Morgunblaðið - 18.06.2018, Blaðsíða 5
ÍÞRÓTTIR 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2018
Stjórnaði liðinu og lék í 75
mínútur, sem er býsna
gott miðað við langa fjar-
veru. Hélt vel stöðunni
aftarlega á miðjunni
vegna þess að þar vildi
Messi lúra og bíða eftir
boltanum.
Aron Einar Gunnarsson
Átti skotið sem Alfreð
fylgdi á eftir með mark-
inu. Stórhættulegur þeg-
ar hann komst nálægt
teig Argentínu. Gekk
manna best að halda bolt-
anum. Varðist í eigin teig
og dró aldrei af sér.
Gylfi Þór Sigurðsson
Ekki alveg tengdur í
byrjun en vann sig frá-
bærlega inn í leikinn og
var sífellt á hárréttum
stað til að brjóta upp
sóknir Argentínu. Yfir-
vegaður og viljugur til að
láta Ísland halda bolta.
Emil Hallfreðsson
Komst snemma í dauða-
færi en hitti boltann illa.
Náði annars lítið að láta
til sín taka í sókn. Grimm-
ur í návígjum við þá arg-
entínsku, sem létu það
pirra sig. Studdi vel við
Hörð og miðjuna í vörn.
Birkir Bjarnason
Hljóp úr sér lungun til að
verjast en var alltaf klár í
að taka við löngum send-
ingum fram völlinn. Gerði
stundum vel í að taka við
þeim en ekki alltaf. Á hár-
réttum stað til að skora
markið, eins og svo oft.
Alfreð Finnbogason
Rúrik Gíslason kom inn á
þegar Jóhann Berg
meiddist á 63. mínútu.
Fór á hægri kantinn en
yfir á þann vinstri 12 mín-
útum síðar. Var orkumik-
ill en sýndi líka kænsku
gegn óþolinmæði Argent-
ínumanna.
Ari Freyr Skúlason kom
inn á fyrir Aron Einar á
75. mínútu. Fór á hægri
kantinn og Birkir Bjarna
inn á miðjuna.
Björn Bergmann Sigurð-
arson kom fyrir Alfreð
Finnbogason á 89. mín-
útu.
Varamenn Íslands
Oftast verið meira áber-
andi. Náði lítið að gera í
sókn en sinnti sínum
varnarskyldum að vanda
vel og hjálpaði Birki Má
að verjast Di Maria þegar
það þurfti. Meiddist í
kálfa á 62. mínútu.
Jóhann B. Guðmundsson
Króatar þurftu ekki að eiga sinn
besta leik til að vinna öruggan 2:0-
sigur á Nígeríu í Kalíningrad í D-riðli
okkar Íslendinga á HM í fótbolta á
laugardaginn var. Króatar komust
yfir á 32. mínútu með sjálfsmarki áð-
ur en Luka Modric bætti við öðru
marki úr vítaspyrnu á 71. mínútu.
Króatíska liðið var mun sterkari
aðilinn í fyrri hálfleik, en það gekk
illa að skapa sér gott færi í fremur
bragðdaufum leik. Að lokum kom
hins vegar verðskuldað mark er
Oghenekaro Etebo setti boltann í eig-
ið mark eftir skalla Mario Mandzu-
kic. Seinni hálfleikurinn var beint
framhald á þeim fyrri, Króatar sóttu
meira gegn döprum Nígeríumönnum
en erfiðlega gekk að skapa gott færi.
Að lokum kom þó annað markið á 71.
mínútu er William Ekong braut afar
klaufalega á Mandszukic innan teigs
eftir hornspyrnu. Modric skoraði af
öryggi úr vítinu og 2:0-sigur Króata,
sem fara á toppinn, staðreynd.
johanningi@mbl.is
Króatar mikið betri en
Nígeríumenn í Kalíníngrad
AFP
Mark Luka Modric og félagar fagna síðara marki króatíska liðsins í leiknum .
si og hentu lyklinum
Morgunblaðið/Eggert
si
Svíþjóð
Piteå – Rosengård ...................................0:1
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn fyrir Rosengård.
Växjö – Kristianstad ............................... 3:0
Sif Atladóttir lék allan leikinn fyrir
Kristianstad. Elísabet Gunnarsdóttir þjálf-
ar liðið.
Limhamn Bunkeflo – Kalmar ................ 2:0
Anna Björk Kristjánsdóttir lék allan
leikinn fyrir Limhamn. Rakel Hönnudóttir
skoraði bæði mörk liðsins og var skipt af
velli á 86. mínútu.
Piteå 21 stig, Rosengård 19, Växjö 13,
Gautaborg 13, Kristianstad 12, Limhamn
Bunkeflo 11, Linköping 10, Djurgården 10,
Hammarby 9, Vittsjö 7, Eskilstuna 7, Kal-
mar 3.
B-deild karla:
Halmstad – Eskilstuna.............................2:1
Höskuldur Gunnlaugsson lék allan leik-
inn fyrir Halmstad og skoraði sigurmarkið.
Tryggvi Hrafn Haraldsson lék síðari hálf-
leikinn.
Jönköping Södra – Falkenberg ............. 1:3
Árni Vilhjálmsson lék með Jönköping í
61 mínútu.
Noregur
Vålerenga – Röa .......................................2:1
Svava Rós Guðmundsdóttir lék allan
leikinn fyrir Röa.
B-deild karla:
Sandnes Ulf – Aalesund ......................... 1:2
Aron Elís Þrándarson, Adam Örn Arn-
arson og Hólmbert Aron Friðjónsson léku
með Aalesund frá upphafi leiks til enda.
Daníel Leó Grétarsson var ekki í leik-
mannahópnum.
HamKam – Sogndal .................................1:3
Orri Sigurður Ómarsson lék allan leikinn
fyrir HamKam.
Bandaríkin
North Carolina – Utah Royals ............... 0:1
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan
leikinn fyrir Utah Royals.
KNATTSPYRNA
Vináttulandsleikir karla
Suður-Kórea – Barein......................... 37:25
Aron Kristjánsson þjálfar lið Bareins.
Japan – Þýskaland .............................. 22:31
Dagur Sigurðsson þjálfar lið Japans.
Holland – Barein.................................. 34:24
Aron Kristjánsson þjálfar lið Bareins.
Vináttulandsleikir kvenna
Svíþjóð – Úkraína................................. 27:27
Suður-Kórea – Úkraína ....................... 36:20
HANDBOLTI
Lionel Messi átti
ellefu skot að
marki í leik Arg-
entínu og Íslands
á Spartak-
leikvanginum í
Moskvu á laug-
ardaginn.
Messi skaut
framhjá íslenska
markinu eða í
varnarmenn í
átta skipti, en Hannes Þór Hall-
dórsson varði þrívegis frá honum.
Þess má geta að Portúgalinn Cristi-
ano Ronaldo átti tíu skot á mark Ís-
lands í upphafsleik EM fyrir tveim-
ur árum. Honum lánaðist heldur
ekki að skora.
Eins er komið
fyrir Messi og
Ronaldo
Lionel
Messi