Morgunblaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 1
ÍÞRÓTTIR FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 Evrópukeppni Íslandsmeistarar Vals taka í kvöld á móti Sheriff frá Moldóvu í 3. umferð Evrópu- deildarinnar og þurfa að vinna upp eins marks forskot frá því í fyrri leik liðanna. 4 Íþróttir mbl.is Íslenska landsliðið í handknattleik karla, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, leikur annað kvöld við lið heimamanna í Króatíu í undanúrslitum Evrópumótsins. Íslenska liðið varð í efsta sæti milliriðils tvö á mótinu þrátt fyrir sex marka tap fyrir Spánverjum í lokaleik milliriðlakeppninnar í gærkvöld, 33:27. Fyrir leikinn hafði Ísland tryggt sér efsta sætið og þess vegna gat Heimir Ríkarðs- son, þjálfari liðsins, leyft sér að gefa nokkrum sterkum leikmönnum, eins og Hauki Þrastarsyni og markverðinum Viktori Gísla Hallgrímssyni, nánast frí frá leiknum í gær. Spánverjar voru sterkari frá upphafi til enda leiksins við Íslendinga í gær. Varnarleikur ís- lenska liðsins var ekki eins sannfærandi og í fyrri leikjum og sóknarleikurinn gekk ekki eins vel og stundum áður gegn framliggjandi vörn Spán- verja. Einar Örn Sindrason var markahæstur í ís- lenska liðinu með fimm mörk. Viktor Andri Jóns- son og Þorleifur Rafn Aðalsteinsson skoruðu fjögur mörk hvor. Króatar unnu Frakka örugglega, 25:20, í bar- áttunni um annað sætið í milliriðli eitt og réttinn til að skora á íslenska liðið í undanúrslitum. Danir urðu efstir með fullt hús stiga í hinum milliriðlinum. Danska liðið vann Serba á sannfær- andi hátt í lokaleik sínum í gær, 29:24. Danir mæta þar af leiðandi grönnum sínum, Svíum, í hinni viðureign undanúrslitanna á morgun. Svíar náðu öðru sæti í milliriðli íslenska liðsins með því að vinna Þjóðverja, 30:27, í hörkuleik í gær. Sænska liðið var lengst af sterkara í þeirri við- ureign. Þjóðverjar eru hinsvegar í sárum eftir að hafa ekki náð inn í undanúrslit en þeir voru fyr- irfram taldir vera afar sigurstranglegir á mótinu. iben@mbl.is Heimamenn í undanúrslitum  Íslendingar mæta Króötum í uppgjöri á EM  Lykilmenn voru hvíldir í gær FÓTBOLTI Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Sigríður Lára Garðarsdóttir, lands- liðskona í knattspyrnu, er þessa dag- ana að koma sér fyrir í Lilleström, 12.500 manna bæ í nágrenni Óslóar, þar sem hún mun spila fótbolta með besta liði Noregs næstu mánuði. Sig- ríður Lára kemur til Lilleström frá ríkjandi bikarmeisturum ÍBV og gerði samning við félagið sem gildir til áramóta og verður svo endurskoð- aður. Til að undirstrika styrk Lille- ström-liðsins má nefna að það hefur orðið norskur meistari fjögur síðustu ár og unnið alla 14 deildarleiki sína í ár, sem skilar liðinu 12 stiga forskoti á toppi norsku úrvalsdeildarinnar. Liðið leikur í 32ja liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í september og verður Sigríður Lára gjaldgeng í þá keppni. Fyrsti leikur hennar gæti orðið gegn Arna Björnar í norsku úr- valsdeildinni á laugardag. „Þetta verður krefjandi en skemmtilegt. Ég hef stefnt að þessu lengi og hef alltaf ætlað mér að taka skref upp á hærra stig. Þetta er toppliðið í Noregi, þjálfarinn er mjög góður og það er allt mjög fagmann- legt í kringum liðið. Hópurinn er í raun frekar fámennur en leikmenn- irnir allir sterkir og það er því gott „tempó“ á æfingum. Þetta er frá- bært tækifæri fyrir mig,“ segir Sig- ríður við Morgunblaðið. Þjálfarinn sem hún nefnir, Hege Riise, er leikjahæsta landsliðskona í sögu Noregs og hefur hún stýrt Lille- ström frá árinu 2011, með afburða- góðum árangri sem fyrr segir. Gott að geta sótt ráð frá Heimi Annað norskt félag sýndi því einn- ig áhuga að fá Sigríði Láru til sín, sem og félag í Svíþjóð, en Eyjamær- in valdi Lilleström eftir að hafa ráð- fært sig við fólk sem þekkir