Morgunblaðið - 02.06.2018, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 02.06.2018, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018 Sérfræðingur í markaðsviðskiptum • Miðlun verðbréfa • Samskipti við fagfjárfesta • Greining fjármálamarkaða • Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði eða fjármálatengdum fögum • Brennandi áhugi á fjármálamarkaði • Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum • Framúrskarandi færni í framsetningu og úrvinnslu flókinna gagna • Gott vald á íslensku og ensku • Frumkvæði í starfi og sjálfstæði í vinnubrögðum Öll reynsla af fjármálamarkaði er kostur en þó ekki nauðsyn. Við hvetjum því nýútskrifaða einstaklinga til að sækja um ef þeir uppfylla tilgreind skilyrði og eru reiðubúnir að leggja hart að sér. Arctica Finance er framsækið félag sem byggir þjónustu sína á ráðgjöf til fagfjárfesta og annarra fjársterkra aðila á þremur sviðum: Eignastýringu, Fyrirtækjaráðgjöf og Markaðsviðskiptum. Starfsfólk Arctica Finance býr að víðtækri og áralangri reynslu af ráðgjöf á fjármálamarkaði. Áhersla er lögð á að byggja upp traust samband við viðskiptavini, með fagmennsku og trúverðugleika í fyrirrúmi. Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2018. Umsóknum ásamt staðfestingu á námsárangri skal skilað til Agnars Hanssonar, forstöðumanns Markaðsviðskipta, með því að senda tölvupóst á póstfangið: agnar@arctica.is www.arctica.is | Höfðatorgi, 15. hæð | 105 Rvk. | S. 513 3300 Arctica Finance leitar að verðbréfamiðlara Verkefni Menntunar- og hæfniskröfur VIÐ MAT Á HÆFI UMSÆKJENDA LÍTUR VALNEFNDIN MEÐAL ANNARS TIL EFTIRFARANDI ATRIÐA: • Yfirgripsmikil reynsla af starfsemi fjármálafyrirtækja. • Reynsla af alþjóðlegum fjármálamarkaði. • Traust og gott orðspor. • Leiðtogahæfileikar. • Sérþekking á sviði áhættustefnu s.s. markaðs- og lánsáhættu. • Reynsla af stjórnun, rekstri og stefnumótun. • Fjárhagslegt sjálfstæði, reynsla og þekking eða nám sem nýtist í starfi. UMSÆKJENDUR ÞURFA JAFNFRAMT AÐ UPPFYLLA EFTIRFARANDI SKILYRÐI: • Vera lögráða og hafa ekki á síðustu fimm árum verið úrskurðaðir gjaldþrota. • Hafa ekki í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm á síðustu tíu árum fyrir refsiverðan verknað. • Uppfylla kröfur um óhæði, þ.e. þeim er ekki heimilt að vera starfsmenn eða stjórnarmenn hjá þeim sem fara með yfirráð yfir öðrum viðskiptabönkum eða sparisjóðum, eru ekki starfsmenn eða stjórnarmenn hjá öðrum viðskiptabönkum og sparisjóðum eða dótturfélögum þeirra, eru ekki makar stjórnarmanna eða framkvæmdastjóra framangreindra aðila eða skyldir þeim í beinan legg eða fyrsta legg til hliðar. Það sama gildir ef viðkomandi sinnir reglubundið hagsmunagæslu eða ráðgjafastörfum fyrir framangreinda aðila eða hefur meirihluta tekna sinna af viðskiptum við þá. Stjórnarmenn og starfsmenn fjármálafyrirtækis mega ekki eiga sæti í stjórnum annars eftirlitsskylds aðila eða aðila sem eru í nánum tengslum við hann. Bankasýslan fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum samkvæmt lögum nr. 88/2009 um Bankasýslu ríkisins. Fer stofnunin með 100% eignarhlut í Íslandsbanka hf., 98,2% eignarhlut í Landsbankanum hf. og 49,5% eignarhlut í Sparisjóði Austurlands hf. Stjórn Bankasýslu ríkisins skipar sérstaka valnefnd, sbr. 7. gr. laga nr. 88/2009, sem tilnefnir aðila fyrir hönd ríkisins í stjórnir fjármálafyrirtækja. Bankasýsla ríkisins óskar formlega eftir tilnefningum valnefndar um stjórnarmenn fyrir stjórnarkjör í hlutaðeigandi fjármálafyrirtækjum. Samkvæmt ákvæði 7. gr. laga nr. 88/2009 styðst valnefnd við starfsreglur við mat á hæfni, menntun og reynslu einstaklinga sem til greina koma til setu í stjórnum fjármálafyrirtækja fyrir hönd ríkisins. Starfsreglurnar eru aðgengilegar á heimasíðu Bankasýslu ríkisins. Við val á einstaklingum sem tilnefndir eru í stjórnir fjármálafyrirtækja tekur valnefndin mið af yfirsýn, þekkingu og reynslu við- komandi í tengslum við fyrirtækjarekstur og starfsháttum fjármálafyrirtækja. Nefndin leitast við að það sitji sem næst jafnmargar konur og karlar í stjórnum fjármálafyrirtækja. Þá er jafnframt miðað að því að þekking og reynsla stjórnarmanna sé fjölbreytt. Ennfremur er vakin athygli á 29 gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki sem varðar mögulega hagsmunaárekstra í tengslum við lánveitingar. Stjórnarmenn fjármálafyrirtækja þurfa að gangast undir og standast hæfismat Fjármálaeftirlitsins. Bankasýsla ríkisins leitar að einstaklingum til stjórnarsetu í fjármálafyrirtækjum. Bankasýsla ríkisins er sérstök ríkisstofnun með sjálfstæða stjórn sem heyrir undir fjármála- og efnahagsráðherra og fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum í samræmi við lög, góða stjórnsýslu- og viðskiptahætti og eigendastefnu ríkisins á hverjum tíma. Áhugasamir einstaklingar sem telja sig uppfylla framangreind skilyrði eru hvattir til að senda ferilskrár ásamt upplýsingum um ofangreind atriði til valnefndar Bankasýslu ríkisins á netfangið valnefnd@bankasysla.is. Óskað er eftir að ferilskrár og umbeðnar upplýsingar berist eigi síðar en 16. júní nk. Þeir einstaklingar, sem sent hafa ferilsskrár sínar eða boðið sig fram til stjórnarsetu með öðrum hætti fyrir 1. janúar 2018, eru beðnir um að endurnýja áhuga sinn með pósti til valnefndar ef þeir gefa áfram kost á sér til setu í stjórnum fjármálafyrirtækja. Nánari upplýsingar veitir Jón G. Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, sími 550-1700.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.