfið. Við leggjum áherslu á að nýta
það efni sem við fáum úr Þjórsárdalsskógi og að gefa gömlum hlutum nýtt líf. Yfirmarkmið skólans er að skila
landinu til komandi kynslóða í betra ástandi en við tókum við því.
Vefslóð www.thjorsarskoli.is
Í Skeiða- og Gnúpverjahreppi eru rúmlega 600 íbúar. Þéttbýliskjarnar eru við Árnes og á Brautarholti. Í hreppnum eru
náttúruperlur á borð við Þjórsárdal. Þjórsárskóli er í tæplega 100 km fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.