félagið vel. Hún ræddi meðal annars við Sig- urð Ragnar Eyjólfsson, fyrrverandi landsliðsþjálfara kvenna, og Írisi Björk Eysteinsdóttur, sem bæði þjálfuðu hjá félaginu. Hún hefði einnig getað ráðfært sig við Guð- björgu Gunnarsdóttur landsliðs- markvörð, sem varð tvöfaldur meist- ari með Lilleström bæði 2014 og 2015. „Ég talaði við Írisi Björk og Sigga Ragga og þau höfðu bara góða hluti að segja um klúbbinn. Heimir Hall- gríms [fyrrverandi landsliðsþjálfari karla] hefur líka hjálpað mér mjög mikið og gefið mér ýmis góð ráð. Það er gott að geta fengið ráð frá hon- um,“ segir Sigríður Lára lauflétt í bragði. Liðagigtin ekki sett strik í reikninginn Eins og Sigríður Lára greindi frá í viðtali við Morgunblaðið í byrjun árs er hún með liðagigt, en lyfjameðferð við þessum ólæknandi sjúkdómi hef- ur skilað tilætluðum árangri og ekki haldið aftur af þessari 24 ára gömlu landsliðskonu. „Þetta hefur allt gengið eins og í sögu. Ég hef getað æft á fullu og spil- að alla leiki, svo þetta hefur ekkert truflað,“ segir Sigríður Lára og snýr svo talinu að þeirri staðreynd að ÍBV er í 5. sæti Pepsi-deildar með aðeins 15 stig, 19 stigum á eftir toppliði Breiðabliks. „Tímabilið hjá ÍBV hef- ur verið vonbrigðatímabil. Það hefur verið mikið um meiðsli og svona. Þannig getur þetta verið. Maður lendir stundum í mótlæti. Félagið studdi mig og hvatti eindregið til að fara út í atvinnumennsku og það er gott að finna þann skilning,“ segir Sigríður Lára, sem kemur til Íslands um mánaðamótin vegna stórleikj- anna við Þýskaland og Tékkland sem ráða úrslitum um sæti á HM á næsta ári. „Frábært tækifæri“  Sigríður Lára fer til ferfaldra Noregsmeistara Lilleström  Ráðfærði sig við tvo fyrrverandi landsliðsþjálfara  Stórleikir í Meistaradeild og með landsliðinu Morgunblaðið/Sigfús Ánægð Sigríður Lára Garðarsdóttir segir fyrstu kynni sín af norska meistaraliðinu Lilleström vera mjög góð. Það var á bratt- ann að sækja fyr- ir íslenska kvennalandsliðið í blaki þegar það mætti belgíska landsliðinu í Kortrijk í Belgíu í gærkvöldi í fyrstu umferð undankeppni Evrópumótsins. Belgar unnu öruggan sigur í þrem- ur hrinum, 25:4, 25:8, og 25:10. Vit- að var að talsverður getumunur væri á liðunum þar sem belgíska landsliðið er í sjöunda sæti styrk- leikalista Blaksambands Evrópu en það íslenska í hópi þeirra neðstu. Íslenska liðið skoraði fyrsta stig leiksins en það var í eina skiptið í leiknum sem liðið hafði yfirhönd- ina. Þetta var fyrsti leikur íslenska landsliðsins eftir að Borja González tók við þjálfun þess fyrir skömmu. Undankeppninni verður haldið áfram á sunnudaginn þegar ís- lenska landsliðið fær landslið Sló- vena í heimsókn í Digranes í Kópa- vogi. Slóvenar unnu landslið Ísraels í hinni viðureign riðilsins í gær- kvöld. iben@mbl.is Þungur róður í Kortrijk Borja González Íslenska landsliðið í blaki karla tap- aði í gær fyrir landsliði Slóvakíu með þremur hrinum gegn engri í fyrsta leik sínum í undankeppni Evrópumótsins í blaki en liðin átt- ust við í Nítra í Slóvakíu. Um var að ræða sögulegan leik því íslenskt blaklandslið hefur aldrei áður tekið þátt í undankeppni EM í karla- flokki. Eins við mátti búast var við ramman reip að draga hjá íslenska liðinu. Slóvakar höfnuðu í 13. sæti á síðasta Evrópumóti og eru fyr- irfram taldir vera með besta liðið í riðlinum. Eftir tap, 25:7, í fyrstu hrinu óx íslenska liðinu ásamegin í næstu tveimur hrinum en þeim lauk með sigri Slóvaka, 25:15 og 25:17. Lúð- vík Már Matthíasson var valinn besti maður íslenska liðsins í leikn- um. Næsti leikur Íslands í und- ankeppni EM verður í Digranesi á sunnudaginn gegn Moldóvu. iben@mbl.is Tap í sögu- legum lands- leik í Nítra Bestur Lúðvík Már Matthíasson var val- inn besti maður íslenska liðsins í leikslok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.